Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1906, Blaðsíða 39

Eimreiðin - 01.05.1906, Blaðsíða 39
Hafi einhver séö snjóhvítan hauk meðal fálka, þá hefir sá maður séð ímynd Jóns Hinrikssonar, — snjóhvítur hæruþulur, ungur í anda, eldfimur og fleygur í hugsun, tölugur og hugsandi hvar sem gripið er niðri, í skáldskap, pólitík, guðfræði, búskap, eða hverju sem ber á góma. Petta er lýsing hans, það sem hún nær; gigtveikur, kreptur og slitinn af vinnu. Hann hefir kveðið mikið um dagana, erfiljóð, brúðkaupsvísur, ljóðabréf og hestaminni, og er mestur hluti þessa gerður í þeim vændum, að hafast yfir einu sinni á einum stað. — Enginn getur gert minna úr þessu, en sjálfur hann. En þótt svo kunni að vera, að í þessum kvæðum sé víða farið fót fyrir fót og á seina gangi lestamannsins á lífsins leið, þá er ekki hinu að neita, að falleg spor eru innan um og víða vakurt riðið. Fyrst ég nefni vakra reið, skal ég koma með tvær vísur úr eftirmælum reiðhests, sem hann gerði rúmlega sjötugur að aldri: Blæs um hól og bliknar kinn, björt er fjólan glóði; autt er ból þar blakkurinn baðaði í sólarflóði. Heiðin geymir Huga spor, holtið dreymir lyngað. Begar gleymir vetri vor veran sveimar hingað. Jón hefir fylgt tímanum betur en flestir menn aðrir, þrátt fyrir örðugar kringumstæður og fádæma elju og iðni til allra verka. Pó kvartar hann um nú á síðustu árum, að hann sé að dragast aftur úr. En víst hefir hann þó fundið til þess, að þung er færðin á lífsins leið: Seint ég lít hin fögru fjöll þar sem treð ég möl og mjöll frelsis sólar landa, mannlífs köldu stranda. Prígiftur bóndi, sem átt hefir á annan tug barna og alinn er upp á hrakningi, — hann kemst oft í kast við óblíða veðráttu um dagana, þótt hann nái ekki sjötugsaldri. Hann veit hvað póst- inum mætir, því að hann hefir sjálfur reynt: Fer um brjóstið fjúkandinn, nú er póstur nýkominn, fyllir gjóstur ranninn, Norðri slóst við manninn. Eó kvartar hann sjaldan í vísum sínum. Skapið er gott og lundin létt. Fá skáld íslenzkrar alþýðu hafa borið sig jafnvel.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.