Fréttablaðið - 28.09.2001, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 28.09.2001, Blaðsíða 16
 JL nr PLATAN BJARNI CUÐMANN gítarleikari Úlpu Helvíti góður hljómur „Ég er að hlusta á plötu með Dianogh sem heitir Death Champions. Ég keypti hana í Hljómalind. Hún hljómar helvíti vel, ég er búin að renna henni nokkrum sinnum." ■ 16 FRETTABLAÐIÐ 28. september 2001 FÖSTUDAGUB HÁSKÓLABÍÓ HAGATORCI, SIMI 530 1919 Þar sem allir salir eru stórir BRIDGET JONES'5 DIARY kl.Bogloj jTILL SAMMANS ALFABAKKA 8, SIMI 587 8900 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 VIT274 Sýnd kl. 8 vit 270 jlSN'T SHE GREflT kl. 6,8 og 10 l^j jCATS & DOGS m/ íslensku taíi TTeiKTl SWORDEISH kl. 8og 10.10 n jCÆTS & DOGS m/ ensku tali THE FAST&THE FURIOUS ki lojjv'tj jSHREK m/ íslensku tali kLÍlBJI iö.6iK,?l METÖLULISTI Mest seldu skáldsögur i Eymundsson vikuna 17.-23. september íslandsklukkan HALLDÓR LAXNESS Veröld Soffíu JOSTEIN GAARDER Híbýli vindanna BÖÐVAR GUÐMUNDSSON o Anna, Hanna & Jóhanna MARIANNE FREDRIKSSON Dagbók Bridget Jones HELEN FIELDING Slóð fiðrildanna ÓLAFUR JÓHANN ÓLAFSSON o Glæpur og refsing FJODOR DOSTOJEVSKI o Fest á filmu LEIF DAVIDSEN o Kristnihald undir jökli HALLDÓR LAXNESS 0 Kaldaliós VIGDIS C GRÍMSDÓTTIR Kerrur fyrir mótorhjól. Flestar gerðir. Ódýrt. Goddi S: 544 5550 www.goddi.is SABIANA Hitablásarar FRÉTTIR AF FÓLKI Fína kryddið Victoria Beck- ham segist frekar óska þess að Brooklyn, sonur hennar og fótboltakappans David Beckham, verði fótbolta- maður en söngv- ari. Hún viður- kennir einnig að sonurinn hafi ef til vill frekar bjagaða mynd af umheiminum. Hann haldi að allir pabbar leiki fótbolta, að allar mömmur komi fram í Top Of The Pops og að slúðurblaðið OK! sé fjölskyldu- albúm þeirra. Líklegast góð og holl heimsmynd fyrir alla krak- ka að hafa. Yoko Ono, ekkja Bítilsins John Lennon, er að fara að gefa út sína fyrstu breiðskífu í fimm ár. Platan byggist á þremur lögum sem hún tók upp fyrir DVD geisladisk sem inniheldur brot af eldri sýn- ingum hennar. Breiðskífan væntanlega heit- ir A Blueprint For A Sunrise. Fyrrum átfíkillinn og Playboy leikfangið, Anne Nicole Smith, vann eina orustuna enn í baráttunni við fósturson sinn fyrir dómstólum. Dómari staðfesti fyrr í þessari viku að hún fengi að halda 325 milljónum punda sem eiginmaður hennar ánafnaði henni. Smith hefur þurft að heyja harða baráttu til að halda í eignir og peninga sem látinn eiginmaður hennar, J. Howard Marshall að nafni, arfleiddi hana að. Sonur hans, E. Pierce, er ekki sáttur við hlutskipti sitt og hefur stefnt fyrirsætunni. Anne Nicole Smith kynntist eig- inmanni sínum árið 1991 þegar hún var 23 ára og starfaði sem dansari á strípiklúbbi. Þau gift- ust árið 1994 en hann dó ári seinna þá níræður að aldri. Þrír litlir magnarar Hljómsveitin Guitar Islancio hefur vakið mikla lukku með djössuð- um útsetningum á íslenskum þjóðlögum. Nú er hún að gefa út sína þriðju plötu en hún skrifaði nýlega undir þriggja platna samning við Eddu-Miðlun. tónust Platan, sem heitir Guitar Islancio III, kemur út um miðjan október. Hún var tekin upp í byrjun sumars. Á henni tekur hljómsveitin, líkt og á fyrri tveimur, gömul íslensk þjóðlög og útsetur þau fyrir djassgítar. „Eg veit samt ekki hvort við höldum áfram í þeirri stefnu á næstu plötum,“ segir Jón Rafns- son bassaleikari. Hann skipar Guitar Islandico ásamt þeim Birni Thoroddsen og Gunnari Þórðarsyni. „Við erum með næstu plötur á teikniborðinu og þær gætu orðið ólíkar þessum." Guitar Islancio var stofnuð árið 1998. Fyrsta platan leit dags- ins ljós ári síðar en önnur í fyrra. „Þetta er blómstrandi samstarf. Það eru engin átök innan hljóm- sveitarinnar," segir Jón. „Við erum ekki með eitthvað batterí á herðunum eða í keppni við aðra. Þetta er enginn glamúi', bara spilamennska. Ég held að það skíni í gegn á tónleikum hvað við höfum gaman að því að spila saman, við smitum út frá okkur." Tónleikar hljómsveitarinnar vekja jafnan mikla lukku en hún hefur ferðast mikið erlendis. „Við kynnum alltaf rækilega það sem við erum að spila og fólk tekur því vel. Það hefur áhuga á tónlist af ýmsum uppruna. Við verðum duglegir að spila í vetur. Fyrsti viðkomustaður er Corcorian safnið í Washington. Ég held að tónleikaskipuleggj- andi safnsins hafi heyrt fyrstu plötuna okkar hjá Bryndísi Schram og beðið okkur um að koma í kjölfarið. Síðah förum við m.a. á djasshátíð í Berlín ásamt Tómasi R. Einarssyni og hljóm- sveit en þemað á henni er Norð- urlönd. Við ætlum einnig að spila úti á landi, eigum marga staði eftir þar.“ Þó að þeir Jón, Björn og Gunnar hafi í nógu að snúast ÁRBÆJARSAFNSFÍLINGUR Þriðja plata Guitar Islancio kemur út um miðjan október. Þetta er jafnframt fyrsta plata hljómsveitarinnar hjá útgáfu Eddu-Miðlunar. Hún spilar á Tíbrártónleíkum í Salnum nk. fimmtudag. sinna þeir hljómsveitinni vel, æfa reglulega og spila mikið og þess má geta að þeir voru í ágúst tilnefndir Tónlistarhópur Reykjavíkur árió 2001. „Það er líka þægilegt fyrir okkur að spila. Það eina sem við þurfum eru tveir gítarar, kontra- bassi og þrír litlir magnarar." Þeir sem ekki hafa barið þá augum á sviði geta farið í Salinn fimmtudagskvöldið 4. október kl. 20, þar sem þeir spila ásamt franska gítarleikaranum Sylvain Luc í öðrum Tíbrártónleikum vetrarins. Þar flytur hljómsveit- in m.a. efni af nýju plötunni. halldor@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.