Vísir - 08.06.1962, Page 2
VISIR
Föstudagur 8. júní 1962.
^ 1-11 11-1 ^
íf.
r *~i b
Tékkneskt U-landslið i
Laugardal á mánudaginn
Uwe Seeler frá Þýzkalandi er einn bezti leikmaður HM í Chile og hér sézt hann skora erfiðri
stöðu en S.-amerískur andstæðingur stendur yfir honum.
Hingað er væntanlegt á vegum
knattspyrnudeildar Víkings tékk-
neskt unglingalandslið, manna
undir 23ja ára aldri. Ekki eru nema
5 ár síðan Víkingur tók á móti
samskonar liði og ekki er að efa
að áhugamei: um knattspyrnu
muna það glæsilega lið, sem vann
hér alla leiki með 18 mörkum
gegn engu og mun eina erlenda
liðið, sem hefur farið héðan án
þess að fá mark.
Unglingalandslið Tékka leikur
hér 4 leiki. Sá fyrsti er á annan í
hvítasunnu (11. júní) við Akur-
eyringa, annar við Akranes mið-
vikudaginn 13. júní, þann þriðja
við íslandsmeistara KR föstudag-
inn 15. júní og að lokum við SV-
9°/o auknfng
Þrátt fyrir allar hömlur komm-
únista í Berlín jókst framleiðsla
Vestur-Berlínar um 9 af hundraði
á síðasta ári.
Eitt af því, sem kommúnistar
gerðu með því að reisa vegginn
milli Austur- og Vestur-Berlínar,
var að svipta tugi þúsunda f Aust-
ur-Berlín vinnu þeirri, sem þeir
höfðu i vesturhverfum borgarinn-
ar. Hefir þetta leitt tíl þess, að
vinnufólksekla hefir verið mikil og
vaxandi í vesturhverfunum síðari
hluta ársins, og hefði framleiðslu-
aukningin orðið mun meiri en raun
varð á, ef ekki hefði skort vinnu-
afl.
Allt kapp mun verða lagt á það
framvegis af yfirvöldum Vestur-
Berlínar að fá aukið fjármagn til
þess að koma á fót nýjum iðnf.yrir-
tækjum, en um leið verður leitazt
við að fá aukið vinnuafl, svo að
Vestur-Berlín verði ein helzta
framleiðslu- og kaupsýslumiðstöð
meginlands Evrópu.
Sex EvrópuHS og 2 S-Ameríkulið
/ undunúrslitum HM í Chile
Leikimir í gærkvöldi í HM í
knattspymu voru hinir rólegustu
eins og í fyrrakvöld, og jafnvel
hinir 20.000 áhorfendur, sem fóru
að sjá hið ofsafengna skap ítal-
anna fcngu aðcins að sjá áhuga-
lausa, rólega og snaggaralega knatt
spyrnumenn, sem aldrei æstu sig
gcgn Svisslendingunum. Aðeins
tveir leikjanna höfðu líka nokkra
þýðingu fyrir áframhaldið en það
voru leikirnir f Rancagua milli
Englands og Búlgarfu þar sem 0:0
bjargaði .föðurlandi knattspyrnunn
ar“ f „kvartfínalinn“, en liinn leik-
urinn var í Arica þar sem OL-
meistararnir frá Rómarleikjunum,
Júgóslavfa vann Columbíu með
„bursti“ og tryggði sig f undanúr-
slitin.
TVÖ MÖRK BJARGA ENSKUM
í UNDANÚRSLIT
Það var með herkjum að Eng-
landi tókst að komast í hóp hinna
8 liða, sem halda áfram og ekki
munaði mikla að þeir yrðu bókaðir
sem farþegar heim, eða tveim mörk
um, þar eð þeir hafa 1 mark í plús,
en markatala Argentínu er neikvæð
um eitt mark. Greinilegt var að a.
m. k. 7 leikmgnna Englendinga léku
upp á jafntefli, en nokkrir í fram-
línunni, þ. e. Greaves, Peacock,
Haynes og Charlton, hin stóru nöfn
í enskri knattspyrnu þessa dagana
voru ákveðnir og tókst að halda
pressu á mark Búlgara, sem þó
brotnaði nær alltaf á ótrúlega
sterkri vörn við vítateiginn. Búlgar
ar áttu þó nokkrar sóknir, en þá
var sem Englendingar hörfuðu og
reyndu að leika varnarleik.
OL-MEISTARARNIR
BURSTUÐU COLUMBÍU
í Arica léku Júgóslavar stóran
leik og sýndu geysilega yfirburði
yfir Columbíumenn f stórkostlegu
sumarveðri. Columbía byrjaði vel, •;
en vörn Júgóslava stóðst allar árás j
ir og brátt snerist taflið við og leik- >
urinn breyttist í leik kattarins að !
músinni og í hálfleik var staðan j
2:0, en í síðari hálfleik bættu þeir j
j við þremur mörkum með léttri og !
i skemmtilegri knattspyrnu, -g hefðu j
j Júgóslavar lagt sig f lima við að
skora og sýnt meiri hörku upp við
mörkin hefði mátt tvöfalda marka-
1 tölu þeirra, en það gerðu þeir ekki
enda lftil ástæða til þess.
j ENGINN „HAZAR“
Peir 20.000 áhorfendur, sem
komu á leik Itala og Sviss komu
mest til að nota .'ðasta tækifærið
til að sjá hið geysilega skap ítal-
anna, en það brást, því bæði voru
liðin fyrir leikinn útilokuð frá að
komast áfram í keppninni. Nei, leik
menn beggja höguðu sér eins og
kurteisir og hjálpsamir skátar í
útilegu og áhorfendur fengu ekkert
,,púður“ í sinn hlut. ítalir unnu leik
Framh. á bls. 5.
úrval, sem að þessu sinni verður
örugglega ekki jafnsterkt landsliði,
þar eð landsliðsnefnd hlýtur að
hafa nokkra leikmenn frá Akureyri
undir smásjánni. Leikurinn við úr-
valið er sunnudaginn 18. júní, en
utan fara Tékkarnir daginn eftir.
Allir fara leikirnir fram á Laugar-
dalsvellinum.
Annars má geta þess að Tékkar
hafa um þessar mundir mjög góð-
um knattspyrnuliðum á að skipa-
og nægir þar að benda á árangur
þeirra í Chile (Brazilía 0:0 og
Spánn 1:0) enda er liðið talið
nokkuð öruggt í úrslit. Meðal leik-
manna Tékka í Chile eru einmitt
7 leikmenn sem léku hér f Reykja-
vík fyrir 1957, svo sjá má að liðið
hefur haldið áfram að taka fram-
förum eftir heimsóknina hingað:
Hópurinn sem hingað kemur
verður skipaður 20 mönnum, en
ekki hefur móttökunefndin fengið
lista með nöfnum leikmanna, enda
kannske ekki mikið á honum að
græða þar eð fæstir eru leikmenn-;
irnir. enn orðnir þekktir utan síns
heimalands.
Móttökunefnd Víkings skipa:
Haukur Óskarsson, formaður, Vil-
berg Skarphéðinsson, Axel Einars-
son, Gunnar Már Pétursson, Hallur
Símonarson, Martin Petersen og
Ólafur Erlendsson.
wwvwwwwvwwwv
«4
‘"f \