Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1994, Qupperneq 6
6
LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 1994
Útlönd
íbúar i bænum Rabaul á eyjunni Nýja-Bretlandi við Papúa Nýju-Gíneu hafa mátt horfa upp á lögregluna stela eigum þeirra. Kröftug eldgos eru i fjöllum
beggja vegna bæjarins og hafa 60 þúsund manns lagt á flótta. Þykkt öskulag hefur lagst yfir bæinn og eru nú um 70% húsa hrunin. Herlið hefur nú verið sent
til Rabaul til að koma í veg fyrir gripdeildir þar. Á myndinni má sjá lögregluþjón á hlaupum með stolið útvarp. Simamynd Reuter
Yfir sextíu þúsund manns á flótta undan einu versta eldgosi sögunnar:
Lögregla stelur líka
úr rústum húsanna
- gosið 1 Vestmannaeyj um var eins og sýnishom af gosinu á Papúa Nýju-Gíneu
„Við vitum að sumir eru að stela
sér mat en þeir eru líka margir sem
ætla sér að græða á hörmungun-
um,“ segir yfirmaöur almannavarna
á Papúa Nýju-Gíneu. Ekki er nóg að
íbúar í Rabaul á eyjunni Nýja-Bret-
landi hafl orðið að flýja heimili sín
heldur leggjast þjófar á það sem eftir
er og stela öllu steini léttara.
Löggæsla var efld í bænum eftir
að þjófamir fóru á kreik en nú er svo
komið að lögreglan hefur líka orðiö
uppvis að þjófnuðum. Því hefur verið
gripið til þess ráðs aö senda hermenn
til bæjarins í von um að þeir geti
stöðvað óöldina þar.
Gosið hefur nú staðið á aðra viku
og eru um 70% húsa í Rabaul hrun-
in. Eldar eru uppi í tveimur eldfjöll-
um sitt hvorum megin við bæinn.
Öskufall er mikið og stöðugt og hafa
að minnsta kosti 60 þúsund manns
lagt á flótta undan hörmungunum.
Nokkrir hafa þegar látist en engin
leiö er að henda reiður á hve
mannskaðinn er mikill. Eignatjón er
gífurlegt og er talið að langur tími
líði áður en líf í Rabaul kemst í sama
Rabaul
Nýja-írland
Jftland ^
KÓRAL-
HAFIÐ
horf og áður, jafnvel þótt gosinu ljúki
á næstu dögum. Nú þegar er öskulag-
ið í bænum orðið á annan metra að
þykkt og sligast húsin undan farginu.
Vitað er að 100 manns eru stranda-
glópar á eyju skammt undan strönd-
inni. Engin leið hefur fundist til að
bjarga fólkinu úr prísundinni og er
óvíst um afdrif þess.
Matur er fluttur með flugvélum til
Rabaul dag hvern en illa gengur að
koma honum til fólks á flótta. Endar
því mikið af birgðunum í höndum
ræningja. Reuter
Kaffið
áuppleið
Kaffi á erlendum mörkuðum er aft-
ur aö hækka í verði eftir nokkuð
stöðugt verð undanfarið. Kaffipund-
ið nálgast aftur 200 cent. Sömuleiðis
er sykur á uppleið.
Bensínverð í Rotterdam hefur
ýmist staðið í stað í vikunni eða
hækkað lítillega. Helst að 92 okt.
bensín hafl hækkað. Hins vegar hef-
ur hráolían hækkað um 6,5% á einni
viku í London, seldist á 16,55 dollara
tunnan sl. fimmtudag.
Hlutabréfaverð í helstu kauphöll-
um heims er almennt lægra en fyrir
viku. í Wall Street er orðrómur uppi
um að vextir hækki í næstu viku.
Það hafði í fór með sér lækkun á Dow
Jones hlutabréfavísitölunni sl.
fimmtudag. Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis
2200
2150
|: 8000 9668,14
J J Á S
20
10, $/ ■ tunna : '
16,SS
J J Á S
Stuttarfréttir dv
Rúhlan á fljúgandi ferð
Gengi rússnesku rúblunnar
hækkar nú stöðugt eftir að hafa
náð áður óþekktu lágmarki i gær.
Skammar herforingjana
Christopher,
utanríkisráð-
herra Banda-
ríkjanna, sendi
herforingjun-
um á Haítí
kaldar kveðjur
i gær og bað þá
vinsamlegast
að hafa sig á braut hið fyrsta.
Ekki er talið að herstjórarnir láti
segjast frekar en fyrri daginn.
Látavitaafsér
Bandarískir hermenn íöru meö
vopnaskaki um Port-au-Prins,
höfuðborg Haítí, í gær.
Flótti undan lungnabólgu
Um 300 þúsund íbúar borgar-
innar Surat á Indlandi eru á flótta
vegna lungnabólgufaraldurs.
Eldgos er hafið að nýju í Pina
Tupo á Filippseyjum. 14 menn
hafa farist í aurflóðum.
Serbar í vígamóð
Serbar hafa hert sókn sína í
Bosníu eftir að NATO lét gera
árás á einn skriðdreka þeirra.
Jeítsín hræddur
Jeltsin Rúss-
landsforseti
hefur lýst
þoirri skoðun
sinni að öfga-
menn úr ýms-
um áttum safni
nú liði og hygg-
ist reyna eina
ferðina enn að hrifsa til sín völd.
Opinber morð í Rúanda
Grunvu- ieikur á að nýja stjórn-
in í Rúánda hafi undanfarið stað-
ið fyrir víðtækum manndrápum.
Sýnir ekki trompin sín
Stjórn Norður-Kóreu er stað-
ráðin í að sýna alþjóðlegum eftir-
litsmönnum ekki kjarnavopn sín.
Veriö er að ræða málið í Genf.
Gull á uppsprengdu verði
Gull var í gær selt dýrara verði
á mörkuðum en verið hefur í
rúmt ár. Verðið féll á ný síðdegis.
Olíanverðurdýrívetur
Spáð er að verð á olíu fari
hækkandi á næstu vikum og
verði hátt í allan vetur.
Flugvél í sjóinn
Öttast er að sex menn haft far-
ist þegar flutningaflugvél fór í
sjóinn viö Hong Kong í gær.
Nýdönskeftirhelgi
Ný stjórn tekur væntanlega við
völdum í Danmörku eftir helgi.
Uffe óður og uppvægur
Uffe Elle-
mann-Jensen
hefur lýst ein-
dregnum
áhuga á aö taka
að sér fram-
kvæmdastjórn
hjá NATO.
Mikið kapp-
hlaup er nú í uppsiglingu milli
hans og Belgans Willy Claes.
Norðmenn hafa reiknað út að
milljón böm séu misnotuð kyn-
feröislega af Vesturlandabúum í
þriðja heiminum.
Bildt segir að Carlsson geti ekki
myndað nýja stjóm í Svíþjóð.
Reuter, Ritzau, NTB og TT