Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1995, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1995, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 1995 Fréttir Greiðslur til presta fyrirjarðarfór hafa hækkað um 4.200 krónur á 18 mánuðum: Þrír prestar með þriðjung útfaranna „Eg get ekkert um þetta sagt. Eg held enga skrá yfir þær útfarir sem ég annast. Ég bara sinni mínum skyldum," sagði séra Pálmi Matthí- asson, sóknarprestur í Bústaðasókn, þegar hann var spurður um þá stað- reynd að hann og tveir aðrir prestar önnuðust þriöjung allra útfara í Reykjavíkurprófastsdæmum á síð- asta ári. Þessir vinsælu prestar eru séra Pálmi Matthíasson í Bústaðasókn, og bræðurnir séra Karl Sigurbjörns- son í Hallgrímssókn og Árni Bergur Sigurbjömsson, í Ássókn. Þremenn- ingarnir önnuðust þriðjung allra út- fara í Reykjavík á síðasta ári. Samkvæmt upplýsingum frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófasts- dæma voru 890 útfarir í Reykjavík á síðasta ári. Hjá skrifstofu Kirkju- garðanna var ekki hægt að fá tölur um hve margar útfarir hver prestur annaðist. En samkvæmt tölum sem DV fékk annars staðar og em réttar önnuðust þessir þrír prestar samtals 299 útfarir. Séra Pálmi er greinilega þeirra vin- sælastur til slíkra athafna því hann annaðist 118 útfarir. Séra Árni Berg- ur annaðist 92 og séra Karl 89 útfarir. Það sýnir yfirburða vinsældir þess- ara presta að í Reykjavík eru 19 prestaköll. Það þýðir 19 sóknar- presta, auk þess sem nokkrir hafa aðstoðarpresta. Þar ofan á bætist að prestar sem látið hafa af þjónustu við sóknir halda margir áfram að sinna svona aukaverkefnum. Sjúkrahúsa- og elliheimilaprestar mega jarðsyngja og gera það. Sömu- leiðis má kalla til presta utan af landi til kirkjulegra athafna. Loks annast forstöðumenn safnaða utan þjóð- kirkjunnar útfarir. AUur þessi hópur skipti á milli sín 591 útfor í Reykja- víkurprófastsdæmum í fyrra. Fyrir um einu og hálfu ári var greiðslum til presta fyrir útfarir breytt. Áður voru það aðstandendur sem greiddu presti fyrir útfor og þá var greiðslan 8.000 kr. Nú era það kirkjugarðar á hverjum stað sem annast greiðsluna til prestanna. Þeg- ar breytingin átti sér stað var greiðsl- an hækkuð í 12.200 krónur. Loðnuhrogn á innlendan markað Ómar Garöarason, ÐV, Vestmannaeyium: Vinnslustöðin í Eyjum hefur gert samning við fyrirtækiö Bakkavör í Kópavogi um sölu á 250 tonnum af loðnuhrognum. Bakkavör fullvinnur loðnu- hrognin og segir Úlfar Steindórs- son i Vinnslustöðinni að viðskipt- in hafi byrjað á síðustu vertíð. „Þá keyptu þeir nokkurt magn af okkur og líkaöi vel. Það er ástæöan fyrir því aö þeir vilja kaupa af okkur 250 tonn í ár,“ sagði Úlfar. Vinnsla á loðnuhrognun á vert- íðinni gekk vel og heildarvinnsl- an hér í Eyjum varð 2000 tonn. Tæplega 800 tonn vora fryst hjá Ísfélagínu og á annað þúsund tonn í Vinnslustööinní. Loðnu- veiðin hefur gengiö vel og er enn veriö að landa í Eyjum. Stóru sölusamtökin ákváðu rétt fyrir helgi aö hætta hrognafrystingu. Leiklistarnemar, sem áttu að þreyta inntökupróf í Leiklistarskóla íslands í gær en fengu ekki, afhenda hér Gunn- laugi Ástgeirssyni, formanni verkfallsnefndar kennara, mótmæli vegna þess að kennarar stöðvuðu inntökuprófin í gær. Skólinn ákvað að hætta við prófin „í Ijósi hótana verkfallsstjórnar kennara," eins og segir í yfirlýsingu frá skólanum. DV-mynd ÞÖK „Við hittum félagsmálaráð- herra að máli þar sem við fórum yflr stöðu mála,“ segir Jón Guð- mundsson, formaður bæjarráðs Vesturbyggöar, um fund sem hann og Gísli Ólafsson, bæjar- stjóri Vesturbyggðar, áttu með Rannveigu Guðmundsdóttur fé- lagsmálaráðherra í síðustu viku vegna kröfu 117 Bílddælinga um sameiningarslit Bíldudals og Vesturbyggðar. „Við höfum ekkert heyrt frá félagsmálaráöherra. Svona lagaö er alltaf hundsað enda erum við í bananalýöveldi en ekki í réttar- ríki,“ segir Sigurður Guðmunds- son sem er talsmaður Bíldæhng- anna 117 sem mótmæltu til fé- lagsmálaráöherra. Ekki tókst að fá samband við félagsmálaráðherra. -rt Reyöarfiörður: Félagsmálaráðuneytið hefur veitt sveitarstjóranum á Reyðar- firði áminningu fyrir að hafa fengið ráðgjafarfyrirtæki á höf- uðborgarsvæðinu til að gera til- lögu um hagræðingu án þess að hafa fyrst fengið lögmæta sam- þykkt hreppsnefndar fyrir út- gjöldunum. Ráðuneytiö telur að málsmeö- ferðin hafi ekki verið í samræmi við sveitarstjómarlög og aö eðli- legt hefði verið aö leggja málið fyrir hreppsnefndarfund eftir að ágreiningur kom upp í hrepps- ráði. „Ég vU ekki tjá núg neitt um þetta. Mér íhmst nóg aö félags- málaráöuneytið kveði upp þenn- an úrskurð. Við höfðum athuga- semdir við þessa málsmeðferð og það er koraið fram sem við töld- ura. Ég vænti þess að málið yerði nú látið niöur falla,“ segir Óttar Guðmundsson, íbúi á Reyöar- firði. í dag mælir Dagfari Brot á samkeppni Ekki eru öll kurl til grafar komin í kaupum Esso á Ohs. Svo segir viðskiptaráðherra og svo segir for- stjóri Samkeppnisstofnunar. Þeir ætla að láta rannsaka málið. Ráðherrann og forstjórinn segj- ast ekki hafa vitað af kaupum Esso á Ohs fyrr en þeir lásu um þau í blöðunum. Þetta er vítaverð van- ræksla því ráðamenn vfija fá að fylgjast meö því þegar hlutabréf eru seld í fyrirtækjum og þaö varð- ar við lög ef menn selja og kaupa án þess að láta ráðamenn vita. Ekki er heldur annaö að skUja af viðtölum við ráðherrann og for- stjórann heldur en að kaupin hefðu verið í góðu lagi ef þeir hefðu vitað um þau fyrirfram og verður þá ekki annað séð en það sé lögbrot í viðskiptum ef ráðamenn eru ekki fyrst látnir vita. Annars er það dálítið merkilegt ef kaup Esso á Ohs era brot á sam- keppnislögum. Esso var nefrúlega að kaupa og Ohs að selja til að styrkja stöðu þessara fyrirtækja í samkeppninni. Þau vora að búa sig undir harðnandi samkeppni frá útlöndum og frá nýju fyrirtæki Skeljungs og Bónuss og Hagkaups og vfija sameina og hagræða til að geta lækkað vöruverðið. Nú hefðu menn haldiö aö sam- keppnislög væru til að tryggja sam- keppni en ekki til að koma í veg fyrir hana. Samkvæmt viöbrögð- um ráðamanna er hins vegar allt eins líklegt að lögin um samkeppni séu til þess að koma í veg fyrir sam- keppni og verja þá hagsmuni sem era í því fólgnir að samkeppni sé sem minnst. Að minnsta kosti verður sú álykt- un dregin ef kaup Esso á Ohs og sameiginlegt dreifingarfyrirtæki þeirra verða tíl þess aö Samkeppn- isstofnun dæmi þessa sameiningu ólöglega. Þá er samkeppnin orðin hættideg samkeppninni. Þetta er út af fyrir sig sjónarmið. Samkeppni er samkeppni háskaleg ef samkeppnin leiöir til þess að samkeppni verður meiri. Þá mun sú samkeppni sem fyrir er líða fyr- ir þá samkeppni sem kemur til við- bótar og sameiginlega mun sam- keppnin verða harðari og Ulskeytt- ari og þeir sem taka þátt í sam- keppninni munu alhr tapa á sam- keppninni. Og til hvers er þá sú samkeppni? Þá má hka segja að samkeppni sem stofnaö er til svo stöðva megi aðra samkeppni sé af hinu vonda og verði aldrei nein samkeppni ef samkeppninni er afstýrt. Þegar Esso kaupir í Olís er það tU að koma í veg fyrir samkeppni við Irving OU og til að standa sig betur í sam- keppni við Skeljung og það verður til þess að Irving OU hættir við að hefja viðskipti á íslandi og Skelj- ungi gengur verr í samkeppninni. Með þeim hætti er auðvitað verið aö draga úr samkeppni sem hefði orðið ef samkeppnin hefði ekki aukist. Þetta hafa bæði ráðherrann og forstjóri Samkeppnisstofnunar komið auga á og það er þess vegna sem þeir vUja rannsaka þessa sam- keppni og átta sig á hvort hún sé ekki ólögleg. Það er fullkomlega réttlætanlegt að banna samkeppni sem er gegn samkeppni sem er yfir- vofandi en er ekki orðin að veru- leika, ef sú samkeppni sem er stefnt gegn samkeppni veldur því að sam- keppni verði minni en áður. Samkeppnin í ohuviðskiptunum hér á landi hefur lengst af verið samkvæmt fóstum reglum. Hún hefur verið háð skUvísri og heiðar- legri yfirstjórn og samráði milli olíufélaganna og þau hafa getað fylgst nákvæmlega meö hverju skrefi hvers annars og samkeppnin hefur verið örugg og fumlaus. Allir hafa vitað hvað hinir vora að gera og ekkert hefur komið á óvart og menn hafa mátt treysta því að eng- inn gerði annað í samkeppninni heldur en hinir gátu gert líka. Nú er búið að eyðUeggja þessa festu í samkeppninni með ótíma- bærri samkeppni og yfirvöld líta þaö mjög alvarlegum augum. Þeim ber að rannsaka þessa samkeppni til hhtar og bregðast viö samkvæmt lögum og góðum viðskiptavenjum og ógUda kaup Esso á Ohs ef þau skerða þær almennu samkeppnis- reglur sem hingaö til hafa gilt og alhr hafa farið eftir. Það duga engin vettlingatök. Samkeppnin má aldrei verða þann- ig að keppinautarnir viti ekki hvað hinir era að gera. ' Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.