Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1989, Side 8
8
LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1989.
Reynir að
endurheimta
kærustuna
unnið að nýrri sjónvarpsmynd
Unnið að lokaatriði myndarinnar. „Virkið" eða Grímsstaðir stendur tignar-
legt. En ætli það hafi fallið eða ekki?
Róbert Arnfinnsson leikur föður stúlkunnar en Ylfa Edelstein stúlkuna sem allt gengur út á. Hér reynir faðirinn
að varna piltunum tveimur inngöngu. Dóttirin fylgist með.
„Tveir ungir menn ákveða að fara
út úr bænum um miðja nótt. Dauða-
drukknir komast þeir í leigubíl og
er ferðinni heitið á Grímsstaði í
Borgarfirði. Ætlunin er að endur-
heimta fyrrverandi sambýhskonu
annars þeirra sem hefur flúið sam-
búðina og dvelur á býh föður síns.
Stúlkan hafði farið burt án nokkurra
skýringa og er það vinur þess hrygg-
brotna sem dregur hann með sér til
að sækja hana.“
Þetta gæti verið lýsing úr raun-
veruleikanum en um er að ræöa efni
kvikmyndar sem tökur hafa nýverið
farið fram á. Það er handritshöfund-
ur og leikstjóri myndarinnar, Ás-
grímur Sverrisson, sem lýsir efni
myndarinnar.
„Sagan fjallar svo um uppgjör á
milli alls þessa fólks. Leikurinn æsist
og spennan magnast en þetta er
hörku „drama“. Myndin er gerð af
kvikmyndafyrirtækinu Alvara í
samvinnu við Thule-film og TV í
Noregi og er ætluð fyrir sjónvarp.“
Myndatökur stóöu yfir í eina viku
nú í byijun júlí. Hress og samstilltur
25 manna hópur hélt til Borgarfjarö-
ar og vann dag og nótt.
„Þetta var frábær hópur. Þeir sem
tóku þátt í kvikmyndagerðinni eru
flestir einstaklingar sem ég hef
kynnst í gegnum starf mitt hjá Sjón-
varpinu og gamhr félagar sem hafa
verið að grúska í kvikmyndagerð í
gegnum árin,“ segir Ásgrímur. „Það
hafði geysisterk áhrif á okkur borg-
arbömin, sem þama vomm, að upp-
lifa náttúmna á þann hátt sem við
gerðum. Við unnum allan sólar-
hringinn en dagur og nótt rann næst-
um saman.“
Ásgrímur er ungur að ámm, 24 ára
gamall, en hefur verið á kafi í kvik-
myndagerð í mörg ár. Fyrstu kvik-
myndina gerði hann 13 ára gamah í
Lækjarskóla í Hafnarfirði. Síðan hef-
ur hann unnið við ýmiss konar aug-
lýsinga- og myndbandagerð. Síðast-
hðin tvö ár hefur Ásgrímur starfað
hjá Sjónvarpinu við gerð sjónvarps-
þátta. Af verkum hans fyrir sjónvarp
má nefna Steinamir tala, heimildar-
mynd um Guðjón Samúelsson, og er
mörgum eflaust í fersku minni
hressileg mynd sem hann geröi í
samstarfi við Káta pilta.
Þeir sem fara með aðalhlutverk í
þessari nýju mynd Ásgríms, sem-
hefur hlotið nafnið Virkið fellur, eru
Ylfa Edelstein, Þormar Þorkelsson,
Skúh Gautason og Róbert Amfinns-
son. Myndin verður hálfrar stundar
löng ogverður væntanlega tilbúin til
sýningar um næstu áramót.
-RóG.
Það eru ýmsar aðferðirnar sem notaðar eru viö kvikmyndaupptökur. Hér
er verið að taka upp upphafsatriði myndarinnar. Virkisfáni blasir við þegar
komið er að bæjarstæðinu. Fána hefur verið komið upp þar sem áður var
gömul mylla. Hér er leikið að táknum en fáninn er tákn virkisins.
Skúli Gautason, næstur á myndinni, leikur vin þess hryggbrotna. Þormar Þorkelsson er náunginn sem vill endurheimta sambýliskonuna. Hér leggja þeir
á ráöin um hvernig þeir eigi að ráðast til atlögu á bóndabæinn þar sem stúlkan dvelst hjá föður sínum.