Þjóðviljinn - 13.05.1979, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 13.05.1979, Blaðsíða 3
Sunnudagur 13. maí 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 flöskuskeyti aö utan ...flöskuskeyti að utan ...flöskuskeyti aö utan ... Maó: Eru Klnverjar aö endur- meta afstöðu sína til kenninga hans? Sovétmenn brynja sig gegn vestrœnum áhrifum Moskva 9. maí: Stjórnvöld I Kreml hafa sett áróöursmaskinuna á fullt til aö „eyöa óhróöri um Sovétrikin sem vestrænir heimsvaldasinnar hafa komið af stað með hugmynda- fræöilegum hryöjuverkum sin- um” eins og það er orðað i 3700 orða langrigrein i Pravda siðast- liðinn sunnudag. Það eru aðallega útvarps- sendingar sem sendar eru frá V-Evrópu á stuttbylgjum og aðrir erlendir dhrifavaldar sem gera Kremlverjum gramt i geði. Sovéska stjórnin mun nú leggja meiri rækt við fjölmiðla landsins til að mæta auknu áhrifastreymi frá kapitaliskum löndum. Þar að auki mun skólun f pólitískri hugsun vera hert, andgyðinglegur áróður aukinn og „leifum af borgaralegri hugsun og móral endanlega útrýmt.” 1 greininni er tekið fram aö áhrifamikill áróður sé afgerandi i baráttunni gegn „ógeðfelldum leifum fortiðarinna svo sem græðgi, spillingu, eyðslu, drykkju, og slæmri forystu.” Forsíðu- myndin Sigrid Valtingojer Forsiða Sunnudagsblaðs- ins er aö þessu sinni eftir Sigrid Valtingojer, og ber myndin nafnið „Heimilislff”. Sigrid er austurrisk að upp- runa, en kom hingað til lands árið 1961. Hún er lærður aug- lýsingateiknari og starfaði lengi sem slikur á Islandi. Hugur Sigrid stóð til mynd- listar, og útskrifaðist hún úr Handlista- og myndiðaskól- anum sem teiknikennari árið 1977. Hún kenndi við sama skóla i einn vetur og stundaði jafnframt nám við grafik- deild skólans. Myndin sem birtist á for- siðunni er með fyrstu mynd- um eftir Sigrid Valtingojer sem birtast opinberlega. —im Kínverjar gagn- rýna Kók-línuna Peking, 10 mai: Hinarfjóru meginreglur verður að halda i öllum atriðum, er hin nýja boðun sem kinversk stjórn- völd hafa prédikaö ötullega i öll- um fjöimiðlum landsins. Fyrir þá sem ekki eru kunnugir megin- reglunum fjórum skal innihald þeirra upplýst: 1. Fylgt skal hin- um sósialiska vegi, 2. Alræöi öreiganna, 3. Leiðarljós landsins verði hugsun kommúnistaflokks- ins og 4. Marx-leniniskar hug- myndir Maó formanns. Þessar meginreglur voru sendar út i „áróðurspakka” f aprflmánuöi. ÞeSsi fyrirmæli til alþýöunnar eru rfkjandi miðafl i kinverskum stjórnmalum um þessar mund- ir. Tilslakanir þeirra leiðtoga, sem sýnt hafa áhuga til vesturs, hafa verið gagnrýndir af harðlinu maóistum og er talið að margar mikilvægar ákvarðanir verði að biða úrlausnar, þangað til úr fæst skorið hvor linan verði ofan á. Brésnjef: Harðari pólitfsk ögun. Ný-nasistar eflast í V-Þýskalandi Berlfn 8. mai: Á síöustu þremur árum hefur meölimafjöldi þýsku Nýtnasista- flokksins meir en tvöfaldast, skýröi Andreas von Schöler rikis- ritari i innanrfkisráöuneytinu frá i sföustu viku. Árið 1976 var félagafjöldi nas- ista um 600 manns en hefur hækk- að upp í 1300 i janúar i ár. Rikis- ritarinn benti einnig á, að nauð- synlegt væri að nasistatimabilið yrði rætt rækilega i skólum og á heimilum. mmmmm v? ;• i\".' v<-. - \ : : , 9 ff si&mi . ■ ' ' - ’ AustÉrstræti 12 Ódýrar vandaðar og öruggar ferðir til Costa del Sol og Portoroz, hinna vinsælu ferðamannastaða. Fullkomm þjónusta á fyrsta flokks hótelum. Fjöldi fróðlegra og skemmtilegra skoðunarferða. Vikulegar brottfarir. Eins, tveggja, þriggja eða fleiri vikna ferðir. Pantið strax - sala er nú í fullum gangi og þegar orðið uppselt í nokkrar ferðir. Odýr sandur örugg sól

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.