Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1995, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1995, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 1995 25 eftir Belánýi neitað - um íslenskan ríkisborgararétt af utanríkismálanefhd Alþingis Þorsteinn Guimaisson, DV, Eyjum; Utanríkismálanefnd Alþingis hafnaði fyrir skömmu beiðni Ung- verjans Zoltáns Belánýis, horna- mannsins snjalla í handboltaliði ÍBV, um íslenskan ríkisborgararétt en Belánýi hefur verið búsettur á íslandi í Qögur ár. Að sögn Péturs Steingrímssonar, formanns hand- knattleiksráðs ÍBV, hafði Belánýi ekki búið nógu lengi á landinu til þess að fá ríkisborgararéttinn, samkvæmt þeim upplýsingum sem fengust hjá utanríkismálanefnd. Samkvæmt nýjum lögum þurfa viðkomandi að hafa búið hér á landi í að minnsta kosti 7 ár til að koma til áhta. Þorbergur Aðalsteinsson lands- liðsþjálfari hafði lýst því yfir að hann hefði áhuga á að fá Belánýi í landsliðið ef hann hefði íslenskan ríkisborgararétt en eftir þessa ákvörðun utanríkismálanefndar er það úr sögunni. Allt bendir til þess að Ungverjinn snjalli verði áfram í herbúðum ÍBV og leiki með hðinu í 1. deild að ári en Eyjamenn tryggðu sér sæti í 1. deild með sigri á Fram um helgina. Guðmundur hættir með Aftureldingu ;ir að körfu Denver i nótt en Rodney Rog- Simamynd Reuter ’fuknattleik í nótt: in Seattle úndur voru eftir, en engu munaði að Mahmoud Abdul-Rauf næði að svara með 3ja stiga skoti. Spenna í Miami og Milwaukee Endurkoma Michaels Jordans skyggði á allt annað í leikjunum í fyrrinótt en það var mikil spenna víða. Phoenix þurfti framlengingu til að sigra í Miami, og hefur unnið alla 16 leiki félaganna í ,-deildinni frá upphafi. Glenn Robinson skoraði sigurkörfu Milwaukee gegn Boston 12 sekúndum fyrir leikslok. Úrslitin í fyrrinótt: Charlotte — Utah 108-104 Mouming 31, Hawkins 20, Johnson 20, Bogues 16 - Malone 26, Stockton 16. Tnrliann — flhicflpn 103-96 Miller 28 - Pippen 31, Jordan 19/7. Miami - Phoenix 117-121 Owens 22 - Barkley 27. Houston - Philadelphia 114-103 Olajuwon 24 - Milwaukee - Boston 95-94 Robinson 28 - Douglas 23. Washington-Cleveland.... 96-90 Overton 23 - Golden State - Detroit 117-115 Gatling 29/15, Mullin 28 - Houston 35, Hill 31/11. LA Lakers - Sacremento.......121-116 Van Exel 35 - Minnesota - LA Clippers...... 96-93 Guðmundur Guömundsson, sem náð hefur stórkostlegum árangri með Uð Aftureldingar í handknatt- leik, er hættur að þjálfa lið MosfeU- inga. Hann tilkynnti forráðamönn- um Aftureldingar þetta í gærkvöldi. „Þetta er mín ákvörðun og hún er tekin í sátt og samlyndi við Aftureld- ingu. Ég hef þjálfað lið Aftureldingar í 3 ár og met stöðuna þannig að tími breytinga sé runninn upp. Lið Aftur- eldingar hefur verið í stöðugri sókn og ég geng stoltur frá þessu verki og er sáttur við útkomuna úr þeirri miklu vinnu sem að ég á að baki með Aftureldingu," sagði Guðmundur í Gylfi Kristjárisson, DV, Akureyri: „Ég lít fyrst og fremst á þetta sem táknræna viðurkenningu á því að það sé viðurkennt af ríkisvaldinu, íþróttahreyfingunni og Akur- eyrarbæ að á Akureyri ætli menn að sameinast um góða aðstööu til vetraríþrótta," segir Ellert B. Schram, forseti íþróttasambands ís- lands, en um helgina var fonnlega opnuð vetraríþróttamiðstöð íslands á Akureyri af Ólafi G. Einarssyni menntamálaráðherra. Ellert B. Schram segist reikna með því að með þessu sé gengið út frá því að ríkið leggi fram fjármuni til upp- byggingar aðstöðu til vetraríþrótta á Akureyri og íþróttahreyfingin muni samtali við DV í gærkvöldi. Árangur Guðmundar með Aftur- eldingu var mjög athyglisveröur. Undir stjórn hans á fyrsta ári vann Afturelding 24 leiki af 28 og gerði 4 jafntefli. Liðið varð þá deildarmeist- ari og síðar íslandsmeistari í 2. deild. Árið eftir fékk lið Aftureldingar eld- skírn sína í 1. deild eftir 34 ár í neðri deildum. Liðið komst í 8 liða úrslit í fyrsta skipti þrátt fyrir að mikil meiðsli gerðu vart við sig. í vetur tók liðið enn eitt skreíið fram á við. Lið- ið hafnaði í 4. sæti í 1. deildinni, hlaut 28 stig og komst í undanúrslit deild- arinnar í fyrsta skipti eftir að hafa beina starfsemi og iðkun vetrar- íþrótta meira til bæjarins en gert hafi verið. „Ég held að Akureyringar geri sér vonir um að ríkisvaldið leggi fram ijármagn til uppbyggingar á mannvirkjum, að eftir þessa form- legu opnun fylgi sameigingleg upp- bygging .þeirra aðila sem að þessu koma,“ segir Ellert. „Við lítum á þetta sem upphaf að einhverju stærra og ég tel að nú taki við samningar um framhaldið. Ég geri mér ekki vonir um mikið pen- ingaflæði til bæjarins vegna þessa strax en ég geri mér vissulega vonir um það í framtíðinni," segir Her- mann Sigtryggsson, íþróttafulltrúi Akureyrar. Hermanns segir að sé litið til sigrað stórveldiö FH í 8 liða úrshtun- um, besti árangur Aftureldingar frá upphafi. Með þessum árangri náði liðið að vinna sér þátttökurétt í Evr- ópukepni í fyrsta skipti í sögu félags- ins. „Ég tel að liðið hafi tekið miklum framförum á þessum þremur árum. í vetur töpuöum við fyrir sterkum liðum með litlum mun á útivelli og það segir sitt um styrkleika Uðsins. Vonandi heldur uppbyggingin áfram í Mosfellsbænum og ég óska leik- mönnum og aðstandendum hðsins góðs gengis í framtíðinni," sagði Guðmundur. mannvirkja sem hugsanlega yrðu byggð upp á Akureyri sem vetrar- íþróttamiðstöð þá sé yfirbyggt skautasvell fremst í forgangsröðinni og sú aðstaða gæti hugsanlega einnig nýst bæði knattspyrnu- og hesta- mönnum. „Þá horfum við einnig til frekari uppbyggingar í Hlíðarfjalli og endurnýjunar á tækjum þar. Við horfum einnig til bættrar aðstöðu til almenningsíþrótta og siðast en ekki síst að í framtíðinni verði komið á fót íþróttaskóla á Akureyri þar sem hægt væri að stunda saman almennt nám og t.d. skíðaíþróttir. En þetta er allt á byrjunarreit og framundan er langt ferli,“ segir Hermann Sig- tryggsson. • Samningur um formlega opnun vetraríþróttamiðstöðvar undirritaður á Akureyri. Frá vinstri: Hermann Sigtryggs- son íþróttafulltrúi, Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra, Jakob Björnsson bæjar- stjóri og Þröstur Guðjónsson, formaður ÍBA. DV-mynd Hrólfur Máni Vetraríþróttamiðstöð var opnuð á Akureyri íþróttir Kveðjuleikur fyrir Palla Meistaraflokkai’ Hauka og FH í handknattleik mætast í íþrótta- húsinu viö Strandgötu á fóstu- dagskvöldiö kemur klukkan 20. Leikurinn er háður í kveðju- skyndi við Pál Ólafsson, fyrrum landsliðsmann úr Haukum, sem ákveöið hefur að liætta eftir lang- an og htríkan feril Búast má við fjörugum leik erkifjendanna og aðgangur á hann er ókeypis. Schneider meistari Vreni Schneider frá Sviss tryggði sér á sunnudaginn sigur í stigakeppni heimsbikarsins á skíðum í kvennaflokki eftir æsi- spennandi keppni við Kötju Seiz- inger frá Þýskalandi. Schneider sigraði þá í síðustu svigkeppni vetraríns, renndi sér glæsilega í síðari ferðinni eftir að hafa veriö fjórða í þeiiTi fyrri. Seizinger hefði dugaö að vera á meðal 10 efstu til að vinna stigakeppnina en hún endaði i 14. sæti í sviginu, og þar meö vann Schneider meö aðeins sex stiga mun. Hún fékk 1.248 stigen Seizinger, sem missti af sigrinum fjórða árið í röð, hlaut 1.242 stig, Vonbrigði hjá Ferguson Alex Ferguson, framkvæmda- stjóri Manchester United, varö fyrir miklum vonbrigðum með leik sinna gegn Liverpool á sunnudaginn. United tapaöi, 2-0, og er nú sex stigurn á eftir Black- bum í einvíginu um enska meist- aratitihnn í knattspyrnu. „Úrslitin eru mér geysileg von- brigði en viö verðskulduðum ekki annað. Staða okkar er mjög erfið eftir þessi úrslit, á þessum hluta tímabilsins mega menn ekki við mistökum og þau voru of mörg í þessum leik. Fram að síðustu viku höfðum viö unnið aha leiki okkar við bestu liðin, en nú höf- um við gert jafntefli við Totten- ham og tapað fyrir Liverpool." Andy Cole kom inn á sem vara- maður hjá United í leiknum. „Það var áhætta að láta hann spila, það gæti kostað liann 2-3 leiki til við- bótar vegna meiöslanna en kannski hefði ég átt að taka þá áhættu og hafa hann í byrjunar- liðinu," sagði Ferguson. Eitraðfyrir þárússnesku? Forráöamaður rússneska körfuboltaliðsins CSKA Moskva fuhyrti i gær að eitrað hefði verið fyrir leikmönnum sínum i Aþenu um helgina. Eins og fram kom í DV i gær fengu fimm leikmanna liðsins matareitrun og gátu ekki spilað með í Evrópuleik gegn Olympiakos. Aðeins funm gátu sphaö leikinn, og í lokin voru þrir eftir inni á þegar tveir höíðu fengið fimm vihur. Leikmennirnir veiktust eftir aö hafa drukkið vatn af átöppuðum flöskum sem gestgjafar þeirra færðu þeim. „Við ásökum ekki forráðamenn Olympiakos því aðrir aðilar gætu hafa komið við sögu. Ég fékk mér einn sopa og fékk dúndrandi höfuöverk," sagðí forráðamaðurinn, Mikhail Reznikov. í kvöld Nissandeildin - úrslit KA-Valm’..............kl. 20.00 1. deild kvenna - úrslit Fram-Stjarnan..........20,00 DHL-deUdin - undanúrslit Njarövík-Skallagrímur..20.00 Grindavík-Keflavík.....20.00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.