Alþýðublaðið - 11.06.1964, Page 9
•sxvswkSiíssssSSs
Jón Jónsson, skipherra á Þór, kennir franskri blaðakonu handtökin.
Hinn franski aflakongur hjá heildarafla skipsins í ferðinni.
Þegar blaðamönnunum höfðu ver
ið sýnd . handtökin hófst biðin.
Fiskurinn lét á sér standa og það
var ekki fyrr en eftir langa bið
að ioks beit á eitt færið. Mikii
eftirvænting greip um sig ó þil-
farinu, en áhuginn dofnaði, þeg-
ar útlistað hafði verið fyrir blaða
mönnunum, að marhnútur væri
flestra fiska armastur og ekki til
annars en að henda honum í sjó-
inn aftur og var svo gert við
þennan fyrsta fisk ferðarinnar.
Ekki gerðist fleira á þessum
miðum og litu ekki fleiri fiskar
við færum blaðamannanna. Var
því leitað nýrra miða og aftur
kastað. Leið nú smástund óg eins
og áður reyndist marhnúturinn
'gestrisnastur íslenzkrá fiska,
enda átti hann ekki á hættu að
vera skorinn og soðinn. Tveim
marhnútum eftir að veiðar hóf-
ust á þessum nýju miðum, var
aftur haldið af stað og var nú að
allra ráði farið í svokallaða Ak-
urnesingafor og tókst nú aðeins
betur til, því að þarna var þó
einhvern fisk að fá þó að óneit-
anl. væri aflinn tregur, því að
andhelgisgæzlunnar,
angurslausar
ekki veiddust nema sextán fisk-
ar, flestir litlir. Voru það ekki
nema þeir veiðnari, sem fengu
fisk, en fiestir urðu að láta sér
nægja að kynnast aðferðunum
við að kasta og dorga, en kynnt-
ust ekki af eigin raun hvernig
innbyrða ætti fiskinn. Hafði einn
blaðamaðurinn orð á nú nú skildi
hann tii hvers fiskveiðimörkin
voru færð út, ef ástandið hefði
verið enn verra hér áður fyrr.
Belgískur blaðamaður, sem
þarna var méð, var og iðinn við
að dorga og fékk þó ekki bein
úr sjó. Varðskipsmönnum, sem
voru þarna nálægir og aðstoðuðu
menn við veiðarnar, þótti miður1
hve illa þeim belgiska gekk
og þegar hann brá sér frá,
hengdu þeir fisk á færi hans.
Þegar Belgíumaðurinn kom að
færinu aftur, fann hann að eitt-
hvað var komið á það. Byrjáði
að draga í grandaleysi og var þá
þegar kominn hópur í kringum
hann. En heldur kom á hann, þeg
ar hahn dró upp gamlan stein-
bít, sem þegar var farið að. slá
i. Auk þess, sem fiskurinn var
(FranJiaW á 10. síSu). *
og Bjarni Guffmundsson, blaffafulltrúi, viff ár-
veiffitilraunir.
iiuHiHmitiiHumiiiiitHiiHtirHiiiii.iiiiHiuiiiiitHiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiKikiiliiiiHikYiiiiiiiiuiiiiirHiiitimiiiiiiimtiiiimtimtiiuiuiiiiuiiiiiiiu* luiiiiiuniiimuHiiimuiniitiliunumi^
Síldarstúlkur Síldarstúlkur
Viljum ráða síldarstúlkur til Siglufjarðar. — Gott hús-
næði. Getum útvegað söltunarpláss á Seyðisfirði eftir
að söltun lýkur á Siglufirði. — Fríar ferðir og húsnæði
og kauptrygging. r
Upplýsingar gefnar að Hvammsgerði 6 Reykjavík.
Sími 32186.
Haraldur Böðvarsson & Co.
Akranesi.
Afgreiðslufólk
Piltur og stúlka óskast til afgreiðslustarfa strax í eina
kjötverzlun okkar. Um er að ræða framtíðaratvinnu, sum-
aratvinna kemur því ekki til greina. Nánari upplýsingar
í skrifstofunni.
SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS.
Skúlagötu 20.
Yfirverkstjóri
Hér með auglýsist eftir manni í starf yfirverkstjóra hjá
Siglufjarðarkaupstað.
Æskilegt er að fá byggingaverkfræðing eða iðnfræðing
til starfans, en byggingameistari, eða maður vanur verk-
stjórn getur einnig komið til greina.
Umsóknarfrestur er til 20. júní n.k.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður.
Siglufirði 8, júní 1964.
Bæjarstjórinn — sími 215.
Skrifstofusfúlka
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða skrifstofustúlku til
starfa á skrifstofum bæjarins strax. —
Vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Nánari uppl. gefur undirritaður.
Bæjarstjóri.
Skrifstofustúlka
Dugleg og áreiðanleg stúlka óskast strax, eða fljótlega, fil
vinnu við skýrslugerðarvélar. Viðkomandi þarf að vera
viðbragðsfljót og eftirtektarsöm. Góð vinnuskilyrði.
Umsækjendur vinsamlegast leggi inn nafn, heimilisfang,
símánúmer og helzt upplýsingar um fyrri störf, til afr
greiðslu blaðsins fyrir 13. þ.m., merkt „Skrifstofustúlka".
Mínar beztu þakkir til ykkar allra, sem sýndu mér hlý-
hug og vinsemd á 80 ára afmæli mínu 22. maí s.l.
Lifið heil.
Guðmundur Jónasson.
Herjólfsgötu 24, Hafftarfirði.
Auglýsingasímin er 149 06
ALÞÝBUBLAÐIÐ — 11. júní 1964 ®