Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1995, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1995, Blaðsíða 29
I ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 1995 37 Ein Ijósmynda Báru í Gallerii Sævars Karls. íslensk erótík Mannslíkaminn og íslensk eró- tík er vifangsefni Báru Kristins- dóttur ljósmyndara á sýningu sem opnuö var í Galleríi Sævars Karls um síðustu helgi. Myndirn- ar eru allar svart/hvítar og leikur listamaðurinn sér að fjölbreytt- Sýningar um formum mannslíkams í myndunum sem aliar eru af ís- lenskum fyrirsætum. Myndirnar eru unnar á síðustu mánuðum og eru til sölu. Þetta er fyrsta einkasýning Báru, en áður hefur hún tekið þátt í fjölmörgum samsýningum, bæði hér á landi og erlendis. Má þar meðal annars nefna 50x3 í Stokkhólmi, 1992 og sýningu í Frölunda Kulturhus árið 1989. Bára lærði í Svíþjóð og starfaði þar og í Bandaríkjunum áður en hún flutti til íslands og starfar nú við eigin ljósmyndastofu. Rabb um rann- sóknir og Dr. Gerður G. Óskarsdóttir menntunarfræöingur mun í dag segja frá rannsóknum sínum undir fyrirsögiúnni Starfskjör og eðh starfa með hhðsjón af kyn- ferði. Fyrirlesturinn er i stofu 422 í Ámagarði og hefst kl. 12.00. Einleikarapróf Stefán Ragnar Höskuldsson flautuieikari mun halda tónleika í Listasafni íslands kl. 20.30. Eru tónleikarnir síðari lúuti einleik- arapróf hans. Nýtur er hver sig fræðir í kvöld kl. 20.00 verður farin vett- fangsferð á vegum NVSV í sýn- ingarsali Náttúrufræöistofnunar íslands að Iilemmi 5 og munu sérfræðingaar kynna þaö ■ sem fyrir augum ber. Mæting er á staðnum. ITC Röst ITC Röst, Suðumesjum, heldur fund í Grindavík i kvöld kl. 20.30. $afnaðarfélag Asprestakalls Safnaðarfélag Ásprestakalls heldur fund i kvöld kl. 20.30 í safnaðarheimilinu. Meðal annars verða sýndir samkvæmisdansar. Tvímenningur Spilaður veröur tvímemúngur í kvöld kl. 19.00 að Fannborg 8 (Gjábakka). Þriðjudagshópurinn Þriðjudagshópurimt kemur sam- an i Risinu ki. 20.00 í kvöld. Sig- valdi velur lög og stjórnar. Námsmaraþon Hópur ungtemplara heldur námsmaraþon í félagsheimilinu Grenásvegi 16. og verður lært stanslaust í 26 tíma frá kl. 12.00 í dag til kl. 14.00 á morgun, er þetta iiður í fjáröflun ungtemplara. BRNK^&IRIK ——-dtt Borgarleikhúsið: Á norrænu menningarhátíðinni Sólstöfum er komið að dansinum og verða sýnd dansverk frá Noregi og Finnlandi í Borgarleikhúsinu í kvöld og annað kvöld. Frá Finnlandi kemur Kennetli Kvarnström með dansleikhús sitt og flytur verkin ...and the Angels Began to Scream... og Carmen. Kvarnström stofnaði eigin dans- flokk í Stokkhólmi 1987 og vakti strax mikla athygli. Skörp ádeila, tæknileg fullkomnun og hraöi ein- kenna sýningar hans en hann er einn af frumkvöðlum nýja dansins á Noröurlöndum. Frá Noregi kemur Ina Christel Johannessen meö Scirocco dans- flokkinn og flytja þau verkið Ab- sence de fer. Johannessen hefur Ur dansverklnu Absence de ler sem Scirocco dansflokkurinn flytur. samið fjölda verka viö sívaxandi orðstír. Hún samdi meðal annars Har du sunget for Griek? sem vakti núkla athygli á norrænu listahátíö- inni í Stokkhólnú 1994. Hálka í kjölfar hlákunnar Góð færð er á flestum aðalvegum á Suðvesturlandi, þó er töluverð snjókoma og skafrenningur á Hellis- heiði og í Þrengslum. Það 'er fært um Holtavörðuheiði norður í Skagafjörð, en Öxnadalsheiði er ófær. Frá Akur- Færðávegum eyri er fært til Ólafsfjarðar og um Víkurskarð tú Húsavíkur og Raufar- hafnar. Verið er að moka austan Raufarhafnar, en mokstur sækist mjög seint og óvíst að vegurinn opn- ist í dag. Það er fært til Siglufjarðar pg Hólmavíkur og verið að moka í ísafjarðardjúpi. Búast má við mikilli hálku í kjölfar hlákunnar víða um land. Litla stúlkan, sem á myndinni sef- ur vært, fæddist á fæðingardeild Landspítalans 11. mars kl. 2.29. ■Bclitl dagsins Hún reyndisl vera 3275 grömm að þyngd og 51 sentímetra löng. For- eldrar hennar eru Guðrún Ingi- björg Svansdóttir og Bjarni Jóns- son. Hún á eina systur, Tinnu, sem erðára. Wesley Snipes leikur lögreglu- manninn Pete Nessip í Stökk- svæðinu. Spenna í háloftum Háskólabíó hefur hafið sýning- ar á Háloftahasar (Drop Zone) sem er nýjasta kvikmynd spennumyndaleiksfjórans Johns Badhams. Aðalhlutverkið leikur Wesley Snipes, lögregluforingja sem er á hælunum á fífldjörfum glæpamönnum sem eru sérfræð- ingar í fallhlífarstökkum og flug- drekum og nota hæfni sína óspart Kvikmyndir til iðkunar glæpastarfsemi sinn- ar. Það sem gerir lögreglumann- inn svo ákafan í að ná þessum glæpahópi er að hann er ábyrgur fyrir dauða bróður hans. Auk Wesley Snipes leika Gary Busey Yancy Butler og Michael Jeter í Drop Zone. John Badham er eins og áður sagði þekktastur fyrir spennu- myndir sínar. Það var þó tónlist- armyndin Saturday Night Fever sem gerði hann frægan en síðan hefur hann aðallega haldið sig við sakamálamyndir og helstu myndir hans eru War Games, Point of No Return, Blue Thund- er, Stakeout, Bird on a Wire og The Hard Way. Nýjar myndir Háskólabíó: Stökksvæðið Laugarásbíó: Riddari kölska Saga-bió: Táldregin Bíóhöllin: Gettu betur Bióborgin: Uns sekt er sönnuð Regnboginn: Himneskar verur Stjörnubió: Vindar fortíðar Gengiö Almenn gengisskráning Ll nr. 72. 21. mars 1995 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 64,240 64,440 65,940 Pund 101,460 101,770 104,260 Kan. dollar 45,690 45,880 47,440 Dönsk kr. 11,4260 11,4710 11,3320 Norsk kr. 10,2400 10,2810 10,1730 Sænsk kr. 8,8460 8,8810 8,9490 Fi. mark 14,6210 14,6790 14,5400 Fra. franki 12,8870 12,9390 12,7910 Belg. franki 2,2165 2,2253 2,1871 Sviss. franki 54,9300 55,1500 53,1300 Holl. gyllini 40,8000 40,9600 40.1600 Þýskt mark 45,7800 45,9100 45,0200 it. líra 0,03703 0,03721 0,03929 Aust. sch. 6,4950 6,5280 6,4020 Port. escudo 0,4339 0,4361 0,4339 Spá. peseti 0,4981 0,5005 0,5129 Jap. yen 0,71930 0,72150 0,68110 Irskt pund 101,730 102,240 103,950 SDR 98,81000 99,31000 98,52000 ECU 83,1800 83,5200 83,7300 Símsvari vegna gengisskráningar 623270. Krossgátan 7 T~ T~ n r 7 É n I vr lo I * l I TT4 TT Up r ir* I /4 Í0 J . Lárétt: 1 bleyða, 7 hrosshúð, 8 kvabb, 9 maðk, 10 dýpi, 11 trunta, 13 óstöðug, 15 glyma, 17 eiri, 18 ofh, 19 peningum, 20 slenið, Lóðrétt: 1 fugl, 2 ágætlega, 3 annars, 4 súrefni, 5 gaffall, 6 skar, 7 ffjótum, 12 skýjarof, 13 röð, 14 ánægja, 16 fé, 18 reim. Lausn á siðustu krossgátu. Lárétt: 1 dolk, 5 eld, 8 eijar, 9 aá, 10 smá, 11 ufsi, 12 jörðina, 15 argaði, 17 vota, 19 rú, 20 mat, 21 árið. Lóðrétt: 1 desjar, 2 orm, 3 fjár, 4 kauða, 5 erfiðar, 6 lasnar, 7 dái, 13 örva, 14 alúð, 16 got, 18 tá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.