Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1985, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1985, Blaðsíða 29
DV. MÁNUDAGUR 4. NOVEMBER1985. 29 Hann bauð upp á pitsur, hamborgara, kók og pylsur með öllu. Nú biða allir eftir að hann byrji að brasa aftur. -JGH Kokkurinn í Grímsey — hættur að brasa íbili Þetta er kokkurinn í Grímsey. Hann eldaði í fyrrasumar, en ekkert það síðasta. Sjómönnum fannst það slæmt. Hans var sárt saknaö. Hann er þó enn á sínum staö. Þetta er listakokkur, málaður af enskum matreiðslumanni, Peter Johnson, sem býr í eyjunni. Sá enski er kallaður Pétur og hann rak í hús- inu skyndibitastað í félagi við Haf- liöa Guömundsson. Þeir nefndu staðinn Pólargrill. Boðið var upp á pitsur, hamborgara, samlokur, kók, ís, pylsur og allt sem borðað er í skyndi. Húsiö Nýborg á sér annars góða sögu. Það er leifar frá síldarævintýr- inu. Söltunarstöðin hét Noröurborg, hús verkstjórans var þá kallaö Ný- borg. Á veturna hefur það mest verið notað af vertíðarfólki sem verbúð. Nú er Nýborg notað sem íbúðar- hús. Kokkurinn verndar það. -JGH Átta fiskiðnaðarfyrirtæki með útflutningsátak: FISKRÉTTIR Á EVRÓPUMARKAÐ Fiskréttaframleiðsla er að ná fót- festu hér innanlands. Þannig fæst mun hærra verð fyrir fiskinn, jafnt innan- sem utanlands. Nú hafa átta fyrirtæki stofnað útflutningshóp sem mun fram- leiða undir sameiginlegu merki, fyrst á innlendan markað og markaði í Mið- Evrópu, Svíþjóð og Finnlandi. Utflutningshópurinn er stofnaður að frumkvæði Utflutningsmiðstöðvar iðn- aöarins og fær fyrirgreiðslu Iönlána- sjóðs og aðstoð Fiskimálasjóös. Mark- aðsstjóri verður Ernst Hemmingsen hagfræðingur. I hópnum eru Bæjarút- gerð Reykjavíkur, Fiskgæöi hf. og Humall í Reykjavík, Rækjuvinnslan hf. á Skagaströnd, Rækjunes, Björgvin hf. í Stykkishólmi, Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað, Sæver hf. í Olafsfirði og Verktakar hf. á Reyðarfirði. HERB Aðeins aldraðir, ör- yrkjar og námsmenn —fá lán samkvæmt nýjum reglum húsnæðisstjórnar Nýjar reglur, sem húsnæðisstjóm hefur samþykkt, um lánveitingar tU fé- lagslegra íbúða gera aðeins ráð fyrir að námsmenn, aldraðir og öryrkjar geti hagnýtt sér slíkar lánveitingar. Þessar reglur eru samdar í kjölfar þess að Búseti ætlar að hefja bygging- arframkvæmdir. Þessar reglur eru almennar reglur fyrir þá sem hyggjast byggja leigu- ibúöir á félagslegum grundvelli. Hvergi er minnst á Búseta enda ekkert slikt fyrirbrigði til í lögum. Þessar reglur eru því í samræmi við gildandi lög þar sem gert er ráð fyrir að náms- menn, aldraöir og öryrkjar geti byggt félagslegar íbúðir. Um 30—40 prósent félagsmanna Búseta uppfylla þessi skilyrði. Líklegt er talið að Búseti hefji bygg- ingarframkvæmdir í von um að lög um búseturétt verði samþykkt á Alþingi. Alexander Stefánsson sagði á Alþingi að slíkt frumvarpi yrði lagt fram innan skamms. APH „Vertu sterkur, strákur. ” „ Vertu ungur, Adam. ” Vaxtarrækt Atlas, kr. 200, - Vaxtarrœkt Jowett’s, 4 bœkur, kr. 100 eintakið. Ef þú sendir greiðslu með pöntun sendum við bækurnar um hæl, annars í póstkröfu. Líkamsræktin, - pósthólf 4205, 104 Reykjavík. Að lenda við heimskautsbaug Þessi mynd er tekin viö heimskauts- til 40 metra norður af brautinni. Flug- baug. Við erum að lenda, úr norðri. völlurinn í Grímsey er nyrsti flugvöll- Fyrir framan okkur er flugbrautin í ur á Islandi. Bæriiui til hægri á mynd- Grímsey, 800 metra löng. En norður- inni, Básar, er nyrsti bær á Islandi. heimskautsbugur liggur einmitt um 30 -JGH Gömlu góðu lögin á nýrri hljómplötu 17 úrvals sönglög M.a. í fyrsta sinn ég sá þig, Ég er hinn frjálsi förusveinn, Svanasöngur á heiði, Þú komst 'íhlaðið, Enn syngur vornóttin, Eg vildi að ung ég væri rós. Útgefandi: FERMATA Dreifing: FÁLKINN ^EPEK ^PEK ^ÍSePEK ^EPEK ÍePEK ^EPEK ^EI %EI Ýmsa aukahluti — Kastarar Dráttarkróka Dráttartóg Áttavita Hallamæla Driflokur Fjaðrakitt Togspil 4,5 tonn og ffl. %EPEK HÖFUM FENGIQ FRÁ Jeppadekk — Fun Country 31 tomma Fun Country 33 tommur Fun Country 36 tommur Mudder 38,5 tommur Radial 33 tommur ^EPEK' BAJA-PROVEN® PRODUCTS Íepek ^epek ^epek MIKIÐ ÚRVAL AF. - Rancho fjaðrir fyrir — Blazer, GMC Scout II Wagoneer Toyota Hilux Jeep CJ5 8 CJ7 &fl. Felgur — 15x8 5gata 15 x 10 6 gata 15x10 5gata bæði hvitar & 15x8 6 gata krómaðar ðS uraosis Skemmuvegur 22. 200 Kópavogur — Sími: 73287. EK^EPEK ^EPEK-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.