Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1985, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1985, Blaðsíða 28
28 DV. MÁNUDAGUR 4. NOVEMBER1985. jþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Víkingurinn Olsen átti stórleik á Old Trafford — skoraði bæðí mörk Man. Utd. í sigrinum á Coventry. lan Rush skoraði sigurmark Liverpool gegn Leicester sex mín. fyrir leikslok Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni, frétta- manni DV í Englandi: Danski víkingurinn, Jesper Olsen, eins og ensku blöðin kalla hann, átti stórleik þegar Man. Utd. vann öruggan slgur á Coventry á laugardag að við- stöddum 46.748 áborfendur á Old Traf- ford, skoraði bæði mörk United. Man. Utd. lék vel þó það væri án fimm lands- liðsmanna, sem eiga við meiðsli að striða, og ungur strákur, Billy Garton, iék sem hægri bakvörður. Það var aðelns frábær markvarsla Steve Ogri- zovic, fyrrum markvarðar Liverpool, sem kom í veg fyrir miklu stærra tap. Tvisvar varði bann mjög vel frá Mark Hughes, einnig frá Barnes og McGrath. Lítill sóknarþungi hjá Coventry sem var án hættulegustu sóknarmanna sinna, Terry Gibson og Cyrille Regis. Olsen skoraði bæði mörkin í fyrri hálfleik, það fyrra á 18. mín. eftir að Hughes hafði leikiö á fjóra mótherja. Síðan gefið á Olsen og hann fékk knött- inn af varnarmanni. Eftirleikurinn auðveldur og undir lok hálfleiksins skoraði Olsen aftur eftir góðan undir- búning Barnes. Liverpool lenti að venju í ströggli með Leicester en tókst þó aö hala sigur í land þegar Ian Rush skoraði sex min. fyrir leikslok. Heldur ódýrt mark eftir mikla þvögu í vítateig. Kenny Dalglish setti sjálfan sig úr liði Liverpool og hefur sennilega lengi iðrast þess. Paul URSLIT Úrslit í ensku knattspyrnunni 1. deild Arsenal—Man City 2—0 Aston Villa—Oxford 2—0 Ipswich—Chelsea 0—2 Liverpool—Leicester 1—0 Luton—Birmingham 2—0 Man. Utd—Coventry 2—0 Newcastle—Watford 1—1 QPR—Sheff. Wed. 1—1 Soutbampton—Tottenham 1—0 West Ham—Everton 2—1 2. deild Barnsley—Oldham 1—0 Bradford—C. Palace 1—0 Brighton—Norwich 1—1 Charlton—Shrewsbury 4—1 Fulham—Sunderland 1—2 Grimsby—Millwall 5—1 Leeds—Portsmouth 2—1 Middlesbro—Blackburn 0—0 Sheff.Utd—Hull 8-1 Stoke—Huddersfield 3—0 3. deild Bolton—Bournemouth 3—0 BristolRov—York 0—1 Doncaster—Bristol C. 1—1 Lincoln—Blackpool 0—3 Newport—Gillingham 1—1 Plymouth—Chesterfield 0—0 Reading—Wigan 1—0 Rotherham—Derby 1—1 Swansea—Bury 1—0 Walsall—Notts Co. 0—0 Wolves—Darlington 2—1 4. deild Burnley—Southend 1—3 Chester—Aldershot 1—0 Crewe—Hallfax 2—2 Hartlepool—Mansfield 1—1 Hereford—Colchester 2—0 Northampton—Scunthorpe 2—2 Peterbro—Exeter 1—1 Preston—Port Vale 0—1 Rochdale—Wrexham 3—2 Stockport—Cambridge 3—1 Swlndon—Tranmere 2—1 Torquay—Orient 2—2 Walsh lék í hans stað og greinilegt að þeir Rush og Walsh ná ekki saman sem miðherjar. Liverpool sótti miklu meira í leiknum en Ian Andrews átti snjallan leik í marki Leicester, varði á hreint ótrúlegan hátt frá Mölby. Kendali reiður Howard Kendall, stjóri meistara Everton, var reiöur eftir tap gegn West Ham. „Þegar Frank McAvennie skoraöi jöfnunarmark West Ham virtist hann rangstæður. Hitt mark hans var mikið heppnismark, sem hver sem er hefði getað skorað,” sagöi Kendall. Hins vegar sagði McAvennie: „Eg held ég hafi ekki verið rangstæður en ég viðurkenni að ég var heppinn í síðara markinu.” — Hann hafði þó leikið á Ratcliffe og van der Hauwe, síðan spyrnt og knötturinn lenti í fæti Southall og fór í markið. Everton náði forustu í fyrri hálfleik með marki Trevor Steven en í síðari hálfleik skoraöi McAvennie bæði mörk sín. Hann var keyptur frá St. Mirren í sumar fyrir 340 þúsund sterlingspund. Var nýlega valinn í skoska landsliðs- hópinn. Er markhæstur í 1. deild með 15 mörk, 14 í 1. deild. Það fór þó ekki milli mála að West Ham var betra liðið í leiknum og verðskuldaði sigurinn. Læti í Newcastle Mikil læti brutust út í Newcastle þegar ákaflega lélegur dómari, Trelford Mills, dæmdi mark af rétt í lokin, sem John Riley skoraði fyrir Newcastle. Hann varð að fara í lögreglufylgd af leikvellinum. Áhorf- endur í Newcastle eru allt annað en Jesper Olsen — frábær gegn Coventry. Hann er nú annar markhæsti leikmaður Man. Utd. Hefur skorað fimm mörk. hrifnir af dómgæslu hans. Fyrir nokkru dæmdi hann tvö mörk af New- castle í leik í deildabikarnum. I leikn- um náði Colin West forustu fyrir West Frank MacDougall fjögur—Celtic eitt — þegar Aberdeen vann Celtic á laugardag Miðherji Aberdeen, Frank MacDougall, var heldur betur i stuði þegar meistarar Aberdeen fengu Celtic í heimsókn á laugardag, skoraði öll fjögur mörk meistaranna í 4—1 sigrinum á Celtic eftir 1—1 i hálfleik. Frank skoraði fyrsta markið í leiknum á 27. mín. en David Provan jafnaði á lokaminútu i fyrri hálfleik. Á 48. min. skoraði Frank annað mark sitt og fullkomnaði þrennuna á 55. min. eftir skyndiupphlaup en áður hafði Celtic sótt mjög. Fjórða markið skoraöi hann á 64. mín. og Aberdeen hefur nú tveggja stiga forustu í úrvals- deildinni, auk þess miklu betri marka- mun. Urslit á laugardag. Aberdeen—Celtic 4-1 Dundee Utd—Hearts 1-1 Hibernian—Dundee '2-1 Motherwell—St. Mirren 3-1 Rangers—Clydebank 0-0 Staðan er nú þannig. Aberdeen 13 7 4 2 27- -12 18 Celtic 12 7 2 3 20-13 16 Rangers 13 6 3 4 18- -12 15 St. Mirren 13 6 1 6 20-22 13 Hearts 13 5 3 5 16- -19 13 Dundee 13 6 1 6 15- -18 13 Dundee Utd. 12 4 4 4 15- -13 12 Hibernian 13 5 2 6 21- -24 12 Clydebank 13 3 3 7 12- -20 9 Motherwell 13 2 3 8 12- -23 7 -hsím. Heldur lélegt á Loftus Road — Sigurður Jónsson lék ekki með Sheff. Wed. Frá Sigurbirni Aðalsteinssyni frétta- manni DV i Englandi: Eg brá mér á Loftus Road á laugar- dag i von um að sjá Sigurð Jónsson í leik með Sheff. Wed. Vonbrigði, því Siggi lék ekki með, var heldur ekki varamaður og stjóri Sheffield-liðsins hélt sömu framvörðum þrátt fyrir tapið í Swindon í deildabikarnum. Leikurinn í heild var heldur lélegur — eini leikmaðurinn, sem einhvern tilþrif sýndi, var John Byrne, miðherji QPR. Hann bar af á vellinum eins og gull af eiri. Lék oft þunglamalega vöm Sheff. Wed. grátt en það gaf þó QPR ekki mörk. Besta færi Lundúnaliðsins í fyrri hálfleik kom á 43. mín. Fereday geystist upp, komst í færi en Hodge varði frá honum. Byrne náði knettinum en aftur varði Hodge. Hélt ekki knett- inum og enn var Byrne á ferðinni en skaut framhjá. Eina færi Sheff. Wed í fyrri hálfleik fékk Lee Chapman, spyrnti yfir af sex metra færi. Síðari hálfleikurinn var þraut- leiðinlegur. Glynn Snoddin, sem keyptur var frá Doncaster í sumar, skoraöi sitt fyrsta mark fyrir Sheffield-liðið á 78. mín. eftir fyrir- gjöf Andy Blair. Spyrnti knettinum framhjá mörgum varnarmönnum í netið. Það var mjög ósanngjarnt að Sheff. Wed. skyldi ná forustu en hún stóð ekki lengi. Á 80. min. jafnaði Robbie James með hörkuskoti á 25 metra færi. Hann hafði komiö inn sem varamaður á 20. mín. þegar Waddock slasaðist í tæklingu við Blair. Farið meö hann beint á sjúkrahús — skorinn á hné í gær- kvöld og mun sennilega ekki leika meira á keppnistímabilinu. -hsim. Ham á 29. mín. en Paul Gascoigne tókst að jafna fyrir heimaliðið í síðari hálfleik. „Þetta er lægsti punkturinn á stjóra- ferli mínum,” sagöi Peter Shreevs, stjóri Tottenham, eftir að lið hans hafði tapað í Southampton, 1—0. Ray Clemence kom í veg fyrir miklu stærra tap með frábærri markvörslu. David Puckett skoraði eina mark leiksins og Tottenham lék með 10 leikmönnum lokakafla leiksins. Osvaldo Ardiles varð að fara af velli, meiddur, en hann hafði komið í stað Galvin sem vara- máður þegar Galvin meiddist. Skyndimörk Chelsea Chelsea byr jaði með miklum látum í Ipswich, skoraði tvívegis á fyrstu 10 mínútunum. Fyrst Dixon á þriðju mín., síðan Speedie. Fleiri urðu mörkin ekki í leiknum. Ipswich fór illa með færi, einkum Brennan, og hefði átt skilið stig úr leiknum. I síöustu níu leikjunum hefur Ipswich aöeins hlotið eitt stig. Arsenal sigraði Man. City 1—0 í afar slökum leik á Highbury að viðstöddum 22.600 áhorfendum. Paul Davis skoraði eina mark leiksins á 70. mín. eftir að Woodcock hafði leikið Charlie Nicholas frían! Spyrna Kalla lenti hins vegar í varnarmanni og knötturinn fór beint til Davies. Aston Villa vann öruggan sigur á Oxford á Villa Park með mörkum Allan Evans, víti, og Simon Steinrod. Sama er að segja um sigur Luton á Birmingham. Brian Stein og Mick Harford skoruðu. Portsmouth féll Portsmouth tapaöi öðrum leik sínum á keppnistímabilinu, féll í Leeds, þar sem Leeds lék sinn fyrsta heimaleik í 2. deild undir stjóm Billy Bremner. Nicky Morgan skoraði mark Ports- mouth á 6. mín. en í síðari hálfleik skoraöi 18 ára strákur, Lyndon Simmons, minnsti maöurinn á vellinum, aðeins rúmlega 1,60 m, bæði mörk Leeds. Fyrst úr mjög umdeildri vítaspyrnu. -bsím. STAÐAN l.DEILD Man. Utd. 15 13 2 0 36-6 41 Liverpool 15 9 4 2 32- -16 31 Sheff.Wed. 15 8 4 3 24- -23 28 Chelsea 15 8 3 4 21- -15 27 Arsenal 15 8 3 4 19- -15 27 WestHam 15 7 5 3 26- -17 26 Everton 15 7 3 5 27- -18 24 Newcastle 15 6 5 4 23- -23 23 Nott. For. 14 7 1 6 24- -21 22 Luton 15 5 6 4 26- -19 21 Watford 15 6 3 6 30- -28 21 Tottenham 14 6 2 6 27- -19 20 QPR 15 6 2 7 16- -21 20 Coventry 15 4 5 6 21- -21 17 A. Villa 15 4 5 6 20- -21 17 Southampton 15 4 5 6 17- -21 17 Birmingham 14 5 1 8 11- -21 16 Oxford 16 3 6 7 22- -31 15 Leicester 16 3 5 8 19- -32 14 Man. City 15 2 5 8 13- -24 11 Ipswich 15 2 2 11 7- -24 8 WBA 14 1 3 10 12- -36 6 2. DEILD Portsmouth 15 11 2 2 29-8 35 Charlton 14 8 3 3 28- -18 27 Oldham 15 8 3 4 25- -15 27 Sheff. Utd. 15 7 5 3 26- -18 26 Blackburn 15 7 5 3 17- -12 26 Norwich 15 7 4 4 27- -17 25 Wimbledon 14 7 4 3 13- -11 25 Brighton 15 6 4 5 24- -21 22 Barnsley 15 6 4 5 16- -13 22 C. Palace 15 6 3 6 20- -19 21 Leeds 15 5 5 5 18- -24 20 Grimsby 15 4 6 5 23- -20 18 Hull 15 4 6 5 22- -21 18 Huddersf. 15 4 6 5 20- -24 18 Sunderland 15 5 3 7 14- -22 18 Bradford 14 5 2 7 17- -22 17 Stoke 15 3 7 5 16- -17 16 Fulham 13 5 1 7 12- -14 16 Millwall 15 4 3 8 18- -27 15 Middlesbr. 15 2 6 7 7- -16 12 Shrewsbury 15 2 5 8 17- -26 11 Carlisle 14 1 3 10 13- -37 6

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.