Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.1996, Síða 4

Bókasafnið - 01.06.1996, Síða 4
BÓKASAFNIÐ 20. árgangur 1996 Efni blaðsins: 5 Kerfisbundnar efhisorðaskrár Þórdís T. Þórarinsdótdr 14 HeimasíSa bókasafna Dr. Laurel A. Clyde 16 Bókaverðir í netbolum Hólmkell Hreinsson 19 Samstarf almenningsbókasafha Marta Hildur Richter og Pálína Magnúsdóttir 22 Almenningsbókasöfn ogforskólabörn Þorbjörg Karlsdóttir 25 „Krimmaklúbburinn “ Helga Einarsdóttir og Ingibjörg Rögnvaldsdóttir 24 Gangskör 10 ára Jóhanna Gunnlaugsdótdr 29 Fengur Elísabet Halldórsdóttir, Sólveig Þorsteinsdótdr og Margrét Björnsdóttir 33 Framtíðarsýn Sólveig Þorsteinsdóttir 35 Bókaval og innkaupastefna á almenningsbókasafhi Hulda Björk Þorkelsdóttir 38 Jón sœnski Matthíasson Kristín Bragadóttir 42 Gullkista Kristín Bragadóttir 46 Ur eikarskújfum á alheimsnet Guðrún Karlsdóttir 50 íslensk þróunaraðstoð á sviði bókasafhs- og ujiplýsingamála í Malawi Ásgerður Kjartansdóttir 54 Tölvuvœðing íslenskra bókasafna Stefanía Júlíusdóttir 64 Gegnir Sigrún Hauksdóttir 68 Kennsla í bókasafns- og upplýsingafr&ði 40 ára Dr. Sigrún Klara Hannesdóttir 71 Gagnagrunnur Jyrir íslenskar hjiíkrunarrannsóknir Ragnheiður Kjærnested 74 Áhrif'heildaryfirlits (Conspectus) og rafrœnna upplýsinga á uppbyggingu safhkostsStefanía Júlíusdóttir 82 Afgreiðslutími safna júní1996 Frá ritnefnd: Bókasafnið er fjölbreytt að venju og áhersla lögð á að birta grein- ar sem tengjast tölvuvæðingu og nýjum miðlum á bókasöfnum. Sér- staklega er fjallað um tvö samhæfð bókasafnskerfi Feng og Gegni. Áherslan er sem fýrr á faggreinar og nú getur ritstjórnin í alvöru fylgt eftir þeirri stefnu sinni að velja greinar í blaðið með tilliti til hversu fræðilegar og vel framsettar þær eru. Það er álit ritstjórnar blaðsins að eina fagtímariti okkar á íslensku beri að birta fyrst og fremst fræði- greinar og stuðla þannig að betri bókasöfnum. Söfnin eru fyrst og fremst til vegna þekkingarinnar og það er henni sem okkur ber að þjóna. Því betri fagvinna sem unnin er inni á bókasöfnunum því betri söfn, fleiri og ánægðari notendur. Nú þegar 20. árgangur lítur dagsins ljós er ekki annað hægt en að minnast þess tíma þegar ýmsir töldu að leggja ætd blaðið niður. Sem betur fer var ekki hlustað á þessar svartsýnisraddir og í dag eigum við gott og styrkt fagtímarit sem vekur undrun og aðdáun allra sem líta það augum. Raddir hafa heyrst um að betra væri að blaðið kæmi út tvisvar á ári, en við megum ekki gleyma að það olli seinkun á útgáfu hér áður fyrr. Tvö blöð þýðir tvöföld vinna í sjálfboðavinnu. Við það að fjölga blöðum er hætta á að metnaður verði ekki eins mikill þegar vinnuálag verður of mikið og þá er betra að hafa eitt gott og vel unn- ið ársrit. Forsíða blaðsins er að þessu sinni listaverk eftir Guðrúnu Hannes- dóttur bókasafnsfræðing og er gaman að við skulum eiga svo mikil- hæfan listamann í hópnum. Myndin er af litla andarunganum sem breyttist í svan og í mínum huga er hann tákn fyrir ímynd bókasafns- fræðinga sem stundum eru of fljótir að raða sér við hlið andarungans. Ef við munum hve stórkostleg saga bókasafnsfræðinnar og bókasafna sem stofnanna eins og þau eru í dag er, sjáum við svanina sem hafa dafnað og orðið fallegri með ári hverju. Við notum starfsheitið bóka- verðir og sum okkar eru bókasafnsfræðingar og engin ástæða til að breyta þessum starfsheitum. Heldur minnast þess að það erum við sem höfum skapað þessar fallegu og virku stofnanir sem bókasöfnin okkar eru. Þetta blað er það þriðja og síðasta sem ég ritstýri að sinni og vil ég nota tækifærið að þakka öllum fyrir gott samstarf. Ég hef verið svo lánsöm að koma inn sem ritsjóri á miklum framfaratímum í faginu. ört bætist við þá sem lokið hafa framhaldsnámi sem vel má merkja á þeirri grósku sem hefur verið í skrifum fræðilegra greina. Fyrri rit- stjórar blaðsins höfðu lagt mér góðan grunn að vinna með og vona ég að mér hafi tekist að bæta í sarpinn fyrir ritstjórnir framtíðarinnar. Að iokum þakkar ritnefnd öllum þeim sem lögðu til efni í blaðið fyrir þeirra framlag. Merktar greinar eru á ábyrgð höfunda. Júní 1996 Regína Eiríksdóttir Útgefendur / Publishers: Ritnefnd /Editorial board: Bókavarðafélag íslands Regína Eiríksdóttir, ritstjóri/editor The Icclandic Library Association Gunnhildur Manfreðsdóttir Félag bókasafnsfræðinga Magnea Bára Magnúsdóttir, ritari The Association of Professional Margrét Björnsdóttir Librarians Pálína Magnúsdóttir Bókafulltrúi ríkisins The Dircctor of Public and Þóra Óskarsdóttir, gjaldkeri School Libraries Hciinilisfang / Addrcss: Útdrættir / Summaries: Þórdís T. Þórarinsdóttir Bókasafnið, Bókafulltrúi ríkisins Menntamálaráðuncytið Prentvinnsla: Borgarprent ehf. Sölvhólsgötu 4 ISSN 0257-6775 150 Rcykjavík Bókasafnið hefur frá árinu 1989 verið Eldri blöð fást hjá: lyklað í Library & Information Sci- Þjónustumiðstöð bókasafna ence Abstract (LISA). Forsíðumyndin sýnir listaverk efiir Guðrúnu Hannesdóttur, bókasafnsfraðing. 4 Bókasajhið 20. árg. 1996
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.