Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1896, Blaðsíða 189
189
leika þínum. Efnið getur þannig að þessu sinni ekki orðið
■annað en að biðja þig þess lengstra orða, að láta ekkert ó-
reynt, sem stuðlað gæti til, að koma þjer til heilsu aptur.
Jeg vil borga alt, sem til þess kostar, að fá þjer haganlega
aðbúð, þægilega aðhjúkrun, læknismeðul etc. ef þig þrýtur
ajálfan, sem vonlegt er, og þú gefur mjer skýrteini um það,
því jeg má með engu móti missa þig, allra sízt fyrir hand-
vömm; en raunar er mjer líka grunur á, að þú sjert ekki
búinn að ljúka af öllu, sem þú átt að gjöra hjerna enn þá,
þó ekki sje ráð nema í tíma sje tekið. — — Láttu mig með
fyrstu ferð fá greinilega línu um, hvemig þjer líður, mjer
þykir ekki fyrir að senda þjer hesta suður, ef þú værir
ferðafær hingað, og jeg vildi enda ráða þjer til að komast
bjerna í Fljótshlíðarblíðuna, þegar þú ferð að hressast; við
böfum nóg að lesa, og margt má hjer finna ,sjer til dægra-
styttingar, að minsta kosti þekki jeg ekki til leiðinda, síðan
bingað kom.----------
XIII.
[Til Konráðs]. Breiðabólstad 29. júli 1840.
Jeg tek mjer stórt blað, eins og bæði brjefin þín til
samans, því þú þykist nú víst hafa rutt þig svo við mig,
að þjer mun ekki þykja meir en skyldugt, þó þú fáir annað
eins hjá mjer aptur. En ekki færðu skammir hjá mjer í
þetta sinn: mjer eru þær ekki svo útbærar, að jeg fleygi
þeim út tilgangslaust, því það er raunar sú vara, sem
jeg að einu leytinu ekki hefi nema skorinn skamt af, enda
að hinu leytinu sú vara, sem jeg opt þarf að halda á. —
Mig glöddu mikillega brjef þín og þó ekki minna hitt, að
þú, sem öll von var, að bölvuð fátæktin væri búin að hálf-
drepa og gjöra kjarklausan fyrir löngu, skyldir geta klofið
fram úr að koma út Fjölni [4. árg.] og Hrafnkelssögu. —
Þótti mjer þú hafa rekið vel af þjer sliðruorðið, að jeg ekki
minnist þess, sem mestu varðar, að það er eini vegurinn til
að geta komizt áfram fyrir þeim, sem eins stendur á fyrir
eins og þjer, að geta gjört sig kunnan að ritgjörðum og
virðist mjer, að þú nú þegar sjáir þess nokkra ávexti og