Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1990, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1990, Blaðsíða 17
16 FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1990. FÖSTUDAGUR 4. MAÍ 1990. 25 Iþróttir Þrr heimsmeistarar á meðal keppenda á Evrópumeistaramótinu í kraftlyftingum í íþróttahúsi Vals Evrópumeistaramótiö í kraftlyftingum veröur háð um helgina í íþrótta- húsi Vals að Hlíðarenda og er þetta í fyrsta sinn sem slíkt mót er haldið hér á landi. Tíu ís- # Magnús Ver Magnusson hefur Evrópumeistaratitil að verja í Vals- heimilinu. lenskir kraftlyftingamenn taka þátt í mótinu en alls hafa um 75 keppendur tilkynnt þátttöku sina og þar á meðal eru þrír núverandi heimsmeistarar. Þaö eru þeir Jarmo Virtanen frá Finnlandi, sem keppir í 82,5 kg flokki, Vilmen frá Finnlandi, sem keppir í 125 kg flokki, og John Neighbor frá Bretlandi sem keppir í 110 kg flokki. • Magnús Ver Magnússon á Evr- ópumeistaratitil aö veija í 125 kg flokki en þar keppir heimsmeistar- inn Vilmen frá Finnlandi og verður fróðlegt að sjá hvort Magnús nái aö leggja heimsmeistarann að velli. Skúli Óskarsson, fyrrum heims- methafi, veröur á meðal keppenda og keppir hann í 75 kg flokki ásamt Kára Elíssyni sem ætlaði reyndar aö keppa í 67,5 kg flokki en honum tókst ekki að létta sig. „Það er búið að vera mikil vinna í kringum þetta mót en um leiö geysilega skemmtileg. Við áttum ekki von á þvi aö fá að halda þetta I mót þegar við sóttum um það en I þegar okkur barst það svar að við I heföum fengið mótið ákváðum við I aö gera okkar besta og ég vona að | það takist,“ sagöi Óskar Sigurpáls- son, formaöur Kraftlyftingasam- bands íslands. „Ég held að okkar möguleikar á I sigri á mótinu séu í 90 kg flokki en I þar keppir Jón Gunnarsson í 1251 kg flokki þar sem Magnús Verl keppir og í yfirþungarvigt þar sem | Hjaiti Árnason er á meöal kepp- enda. Og með góðum stuðningi| fólks eiga allir þessir kappar mögu- leika á verölaunasæti og ég skora | á fólk aö hvetja okkar menn ogl koma í íþróttahús Vals um helg- f ina,“ sagði Óskar. Davíö Oddsson mun setja mótiö I kl. 11 í dag og klukkustundu siöar I hefst keppni í 52 og 56 kg flokki. I Kl. 16 hefst keppni i 60 kg flokki I og kl. 20 hefst keppni í 67,5 kg| þyngdarflokki. -GH | Þessi kampakáti tennisleikari heitir Andrei Chesnokov og er Sovétmaður. Sové- skir tennisleikarar hafa ekki verið sigursælir á alþjóðlegum tennismót- um. Á því varð breyting á dögunum er Chesn- okov sigraði glæsilega á opna Monte Carlo mótinu i Mónakó. Chesnokov lék til úrslita gegn Thomas Muster frá Ástralíu og sigraði 7-5,6-3, og 6-3. Er þetta stærsti sigur Sovét- mannsins á tennisvell- inum til þessa og á myndinni fagnar hann sigrinum. Símamynd Reuter Sport- stúfar Tveir leikir fóru fram í fyrrakvöld í úrshta- /7 | keppni NBA-deildar- " innar í körfuknattleik. New York Knicks sigraði Boston, 102-99, í æsispennandi leik. Larry Bird átti möguleika aö jafna á síð- ustu sekúndunum en þriggja stiga skot hans geigaði. Bird var stigahæstur Boston leikmann- anna eins og oft áður og skoraði 31 stig en Patrick Ewing var stig- hæstur hjá NY Knicks með 33 stig og að auki hirti hann 19 frá- köst. Eftir þrjá leiki leiðir Boston, 2-1. Þá sigraði Phoenix lið Utah Jazz, 120-105, og er staðan, 2-1, fyrir Phoenix. Emil sigraði í haglabyssuskotfimi Liða og einstaklingskeppni í haglabyssuskotfimi var haldið á velli Skotfélagsins í Keflavík um síðustu helgi. í einstakhngs- keppninni sigraði Emil Kárason, Skotfélagi A-Skaftafellssýslu, hann fékk 88 stig af 100 möguleg- um. í öðru sæti varð Sigurður Gunnarsson, Skotfélagi Keflavík- ur, sem hlaut 82 stig. í þriðja sæti varð Einar Páh Garðarsson, Skotfélagi Keflavíkur, eftir bráðabana við Óskar Pál Sveins- son, Skotfélagi Hafnarfjarðar, en þeir fengu báðir 80 stig. Íþróttahátíð Grunnskóla Reykjavíkur1990 Það verður mikið um aö vera á íþróttasvæð- um borgarinnar í Laugardal í dag. Þá fer fram íþróttahátíð Grunnskóla Reykjavíkurborgar og munu keppnedur verða um 2000. Móts- setnig verður í Laugardalshöll kl. 13 en þar sýna unglingar úr Ár- manni fimleika og Reykjavíkur- meistarinn í „frístæl" sýnir dans. Síðan hefst dagskráin með hinum ýmsu íþróttagreinum auk þess verður leiktækjasvæði, hjólreiða- brautir og torfærubrautir ásamt mörgu öðru. • Guðmundur Torfason leikur varla með St. Mirren i lokaleiknum um helgina. „Hvfldinni feginn“ - segir Guðmundur Torfason hjá St. Mirren „Ég á ekki von á því að geta leikið síðasta leikinn í deildinni á morgun gegn Dundee Utd. vegna meiðsla aftan í læri sem ég hlaut á æfingu fyrr í vikunni,“ sagði Guðmund- ur Torfason hjá St. Mirren í samtali við DV í gær. „Þetta er búið að vera langt og strangt tímabil hjá okkur í vetur og ég er hvíldinni feginn enda hafa læknar liösins ráðlagt mér að taka mér gott frí og ná mér fullkomlega af meiðslunum. Mér hefur líkað mjög vel hjá St. Mirren og það þarf að vera mjög freistandi tilboð ef ég á að fara frá félaginu. Lið St Mirren hefur undanfarnar vikur verið með Vestur-Þjóðverjan Thomas Stickroth að láni frá Bayem Uerdingen og í síð- ustu viku skrifaði Stickroth undir tveggja ára samning við félagið, en hann leikur í stööu hægri tengiliðs. Þetta er mjög sterkur leikmaður og á eftir að styrkja liðið mik- ið. Það verða líklega 2-3 leikmenn keyptir fyrir næsta keppnistímabil og markið er sett hátt eða alla leið á toppinn,“ sagði Guðmundur Torfason, markahæsti leikmaður St. Mirren en hann skoraði 13 mörk á tímabilinu. -GH Robson velur 26 leikmenn Bobby Robson, lands- liðseinvaldur Eng- iands í knattspyrnu, hefur valið 26 leik- menn fyrir heimsmeistarakeppn- ina í knattspyrnu á ítaliu í sum- ar. Fjórir af þessum leikmönnum verða síðan að sitja heima þega landsliðið heldur til Ítlaíu. Hóp- urinn lítur þannig út: Peter Shil- ton, Chris Woods, Dave Seaman, Dave Bessant eru markverðir og aörir leikmenn, Gary Stevens, Paul Parker, Des Walker, Terry Butcher, Tony Adams, Mark Whright, Stuart Pearce, Tony Dorigo, Chris Waddle, David Roc- astle, Trevor Steven, Neil Webb, Bryan Robson, Paul Cascoigne, Steve McMahon, Steve Hodge, John Barnes, Peter Beardsley, Gary Lineker, Alan Smith, Steve Bull, David Platt. • Enska landsliðið leikur tvo landsleiki í þessum mánuði. 15. maí leikur liðið gegn Danmörku og gegn Uruguay viku seinna. Eftir þá leiki mun Robson gera uþp hug sinn en víst er aö mark- vörður, miðvörður, tengiliður og framherji munu hverfa úr lands- liðshópnum. íþróttir helgarinnar bls. 23 Sportstúfar • Golfklúbburinn Keilir mun standa fyrir golfnámskeiðum í sumar á félagssvæðinu á Hvaleyrarholti. Leiðbeinandi á nám- skeiðunum verður Arnar Már Ólafsson. Frekari upplýsingar eru gefnar í síma 53360 á daginn. • Kays-mótinu í golfi, sem átti að fara fram á Havaleyrarholtsvelli í Hafnarfirði um næstu helgi, hefur verið frestað um óákveðinn tíma. • Mikið veröur um að vera hjá íþrótta- félaginu Gerplu í Kópavogi. Dagurinn hefst með innanfélagsmóti í fimleikum í íþróttahúsinu Digranesi kl. 10 fyrir hádegi og er áætlað að það standi til kl. 17. Keppt verður í ýmsum getuflokkum (grunn- hópar, framhaldshópar og keppnishópar). Aðalfundur Gerplu verður haldinn sama dag í húsi félagsins að Skemmuvegi 6 og hefst kl. 17.30. Þessum viðburðaríka degi lýkur síðan með árshátíð, sem haldin verður í sal Skagfirðingafélagsins að Síö- umúla 35 og verður húsiö opnað kl. 19.30. • Haukar í Hafnarfirði taka í dag fyrstu skóflustunguna að framtíðarsvæði félags- ins á Ásvöllum. Allir félagar og stuðnings- menn Hauka eru boðnir velkomnir og hefst athöfnin kl. 18. • Bordeaux féll í fyrrakvöld út úr frönsku bikarkeppninni í knattspyrnu þegar hðið beið lægri hlut gegn Racing Paris i vítaspyrnukeppni. Liðin voru jöfn, 1-1, í lok framlengingar. Marseilles vann Cannes, 0-3, og skoraði öll mörkin seint í framlengingu. Montpelher vann Avignon, 0-1, og St. Etienne sigraði Mulhouse í víta- spyrnukeppni eftir 2-2jafntefli. Sigurliðin fjögur eru komin í undanúrslit. Hennundur Sigmundsson, DV, Noregi: Brann, lið Teits og Ólafs Þórðarsona, verður án fyrirliða síns, landsliðsmanns- ins Pers Egils Ahlsens, næstu ijórar vik- urnar. "Hann meiddist á hné í leiknum gegn Strömgodset í fyrstu umferð norsku 1. deildarinnar í knattspyrnu og það er mikið 'áfall fyrir Brann. Ahlsen er leik- stjórnandi hðsins og Teitur hefur byggt spilið upp í kringum hann. Brann mætir Kongsvinger í 2. umferð á heimavelli sín- um í Bergen um helgina en bæði lið unnu leiki sína í fyrstu umferðinni. Hermundur Sigmundsson, DV, Noregi: Elverum, lið Þóris og Gríms Hergeirs- sona frá Selfossi, tryggði sér á dögunum sæti í 2. dehd norska handboltans. Elver- um háði harða keppni við Lillehammer um efsta sætið í sínum riðh, og hafði betur með einu stigi þegar upp var staðið en hð- in skildu jöfn í síöustu umferðinni. Þórir hefur verið endurráðinn þjálfari Elverum fyrir næsta tímabh og Grímur mun halda áfram að leika með liðinu. Gústaf heldur áfram með Fram Gústaf Björnsson verður áfram þjálfari karlaliðs Fram í handknattleik sem leikur á ný í 1. deildinni næsta vetur eftir eins árs dvöl í 2. dehd. Þetta verður þriðja tímabil Gústafs meö liðið, hann stjórnaði Frömurum þegar þeir féhu fyrir tveimur árum og leiddi þá síðan til yfirburðasigurs í 2. deildinni í vetur. _______________________________________________________________íþróttir Sovéski handboltaþjálfarinn Boris Akbachev hjá UBK í DV-viðtali: „Bogdan leit á sig sem kóng hér á íslandi“ - „Þorbergur á eingöngu að hugsa um HM á íslandi 1995,“ segir Boris Það er greinilegt að Boris Akbac- hev hefur mjög ákveðnar skoðanir á þeim málum hér á landi og er ekki alls kostar ánægður með gang mála hjá íslenskum liðum. Hann segir: „Það er gífurlega mikil vinna að þjálfa handknattlkeikshð og í flestum tilfellum kemst aðalþjálf- arinn varla yfir sitt verk. Liðin þurfa því að ráða aðstoðarþjálfara. Tími liðsstjóra, sem hugsa um vatnsbrúsana, -er einfaldlega lið- inn.“ „Mér líður mjög vel hér á íslandi“ Boris heldur áfram: „Mér líöur ' mjög vel hér á íslandi. Konan er hér hjá mér en synir okkar tveir búa með íjölskyldum sínum í Moskvu. Ég vona að ég geti komiö góðum málum th leiðar fyrir ís- lenskan handknattleik. Ég hugsa lítið um peninga. Hjá mér er vinn- an númer eitt og ég legg mig allan fram um að skila mínu verki vel. Ég er bjartsýnn og dásamlegt veður eins og er hér í Reykjavík í dag gerir mann ánægðan með lífið,“ sagði þessi knái en smái Sovétmað- ur í viðtahnu við DV í gær. -SK „Þorbergur á eingöngu að hugsa um HM á lslandi“ - Nú hefur þorbergur Aðalsteins- son veriö ráðinn landsliðsþjálfari og eftirmaður Bogdans. Hvernig líst þér á þá ráðningu? „Ég hef ekki lagt það í vana minn að ræöa mikið í fjölmiðlum um aðra þjálfara en auðvitað hef ég mínar eigin skoðanir. Þetta verður án efa mjög erfitt hjá Þorbergi. Hann er ungur og hefur litla reynslu að baki sem þjálfari. Það er hins vegar staðreynd að hann var ráðinn. Ég tel að Þorbergur eigi að einbeita sér alfarið að heimsmeistarakeppninni árið 1995. Hann á umfram allt að nota yngri leikmenn og hvíla þá eldri. Hann á að mínu mati ekki að hugsa um þá leikmenn sem leika erlendis í dag og veröa komnir yfir besta aldur handknattleiksmanna árið 1995. Nú er tími til uppbyggingar hjá ís- lenska landsliðinu." „Það þarfaðfaraað yngja Valsliðið upp“ - Nú varst þú hér á árum áður þjálfari hjá Val. Ert þú sáttur við frammistöðu Valsliðsins á nýaf- stöðnu keppnistímabili? „Varðandi Valsliðið vil ég aðeins segja það að það er kominn tími fyrir Þorbjörn Jensson að fara aö huga að yngri leikmönnunum hjá Val. Hvað gerist hjá Val ef til dæm- is Jakob Sigurðsson eða Valdimar Grímsson hverfa skyndilega á braut? Það sem þá mun koma í ljós er einfaldlega það að yngri leik- menn eru ekki til staðar enn sem • Boris Akbachev, sovéski handboltaþjálfarinn hjá Breiðabliki i Kópavogi og fyrrverandi landsliðsþjálfari Sovétríkjanna, hefur ákveðnar skoðanir á ýmsum málum varðandi handknattleikinn hér á landi eins og fram kemur i viðtalinu hér á síðunni. Hér sést Boris Akbachev virða fyrir sér DV i gær. DV-mynd GVA „Lið Breiðabliks er mjög ungt í dag en í því eru margir efnilegir leikmenn. Liðið verður þó ekki gott nema með mikilli vinnu og þrot- lausum æfingum. Við munum æfa fimm sinnum í viku í allt sumar. Þetta hefst ekki öðruvísi.“ „Bogdan leit á sig sem kóng á íslandi“ - Nú hefur Bogdan Kowalczyk látið af störfum landshðsþjálfara. Er það rétt að hann hafi leitað ráða hjá þér og haft mikið samband við þig er hann þjálfaði landsliðið? „Já. Bogdan hafði nokkuð mikið samband við mig. Ég var oft ekki sammála því sem hann var að gera en þó stundum. Bogdan vann öðru- vísi en ég vil að þjálfarar vinni. Hann ráðfærði sig ekki mikið við aðra menn. Hann var einn síns liðs og leit á sig sem kóng í starfinu hér á íslandi," segir Boris Akbachev. komið er. Þegar ég var þjálfari hjá Val hóf ég strax uppbyggingu og tók mjög unga leikmenn fyrir. Þar get ég nefnt Jakob, Valdimar, Júl- íus, Geir og fleiri. Þeir voru margir sem spurðu á sínum tíma hvað í ósköpunum þessir leikmenn væru að gera í meistaraflokkshópnum. Ég tel hins vegar að ég hafi farið rétt að. Nú þarf Þorbjörn Jensson að fara að gefa yngri leikmönnun- um tækifæri og hann veit það. Ég veit að það tekur í þaö minnsta 3 ár að gera ungan leikmann tilbúinn fyrir 1. deildar keppni.“ „Breyttfyrirkomulag er alveg bráðnauðsynlegt“ - Nú hafa margir látið í ljós þá skoðun að ef íslenskur handknatt- leikur á að halda stöðu sinni í fram- tíðinni þá verði að breyta keppnis- fyrirkomulaginu i 1. dehd og fjölga leikjum. Hver er þín skoöun? „Eg er sammála því að það þurfi að gera breytingar ogfjölga leikjum mikiö. Það nær engri átt að leika aðeins einn leik á viku. Mín hug- mynd er að í 1. deild ættu að vera 12 lið. Liðin myndu leika tvöfalda umferð eða 22 leiki á lið. Þegar hér væri komið sögu kepptu 6 efstu lið- in sér og 6 neðstu liðin sér, tvöfalda umferð eða 10 leiki á liö. Loks myndu 2 efstu liðin leika 2 eða 3 leiki um meistaratithinn ef bhið á milli þeirra væri til að mynda inn- an við 5 stig en ef það væri meira væri efsta liðið einfaldlega meist- ari.“ „Tími liðsstjóranna er einfaldlega liðinn“ Við snúum okkur aftur að þjálfun. „Eg hef ákveðnar skoðanir varðandi handboltann á íslandi, bæöi varðandi þjálfara og leikmenn. Ef íslenskur handbolti á ekki að dala, og þar meö árangur landsliðsins, verða þeir menn sem ráða ferð- inni að hugsa meira til framtíðarinnar," segir sovéski þjálfarinn Boris Akbachev í viðtali við DV. Boris er mjög þekktur þjálfari í heimalandi sínu. Hann varð sovéskur meistari með herliði CSKA Moskva árið 1956 en þá var fyrst keppt um sovéska meistaratitilinn í handknattleik. Eftir að ferlinum inni á vellinum lauk hóf Boris að þjálfa og árið 1967 var hann ráðinn landsliðsþjálfari Sovétríkjanna. Var hann með landsliðiö til ársins 1970. Aftur tók hann við stjórninni hjá sovéska liðinu árið 1971 og var landsliösþjálfari til ársins 1974. Boris Akbachev hefur gert þriggja ára samning við 2. deildar lið Breiðabliks og hlýtur vera þessa snjalla þjálfara að vera Blikum mikil hvatning. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.