Bókasafnið

Ataaseq assigiiaat ilaat

Bókasafnið - 01.06.1996, Qupperneq 33

Bókasafnið - 01.06.1996, Qupperneq 33
Sólveig Þorsteinsdóttir Framtíðarsýn Veruleiki og sýndarveruleiki Tækniframfarir hafa haft í för með sér miklar breydngar á bókasöfnum. Ný og breytt þjónusta hefur fýlgt tækninni. Hlutverk bókasafns - og upplýsingafræðinga hefur hingað til verið að safna, varðveita, skipuleggja og dreifa upplýsingum. Með nýrri tækni sjáum við fram á að hlutverk okkar mun breytast í það að auðvelda notendum aðgang að upplýsing- um í tölvutæku formi eins og bókum, tímaritsgreinum, myndefni og fleiru í sinni eigin tölvu án þess að yfirgefa skrifstofu sína. í stað þess að safna gögnum á einn ákveðinn stað, skrá og lána út, munum við í auknum mæli skrá það efni sem gefið er út í tölvutæku formi. Við munum velja leitarorð til að auðvelda notandanum leitina og velja úrvals- efni úr miklu magni upplýsinga sem notandinn hefur ekki tíma til að fara í gegn um. En val á efni, innkaup og útlán munu heyra sögunni til. Bók í tölvutæku formi þarf ekki að lána út. Stórar uppsláttarbækur í læknisfræði eru sumar gefnar út í litlum vasatölvum. Tækniframfarir hafa verið mjög örar undanfarin ár og er ekki laust við að við sem á söfnunum störfum höfum þurft að skoða hlutverk okkar í nýju ljósi og tileinka okkur þessar nýjungar. Fyrir um það bil ári síðan vissum við sennilega fæst um tilvist Internetsins. Það hefur hrifið fólk með sér eins og stormsveipur. Geisladiskar sem hafa að geyma ótrú- legt magn upplýsinga hafa náð geysilegum vinsældum á fáurn árum. Diskarnir geyma gagnagrunna, bækur, tímarits- greinar, myndir svo eitthvað sé nefnt. Geisladiskar munu fljótlega leysa myndbandsspólurnar af hólmi. Utgáfustarf- semin er að færast yfir á tölvurnar og sumt efni kemur að- eins út í tölvutæku formi. Tímarit eru í auknum mæli geymd í tölvutæku formi og í stað þess að þurfa að fmna tímaritið á bókasöfnum er hægt að fá tímaritsgreinar án þess að fara á safnið. Gagnagrunnurinn Uncover sem er aðgengi- legur á Internetinu er gott dæmi um þessa breytingu. Hægt er að leita að tilvitnunum að mörg þúsund tímaritsgreinum, notendanum að kostnaðarlausu. Síðan er hægt að panta alla greinina og fá hana senda í tölvutæku formi. Notandinn greiðir fyrir greinina og er þá hægt að greiða fyrir hana með greiðslukorti. Söfn erlendis hafa sagt upp tímaritum og vís- að notendum sínum á þessa þjónustu í staðinn. Netin verða allsráðandi. Allt það efni sem var eingöngu inni á tölvum bókasafnsins verður inni á ned aðgengilegt öllum. Víða í læknisfræðibókasöfnum er þessi þróun mjög hröð. Bókasöfnin eru á tímamótum. Frá því að vera staður þar sem áhersla var lögð á að safna, varðveita og velja efni fyrir þröngan hóp notenda í nánasta umhverfi í það að vera hlekkur í alþjóðlegri upplýsingakeðju. Þar verður geta safns- ins mæld í tölvuminni og því magni af upplýsingum sem það hefur aðgang að í tölvutæku formi. Jafnframt mun hæfnin dl að skila upplýsingum til notandans í myndrænu- eða textaformi með miklum hraða hvar sem er í heiminum vega þungt. Bókasafnsfræðingar munu líklega í framtíðinni vinna áfram fýrir þennan þrönga hóp notenda á heimaslóð- um. Hlutverk okkar væri þá t.d. að efnisflokka efnið sem gefið er út í tölvutæku formi. Þannig munurn við auðvelda heimsbyggðinni aðgang að efni sem gefið er út af þessum af- markaða hópi á heimaslóðum. Annað hlutverk væri að auð- velda notendum úr nánasta umhverfi aðgang að upplýsing- um sem geymdar eru í tölvum hvort sem það efni hefúr ver- ið skrifað á íslandi e^a Ástralíu. Sérhver notendaskjár verð- ur sniðinn að þörfum notendahópsins. Skjárinn gefur að- gengi að röð upplýsinga og má þar nefna: 1. Staðbundnir gagnagrunnar yfir það efni sem aðgengilegt er á við- komandi safni. 2. Gagnagrunnar á geisladiskum. 3. Valdar upplýsingar frá utanaðkomandi aðilum á Internetinu. 4. Staðbundnar upplýsingar um t.d. listasýningar, ieikrit, kvikmynd- ir, fúndi o..fl. 5. Beinn aðgangur að t.d. gagnagrunnum þar sem hægt væri að nálg- ast allt efnið eins og t.d. Uncover. 6. Ritvinnsla. 7. Forrit eins og t.d. Endnote - Endlink, þar sem notandinn getur byggt upp sinn eiginn gagnagrunn og meðhöndlað gögnin eftir þörfum. Allt væri þetta aðgengilegt í gegnum Internetið. Efnið verður í auknum mæli textinn í heild sinni og verður hann allur leitarhæfur. Gamalt efni verður skannað inn í tölvurn- ar en nýtt efni vélritað, lesið eða skrifað beint inn. Margir spá því að efnisorðin muni hverfa. Bókasafnið er ekki Iengur rólegur staður þar sem legið er yfir bókum, heldur upplýsingamiðstöð þar sem notendur framkvæma sínar eigin leitir, skoða myndrænt kennsluefni í tölvutæku forrni. Þessi upplýsingamiðstöð er hluti af stærri heild. Notendur geta nálgast upplýsingar hvenær sem er sól- arhringsins. Safnkosturinn er ekki takmarkaður við einn stað heldur dreifður út um allan heim. Notendahópurinn hefur líka breyst frá því að vera frá þinni eigin stofnun í það að vera í öðru landi eða heimsálfu. Bókasafnið verður jafn- vel sýndarheimur á Internetinu, þar sem gengið er inn í sýndarsafn og leitað í tölvu, bók valin úr hillu og lánuð út eins og í raunveruleikanum. Hversu vel okkur sem störfum á bókasöfnunum tekst að aðlagast þessum breytingum er undir ýmsu komið. Við verðum að fýlgjast vel með öllum tækninýjungum. Efla þarf samstarf. Mikilvægt er að skyggn- ast inn í framtíðina og vera tilbúin að umbylta söfnunum þegar þörf krefur. Námið í bókasafns- og upplýsingafræðum verður að ná yfir nýjungar á sviði upplýsingatækninnar. Endurmenntun verður að vera fjölbreytt og við verðum að vera sérfræðingar á sviði tækninnar sem verður æ stærri hluti af okkar starfssviði. Við þurfum að vera hugmyndarík og djörf og aðeins þá tekst okkur að halda velli sem starfstétt í upplýsingaheim 21. aldarinnar. SUMMARY Future Vision : Reality or Virtual Reality Discusses new technologies in libraries, like the Internet and multi- media CD-ROM, and their impact on the role of libraries and librari- ans, as to collect, preserve, organise and disseminate information to sel- ect and evaluate and facilitate the access to machine readable in- formation and rnake them readily available on the privat computer of the end user. Points out the constant increase of electronic publishing and that instead of going to the library for information it is available on line. The author’s future vision is that each personal computer will be tailored to the needs of each user and access to various databases will be available. Points out that printed material will be scanned into the data- bases and will be fully searchable on natural language basis. The libr- aries will change from quite places to busy information centers with connections to information all around the world. Points out that the library user group has enlarged and clicnts can now even be situated in another continent. How quickly library personnel will adapt to the new technologies depends on factors like cooperation among libraries, the quality of the library science education, the continuing education offer- ed and their courage to keep abreast of changes. Bókasafnið 20. árg. 1996 33
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.