Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1995, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1995, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARS 1995 7 Fréttir I vetur hafa 18 snjóflóð kostað 16 mannslíf, valdið ótöldum slysum og eyðilagt fjölda mannvirkja: Eignatjón 500 milljónir? Þaö sem af er þessum vetri hafa fall- iö 18 snjóflóö sem valdið hafa mann- og eignatjóni. Langflest flóðin féllu á Vestfjörðum í janúar. Veturinn hefur verið óvenju snjó- þungur og hafa hundruö manna þurft að yfirgefa heimili sín í lengri eða skemmri tíma. Ef fjöldi þeirra er margfaldaður með þeim fjölda sólahringa sem fólk hefur þurft að yfirgefa heimili sín, á svipaðan hátt og fjöldi gistanátta er fundinn út í ferðaþjónustunni, má reikna með að íbúar á snjóflóðasvæðum hafi þurft að yfirgefa heimili sín í á sjötta þús- und sólarhringa. Er hér einungis reiknað með þeim skiptum þegar formlegu hættuástandi er lýst yfir en á sumum stöðum til viðbótar hef- ur fólk ekki þorað að eyða nótt heima hjá sér af ótta við að snjóflóö falli. Þá eru þess dæmi að fólk hafi yfirgef- ið heimili sín endanlega og flust bú- ferlum. Hafa kostað 16 mannslíf Alls hafa flóðin kostað 16 mannslíf Fréttaljós Pétur Pétursson í vetur, auk þess sem fjöldi fólks hef- ur slasast. Eignatjón er gríðarlegt. Áætlar Freyr Jóhannesson, matsmaður hjá Viðlagatryggingu, að bótaskyld tjón Viðlagatryggingar nemi 200 til 300 milljónum króna það sem af er þessu ári. Telur hann aðspurður ekki ólík- legt að heildartjón af völdum snjó- flóða, sem þegar hafa fallið á mann- virki, nemi allt að hálfum milljarði. Þá eru ekki metnar til fjár þær vinnustundir sem kostað hefur verið til af völdum snjóflóða. Breytt hættumat Undanfarið hefur verið unniö að breyttum reglum við hættumat vegna snjóflóða. Byrjað var á því áður en snjóflóðið féll á Súðavík en meiri kraftur hefur verið settur í þá vinnu í kjölfar tíðra flóða í vetur. Þá hefur ofanflóðasjóði verið tryggt aukið fjármagn til næstu 5 ára. Ofan- flóðasjóði er ætlað að standa undir kostnaði vegna framkvæmda við snjóflóðavamir á móti sveitarfélög- unum og jafnframt kostnaði við snjó- flóðamat. Tekjur sjóðsins voru nær Áhrif verkfallsins á Stýrimannaskólann 1 Eyjum: Nemendur um allan sjó - hér er allt lamað og dautt, segir skólastjórinn Ómar Garðaisson, DV, Vestmarmaeyjum: „Það tekur viku aö ná hópnum saman eftir að verkfallið leysist," segir Friðrik Ásmundsson, skóla- stjóri Stýrimannaskólans hér í Vestmannaeyjum, í samtali við DV. Nemendur skólans, sem eru flest- ir ofan af landi, ertT á skipum vítt og breitt um landið og Friðrik segir að erfitt verði að bjarga önninni ef kennaradeilan leysist ekki á næstu dögum - núna í vikunni. Ef verkfallið leysist nú telur Frið- rik að ljúka megi skólanum í maí með því að kenna á laugardögum og sleppa páskafríi - annars verði að kenna fram í júní. Hann segist óttast afleiðingarnar ef verkfallið dragist enn frekar. „Það kom fram hjá forsætiráð- herra að ef verkfallið leysist ekki á næstunni geti það komið til kasta næstu ríkisstjórnar sem verður ekki mynduð fyrr en í vor í fyrsta lagi. Ég hef alla samúð meö nem- endum sem eru þolendur í verkfall- inu. Hér er allt lamað og dautt,“ sagði Friðrik skólastjóri. þrefaldaðar frá því sem áður var með lagabreytingu við þinglok. Enn lifa nokkrir mánuðir af vetri og víða er snjóþungt í fjöllum. Á mörgum stöðum er því enn viðvar- andi snjóflóðahætta. í morgun var fjöldi íbúa í Ólafsvík og nokkrir á Seyðisfirði frá heimilum sínum vegna snjóflóðahættu og sama gildir um þá á Vestfjörðum sem þegar hafa yfirgefiðhússínfyrirfulltogallt. -pp Matseöill Súpa: Koníakstónuö humarsúpa með rjómatoppi Aöalréttur: Lambapiparsteik meö gljáöu grænmeti, kryddsteiktum jaröeplum og rjómapiparsósu Eftirréttur: Grand Marnier istoppur meö hnetum og súkkuölaöi, karamellusósu og ávöxtum Verð kr. 4.600 - Sýningarv. kr. 2.000 ^^^^^^AjDansleikur kr. 800 Sértilbod á hótelgistingu sími 688999 Borðapantanlr i sima 687111 Hótel Island kynnir skemmtidagskrána BJORGVIN HALLDORSSON - 25 ARA AFMÆLISTONLEIKAR BJÖRÍiVIN HAIJiDÓKSSON lítur yfir dagsvcrkið soni dægurlagasöngvari á hljóinplölum í aldarljóróung, og vió lieyruni iia>r 60 lög i'rá glæ.stum lcrli - l'rá 1969 lil okkar daga vd Næstu sýningar: (jcstusöngvári: SKiRÍDllR BKINTKINSDO' Leikinynd ojí lciksl,j(>rn: B.IÖRN (i. IU()R.\SS(),\ IU,joms\(*ilarsljt>rn: (il WAR KORDARSON ásanil 10 manna lUjomsvrii kynnir: J(j\ AXKL OLAFSSON Dansliöfundur: IIKLKNA .lÓNSDOTTIR Dansarar úr HA'T’TI llokknum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.