Þjóðviljinn - 06.12.1979, Side 4
4 SIÐA —'ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 6. desember 1979
DJODVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóöfrelsis
(Jtgefandl: (Jtgáfufélag Þjóöviljans
Framkvcmdastjóri: Eiftur Bergmann
Rltatjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir
Umsjónarmaóur Sunnudagsblaós: Ingólfur Margeirsson.
Rekstrarstjóri: Ulfar Þormóösson
Augiýslngastjóri: Rúnar Skarphéöinsson
Afgreióslustjóri: Valþór Hlööversson
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón Friöriks-
son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson.
Erlendar fréttir: Jón Asgeir Sigurösson
IþróttafréttamaÖur: Ingólfur Hannesson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Jón Ölafsson
C’tlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson
Iiandiita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: Sigrlöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Olafsson.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir.
Afgreiösla: Einar Guöjónsson, Guömundur Steinsson, Kristín Péturs-
dóttir.
Slmavarsla: ólöf Halldórsdóttir, Sigrlöur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir
Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Ctkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson.
Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Sföumúla 6, Reykjavfk.slmi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Hnípnir menn
í vanda
• Það þarf ekki lengi að fletta Morgunblaðinu til
þess að ganga úr skugga um það hver það var sem
tapaði kosningum um siðustu helgi. Þótt undarlegt
kynni að virðast þá eru það ekki fyrst og fremst þeir
flokkar sem töpuðu atkvæðum og þingsætum —
heldur flokkur sem vann nokkuð á, Sjálfstæðisflokk-
urinn.
• Þessi merkilega þverstæða á sér að sjálfsögðu
þá augljósu skýringu, að með þvi að stefna i kosn-
ingar nú með milligöngu Alþýðuflokksins ætluðu
Sjálfstæðismenn að neyta tækifæris sem þeir töldu
mjög glæsilegt. Þeir héldu að vonbrigði með
vinstristjórn og brotthlaup Alþýðuflokksins, ásamt
með hægrisveiflu hér og þar í grannlöndum sköpuðu
þeim prýðilega möguleika á að sveigja islenskt
þjóðfélag til hægri svo um munaði.
• Þetta mistókst með öllu eins og hverjum manni
er ljóst. Sjálfstæðisflokkurinn er I sárum eftir klofn-
ingsframboð og auk þess mun forystukreppa hans
tvimælalaust skjóta upp kolli aftur með nýju afli.
Það hugarástand sem nú svifur yfir vötnum endur-
speglast á mjög ljósan hátt i viðtölum við forystu-
menn flokksins i Morgunblaðinu i gær. Þeir hafa,
hver um annan þveran, orðið fyrir miklum von-
brigðum. útslitin eru þeim litið fagnaðarefni, segir
einn þingmaður. Geir Hallgrimsson segir dapur-
lega: ,,Við fengum ekki það umboð sem við vild-
um”.
• En það er ekki siður fróðlegt að virða það fyrir
sér, hvernig þessir sömu forystumenn Sjálfstæðis-
flokksins vilja skýra sinn smáa sigur, sem var i
reynd meiriháttar ósigur. Hver á eftir öðrum fer
með almennt orðaðar formúlur um að,,stefna okkar
komst ekki til fólksins” eins og Steinþór Gestsson
segir. Af hverju ekki? Af þvi að timinn var naumur,
segir einn. Af þvi að fólk er komið i alvörulaust
jólaskap, segir Matthias Bjarnason. Af þvi að ,,fólk
er ekki tilbúið til að leggja til atlögu gegn verðbólg-
unni með áhlaupi’’ segir Ellert Schram. Svo er
kannski þvi bætt við, að andstæðingarnir hafi rang-
túlkað hina merku stefnu.
• Með öðrum orðum: Sjálfstæðismenn eru i sár-
um eftir þessi kosningaúrslit, en þeim virðist alveg
um megn að draga nokkrar ályktanir af þeim. Það
er auðvitað gamall barnaskapur að kvarta yfir
rangtúlkunum andstæðinga i stjómmálabaráttu;
enginn er annars bróðir i þeim leik. Spurningin er:
af hverju verður sá skilningur sem andstæðingar
leggja i stefnuplögg Sjálfstæðisflokksins sterkari en
hans eigin útskýringar, sem hann hefur firnalegan
blaðakost til að koma á framfæri? Við þeirri spurn-
ingu heyrum við ekki svör að heitið geti. Það er
helst á þeim Sjálfstæðisforingjum að skilja i Morg-
unblaðinu i gær, að fólkið sé svo vanþroska og óá-
byrgt að það kunni ekki gott að meta. Það er ekki
„tilbúið” sagði Ellert Schram eins og fyrr var til
vitnað.
• En engum þeirra dettur i hug að efast um að
sjálf sú stefna sem kennd var við leiftursókn hafi
verið rétt, skynsamleg — eða fær yfir höfuð. Svo
fast hafa þeir i Valhöll bundið trúss sitt við kenning-
ar þeirra hagfræðinga sem hafa að undanförnu ver-
ið að reyna að hressa upp á kapitalismann með
„hrossaskammti gegn verðbólgu” að ekkert annað
kemst að. Jafnvel þótt þeir hrossaskammtar hafi til
þessa skilið eftir sig sár eymsli og mikil vandræði —
hvort sem væri i Chile, ísrael eða Bretlandi og alls-
endis óvist hvemig tilrauninni reiðir af i höfuð-
stöðvunum sjálfum — i Bandarikjunum.
— áb.
Klippt
"I
Skaðleg skrif
Fróðleg játning kom upp úr
Matthiasi Bjarnasyni i eftir-
kosningaviðtali i Morgun-
blaðinu i gær. Hann segir m.a.:
„I þessu kjördæmi spilaði
umræðan um upphitunarkostn-
að i dreifbýli annars vegar og
hinsvegar á suðvesturhorninu,
en munurinn milli byggðarlaga
er allt að þvi sexfaldur. Skrif
Morgunblaðsins i þessum efn-
um hafa orðiö okkur til stór-
skaða.”
Ekkert gerði það nú til þótt
Morgunblaðið truflaði atkvæða-
smölun hjá sinum dreifbýlis-
þingmönnum ef i raun væri ekki
ar hins vegar aheins 28 þing
menn og skortir þvi 4 þingsæti i
starfhæfa meirihlutastjórn
Pessir tveir flokkar veröa þvi ab
leita sór bandamanna a þingi.
en þeir munu vandfundnir aó
flokknum Alþyftuflokkurinn
fókk ekki þessun
framgengt i fyr
stjórn vegna an
bandalagsins og
Framsóknarflokl-
myndunarviftræoum
flokksi
t upp
ndum
yndaí
■ neft
Kosningaúrslitin:
Óvissa um framtídina
af landinu, er blátt áfram
hættulegt; það veikir þá sam-
stöðu sem þarf aö skapa bæði
um frambúðarlausn i orku-
málum og svo gagnvart þeim
sem róa vilja á islensk orkumið.
„Fólk hefur
talið að
farið væri
of geyst“
— segir Matthías
Bjarnason um stefnu
Sjálfstæðisflokksins og
úrslit kosninganna
„ÞAÐ sem fyrst ok fremst
veldur því að vinnum ekki
meira á. er að stefna okkar
''pfur einhverra hluta vegna
um allalvarlegt mál að ræða.
Morgunblaðið hefur verið notað
af borgarstjórnarminnihlutan-
um i Reykjavik, sem hefur und-
ir forystu Birgis Isleifs, fyrrum
borgarstjóra, haldið uppi miklu
lýðskrumi gegn tilraunum til að
skapa heildarstefnu i orku-
málum og til að jafna orkukiör
manna bannig að ekki væri um
meiriháttar mismunun að ræða
eftir búsetu. Þessháttar spil-
verk, þar sem reynt er beint og
óbeint að etja saman höfuð-
borgarsvæðinu og afganginum
stæðisflokkurinn hefði frá þvi i
fyrra enn þokast nokkur veiga-
mikil skref frá þvi að geta farið
með meirihlutavald i höfuð-
borginni.
Enda segir Birgir Isleifur i
Timanum i gær: „Ekkert
sældarbrauö að setjast á Alþingi
núna”. Nei, allavega ekki fyrir
mann sem hefur bundið sér þá
pólitisku bagga sem Birgir
hefur með sér inn á þing.
v<
Ekkert
sœldarbrauð
Morgunblaöið hefur i þágu
borgarstjórnarminnihlutans
grafið sem mest það mátti und-
an slikri stefnumótun og er þaö
hábölvuð iðja sem fyrr segir.
Eina huggunin er sú, að þetta
brölt minnihlutans sýnist ekki
sérlega vinsælt — að minnsta
kosti bentu þingkosningar. um
siðustu helgi til þess, að Sjálf-
Birgir ísleifur Gunnarsson, nýr
þingmaöur I Reyhjavik:
„Ekkert sæld-
arbrauð að
setjast á
Alþingí núna”
L..
Vissa i
óvissunni
Menn eru byrjaðir að kallast á
um stjónarmyndun. Lúðvik og
aðrir Alþýðubandalagsmenn
vilja vinstristjórn — en, nota
bene: Hún á að risa undir nafni.
Steingrimur itrekar loforö um
vinstristjórn. Alþýðuflokks-
menn eru daufastir i dálkinn.
Benedikt Gröndal segir, aö
myndun vinstri stjórnar verði
erfið og kennir Alþýðu-
bandalaginu um fyrirfram.
Kjartan Jóhannsson talar út og
suður um að hann vilji ,,ný
vinnubrögð” og segir véfréttar-
ega, að ekki beri að útiloka
neinn möguleika fyrirfram.
Eins og vænta mátti er það Jón
Baldvin sem talar skýrast um
það sem býr i huga þeirra
Alþýðuflokksmanna. Hann seg-
ir i leiðara i Alþýðublaðinu i
gær:
„Það er vandséð hvern hlut
Alþýðuflokkurinn getur átt I
' stjórnarmyndunartilraunum
Framsóknarmanna. Alþýðu-
flokkurinn rauf rikisstjórn
vegna algers ágreinings I öllum
grundvallaratriðum efnahags-
mála við Alþýðubandalagiö.
Reynslan af siðasta stjórnar-
samstarfi sýndi að Alþýðu-
bandalagið var, að óbreyttri
stefnu, óstjórnhæfur flokkur.
Kosningaúrslitin hafa i engu
breytt þessum staðreyndum.”
En fyrst þetta er „vandséð”
' —-hvaða hlut ætlar Alþýðuflokk-
urinn sér i stjórnmálum á
næstunni? Kannski ætlar hann
strax að fara að undirbúa kosn- _
ingar næsta vor eins og þeir 1
gerðu ihaldsmennirnir sem ■
grétu Ellert Schram úr Valhöll
talningarnóttina? Eða eins og
sálf ræðingurinn sagði:
Kosningar á hverju ári, kæta
hugann, þerra tárin.
— áb.
-09 skoríöí
Málfríður hefur
skrifað skáldsögu
Málfriður Einarsdóttir hefur
komið lesendum á óvart með
tveim bókum sem hún hefur gefiö
út á siðustu árum — Samastaö i
tilverunni og Cr sálarkirnunni.
Fengu þær bækur mjög lofsam-
lega dóma sem undarlegt sam-
bland af heimspeki, æviminning-
um, ádeilu, mannlýsingum og
hugleiðingum um skáldskap og
tilveru, blandaö hæfilegum
skammti af kimni.
Ljóöhús hefur nú gefið út {riðju ,|
bók Málfriöar og er þaö skáld-
saga sem heitir Auðnuleysingi og
tötrughypja sem eru kölluö „sér- j
kennileg skötuhjú” i bókarkynn- ;
ingu.
Málfriöur Einarsdóttir.