Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1906, Blaðsíða 29

Eimreiðin - 01.05.1906, Blaðsíða 29
109 Bókum man ég ekki öðrum eftir á heimili okkar, fyrst lengi vel, en þessum: Sunnudagapostillu Jóns Vídalíns, Stúrmshugvekjum, Bjarna- bænum — á þær lærði ég að lesa, — Messusöngsbókinni, Passíusálm- unum, Flokkabók, Missirisskiftaoflfri og Almanakinu. Pétursbænir var fyrsta bókin, sem ég eignaðist, — fékk þær fyrir að taka inn þorska- lýsi. sem ég annars var ófáanleg til. Vel man ég, hvað vænt mér þótti um að eiga nú bók sjálf. Númarímur var næsta bókin mín, Snorra- Edda sú þriðja. — Lesa vorum við oft látin í ritningunni. Sú bók leiddist mér Einhvern tíma ympraði ég á því, að enginn ætti með að láta ferma mig, nema ég sjálf vildi. Fólkið bað guð um að náða mig. Signa vorum við látin okkur: áður en við fórum í skyrtuna, áður en við fórum að borða, þegar við fyrst komum út á morgnana, og á leiði hinna dánu áttu allir að gera krossmark, áður en frá gröfinni væri gengið. Bænir og vers vorum við látin þylja kvöld og morgna. Móðir mín sagði mér frá guði og hans dásemdum, þegar ég var ósköp lítið barn. llla gekk henni þó að svara öllum mínum spurningum, svo ég var þá fast- ráðin í því, að fara til biskupsins, þegar ég væri orðin nógu stór til þess, til að fá hjá honum upplýsingu um annað líf og annað það, sem móðir mín var ekki nógu vel heima í. Dulspám þessum trúðum við: Ef köttur klóraði í spýtu, vissi það á vont veður. Lægi vel á ketti, var illviðra von. Færi köttur með löppina aftur fyrir eyrað, þegar hann þvoði sér, vissi það á gott. Lægi hundur fram á lappir sínar, spáði hann gestkomu. Dyttu skæri eða hnífur á gólf, svo á oddi stæði, vissi það á gest- komu. Ef hnerrað var yfir mat, kom einhver svangur. Heltist niður mjólk, kom einhver þyrstur. Ef hnerrað var í rúmi símt á morgnana, gekk manni í vil þann daginn, þó vissu sunnudagshnerrar á enn stærra happ en aðrir. Klæjaði mann iófann, fékk maður gjöf. Klæjaði mann augabrúnina, gladdist maður innan skamms. Klæjaði mann nefið, reiddist maður. Klæjaði mann munninn, fékk maður nýnæmi. Kitlaði mann í hnjáliðum, lá fyrir manni að verða hræddur um konu sína (eða bónda). Væri maður hársár, varð maður hræddur á sama hátt. Tæði maður illa ull, átti konan (eða bóndinn) tilvonandi að verða ygld á brún. Væru hrífutindar látnir snúa upp, kom regn. Væru grasstrá slitin, sem uxu innan við glugga í baðstofum, þá dó bráðlega einhver þar inni. Heyrðist brestur í húsaviðum, var einhver feigur. Dæju tveir á sama heimili, átti hinn þriðji eð deyja innan árs. Gengi maður aftur á bak, gekk ntaður hana móður sína ofan í jörðina, hún var þá feig. Dytti maður á burtleið, hepnaðist ferðin, en fall á heimleið var ills viti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.