Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1985, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1985, Blaðsíða 4
4 DV. MÁNUDAGUR4. NOVEMBER1985. í daa mælir Dagfari í dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari Lions- hreyfingin á íslandi: Reykvíkingar tóku örlitið forskot á áramótin á föstudagskvöld. Stórir flugeldar og stjörnur lýstu upp dökkan himin. Fjöldi fólks horfði á dýrðina en þarna voru eigendur hins nýja veitingastaðar Sprengi- sands að fagna opnun staðarins. DV-mynd S Ekki forstjórinn sem ákveðurað risna skuli ekki greiddílandi — segir lögfræðingur Landhelgisgæslunnar „Forstjóri Landhelgisgæslunnar stendur sem slíkur ekki í samningum um kjör starfsmanna heldur er þaö sérstök deild innan ríkisgeirans,” sagöi Jón Magnússon, lögfræöingur Landhelgisgæslunnar, er DV ræddi viö hann í framhaldi af fréttum um deilu- mál innan Landhelgisgæslunnar. „Ef ágreiningur kemur upp er það sérstök nefnd sem sker úr um þaö. Forstjórinn sker ekki úr slíkum ágreiningsmálum heldur er þaö samn- inganefnd ríkisins. Þannig er þaö ekki forstjóri Land- helgisgæslunnar sem tekur ákvöröun um aö risna skuli ekki greidd í landi,” sagöi Jón Magnússon. -KMU. Nc>ði'iaðurinn Thorleif Blatt skýrir frá baráttu norskra lionsmanna gegn ofnotkun vímuefna á vel heppnaðri ráðstefnu sem haldin var á laugarrt <g. DV-mynd. f*K. Sker upp herör vímuefnum gegn Norðmaður, Thorleif Blatt, sem stjórnað hefur baráttu norsku lions- hreyfingarinnar gegn ofnotkun vímuefna þar í landi meö góöum árangri. . Norskir lionsmenn hafa fariö margar leiðir. Þeir hafa með fræðslu og áróöri reynt aö skapa hugarfar andstætt vímuefnanotkun, einkum meðal unglinga. Þeir hafa frætt skólanemendur og kennara. Þeir hafa stutt lögreglu og tollgæslu, með- al annars meö því aö gefa þeim þjálf- aöa hasshunda og tækjabúnaö til aö auövelda leit aö fíkniefnum. Norskir lionsmenn hafa einnig komiö á fót at- hvörfum fyrir eiturlyf jasjúklinga. Islenskir lionsmenn ætla aö byrja á því aö koma á tengslum lionsklúbb- anna viö skólana í iandinu. Þeir stefna aö því aö kosta einn kennara frá hverjum skóla, hiö fæsta, á nám- skeið varöandi vímuefnamál. Enn- fremur hyggjast lionsmenn styrkja skólana með kennslugögnum, sam- kvæmt upplýsingum sem DV fékk frá Ágústi Ármann, kynningarstjóra lionshreyfingarinnar. Lionshreyfingin notar sérstakt merki í baráttunni gegn vímuefna- notkun. Merkiö er tveir túlípanar, annar rauöur og ferskur en hinn grár og visinn. Til aö styrkja baráttuna hefur komið til tals aö hafa árlegan lions- dag aö vori og selja þá túlípana eins og Norðmenn gera. -KMU. Lionshreyfingin á Islandi hefur ákveöiö aö gera baráttuna gegn notkun vímuefna að einu af sínum meginverkefnum. Baráttuná hófu lionsmenn meö vel heppnaöri náms- stefnu í Garðabæ á laugardag. Hver hinna 90 lionsklúbba hérlend- is hefur skipaö vímuefnavarnarfull- trúa. Um 80 þeirra mættu til ráö- stefnunnar um helgina til aö kynnast viðfangsefninu af sérfróöum mönn- um. Sérstakur gestur og fyrirlesari var Diplómatískur dónaskapur Utanrikisráðherra Sovétríkjanna sýndi Islendingum þá vinsemd aö millilenda þotunni sinni á Keflavík- urflugvclli í síöustu viku. Ráðherr- ann var á heimleið yfir hafiö og haföi viökomu í ráöherrabústaðnum viö Tjörnina í þrjá tíma. Sévardnadze heitir hann, og þaö var mikil mildi aö Geir Hallgrímsson var búinn aö læra að bera nafnið fram áöur en Sovét- maðurinn kom til landsins, eins og við heyrðum í útvarpsfréttum. Sé- vardnadze mælir ekki á erlendar tungur, sem er sennilega ástæðan fyrir því að hann varð fyrir vaiinu sem utanrikisráðherra. Þá geta eft- irlitsmenn KGB túlkað hvert orð hans og túlkað þaö sem þeim sýnist. Ráðherrann talar þá ekki af sér á raeðan, enda er það höfuðviðfangs- efnið í utanríkismálum aö tala ekki af sér. Geir Hallgrimsson og Halldór Ás- grímsson tóku á móti hinura tigna gesti frá Sovét og var það heppilegt að Steingrímur var þar hvergi nærri. Hann á það til að tala af sér, jafnvel þótt túlkar séu annars vegar. Is- lensku ráöherrarnir létu í ljós ánægju með hvað Sévardnadze leit góðlátlega út. Að minnsta kosti sáu þeir ástæðu til að geta þess sérstak- lega. Við hverju bjuggust þeir? Ein- hverjum Frankenstein? Og af því að Sévardnadze var ekki eins i útliti og Frankenstein og virtist maður eins og við hin fóru fram vin- gjarnlegar viðræður í ráöherrabú- staðnum. Geir tók það einnig fram að það hefði verið gott að ræða við Sévardnadze í bilnum frá Keflavík og verður ekki dregin önnur áiyktun af þeim upplýsingum en sú að Geir hafi hingað til átt í vandræðum með að taia við gesti sína í bíl. Hins vegar hefur Sévardnadze ekkert látið uppi um það hvort honum hafi fundist gott að tala við Geir í þessari bílferð og enginn veit heldur hvað þeir töluðu um, nema túlkurinn. Nú, en þetta eru aukaatriði. Aðal- atriðið er að þegar Sévardnadze var kominn upp í flugvéi sína og tilbúinn til brottfarar henti það slys að rúss- neska vélin komst ekki á loft vegna umferðaröngþveitis fyrir ofan. Bandarískar orrustuþotur steyptu sér yfir flugvöilinn og gáfu þá skýr- ingu að þær væru að verða bensín- lausar. Nú má það vei vera að það sé hrein tilviljun að bensíntankar varnarliðs- ins tæmist rétt á meðan sovéski utan- ríkisráðherrann staldrar við á Vell- inum, en heldur er það óþægileg til- finning fyrir okkur mörlandana, sem verið er að verja, að hugsa til þess að varnarliðið verði að nauðlenda vegna bensínleysis þegar Rússarnir koma. Sem betur fer var þetta frið- samleg heimsókn hjá Sovétmannin- um, svo bensínleysið kom ekki að sök. En hvað næst, hugsa ábyrgir menn og kvíða bensínleysi vamar- liðsins þegar Rússarnir koma i al- vöra. Mikill diplómatískur taugatitring- ur hefur orðið út af þessari töf, sem upphaflega er rakin til þess að komu utanríkisráðherrans til Keflavikur- flugvallar seinkaði. Sennilega stafar sú seinkun af því hvað Geir fannst gaman að tala við Sévardnadze í bílnum, og allavega var töfin talin móðgun við hinn tigna erlenda gest. Að vísu hefur ekkert komið fram um að Rússarair hafi móðgast, en fjöld- inn allur hefur raóðgast fyrir þeirra hönd. tslendingar telja það dónaskap við gesti sína að orrustuflugvélar neiti að fljúga bensínlausar um há- loftln, þegar sovéski utanríkisráð- herrann er að hef ja sig til flugs. En kannske hafa Kanarnir ekki áttað sig á því hver var þaraa á ferðinni. Ekki vita þeir að Rússar séu góðlát- legir. Sévardnadze hefur útlitið á móti sér. Dagfari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.