Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1995, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1995, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 1995 5 Fréttir Sjómannasamtökin undirbúa verkfallsaðgerðir: Ræða aðgerðir gegn einstökum fyrirtækjum Farmanna- og fiskimannasamband íslands, Sjómannasamband íslands og Vélstjórafélag íslands hafa rætt þann möguleika aö boöað verði verk- fall í einstökum fyrirtækjum og ein- stökum veiöigreinum. Hugmyndin gerir ráö fyrir aö að- gerðum verði beint gegn nokkrum þeirra fyrirtækja sem eru með útgerð og vinnslu á sömu hendi og greiða lágt fiskverð til sjómanna í krafti þess. Þar eru nefnd fyrirtæki á borð við Granda hf. og Útgerðarfélag Ak- ureyringa auk fjölmargra fleiri. Þá er hugmyndin sú að boða verkfall í einstökum veiðigreinum þar sem ekki hefur samist um kaup og kjör í mörg ár. Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags íslands, staðfesti í samtali við DV að þessar hugmyndir væru uppi á borðinu. Hann segir for- ystumenn sjómanna hafa rætt þetta mál sín í milli og leitað hafi verið áhts lögmanna á slíkum aðgerðum „Við höfum farið yfir möguleika þess að boðaðar verði aðgerðir á hendur einstökum fyrirtækjum og veiðigreinum. Við vorum sammáia um aö næsta skref væri það að menn skoðuðu sitt bakland. Menn sjá það að ef viö gerum ekkert og látum reka á reiðanum verður þetta sífellt erfið- ara. Við höfum leitað álits lögfræð- inga á möguleikum þess að útfæra verkfall með þessum hætti og þeirra mat er það að ekkert sé því til fyrir- stöðu sé boðun aðgerðanna lögleg," segir Helgi. Hólmgeir Jónsson, hagfræðingur Sjómannasambandsins, staðfest að þessi útfærsla hefði verið rædd. Hann segir þó engar ákvarðanir enn hafa verið teknar. „Þetta hefur verið rætt og lagt fyrir lögfræðinga. Máhð er þó aðeins á umræðustigi þar sem fyrst þarf að taka ákvörðun um það hvort farið verður út í aðgerðir. Það verður rætt á formannafundi hjá okkur í vik- unni,“ segir Hólmgeir. Samningar sjómanna og útgerðar- manna eru í hnút, eins og fram kom í DV í síðustu viku. Allir forystu- menn sjómanna eru sammála um að grípa verði til verkfaUs og það sé ein- Fáskrúðsí] örður: Skóla- gjöld hækka Stjórn Búðahrepps hefur ákveðið að hækka fastagjöld í leikskóla Búðahrepps um tíu pró- sent, úr 5.600 krónum í 6.200, og skólagjöld í tónUstarskólanum á Fáskrúðsfirði um 30 prósent, úr 6.500 í 8.500 krónur. Hækkunin í leikskólanum tekur gUdi 1. maí og hækkunin í tónhstarskólanum á haustönn. „Skólagjöldin hafa staðið í stað undanfarin ár miðaö við skóla- gjöld í hreppunum héma í kring- um okkur. Það var ákveðið að hækka þessi gjöld í og með tíl aö sveitarfélagið bæri ekki eins mik- inn kostnað af þessum rekstri," segir Steinþór Pétursson, sveitar- stjóri í Búðahreppi. ungis spurning um timasetningu. Rúmt ár er síðan sjómenn vom í verkfalU og þá var það leyst með lagasetningu. Þar var m.a. gert ráð fyrir að Samráðsnefnd útgerðar- manna og sjómanna leysti úr ágrein- ingsmálum varðandi fiskverð. Eins og fram hefur komið er það mat sjó- manna að nefndin hafi brugðist og að verðlagning á fiski upp úr sjó sé ennímiklumhnút. -rt OG ENN KEMUR TWINGO Á ÓVART, ÞEIR HENTU KÚPLINGUNNI ÚTI! Nýjasta útspil Renault Twingo er kúplingslaus beinskipting. Tímamótahugmynd sem á eflaust eftir að verða alsráðandi í framtíðinni. Alan Prost, heimsmeistari i FORMULA 1 KAPPAKSTRI, OG RÁÐGIAFI HJÁ Renault ER STÓRHRIFINN: „Sú staðreynd að kúplingunni hefúr verið hent út er til mikilla bóta. Áfram er notast við hefðbundna gírstöng þannig að aksturslagið er hið sama. Það eina sem er breytt er að maður þarf ekki lengur að vera á fleygiferð með vinstri fótinn. Afleiðingin er sú að maður er mUdu afslappaðri í umferðinni og þar af Ieiðandi ánægðari og öruggari ökumaður.” NH l N

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.