Þjóðviljinn - 06.12.1979, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 6. desember 1979 ÞJOÐVILJINN — SIÐA II
íþróttir íþróttirgj íþróttir
Rauða spjaldið
á lofti að leik
loknum
Valursigraði KR i bamingsleik75s71
//Þetta var geysilega erfitt hjá mér þar sem ég er
svotil nýstaðinn uppúr veikindum. En það sem gerði
gæfumuninn hjá okkur öllum var að við börðumst af
miklum krafti allan leikinn," sagði örþreyttur Vals-
maður, Þórir Magnússon eftir sigur þeirra vals-
mannanna gegn erkifjendum KR í úrvalsdeildinni i
körfubolta í gærkvöldi 75-71.
ÞaO eru glæsilegir tilburðirnir hjá Valsmanninum Torfa Magnússyni
þar sem hann skorar i leik KR og Vals i gærkvöldi.
KR-HK í kvöld
tkvöld kl. 18.50 leika I Höllinni
KR og HK i 1. deild handboltans.
KR-ingarnir hafa komið nokkuð á
övart þaö sem af er mötinu og
ættu þvi eftir öllum sölarmerkj-
um að sigra örugglega. Þö er
aldrei hægt að bóka sigur gegn
hinu baráttuglaða liði HK
Liverpool sigraði
t gærkvöldi var einn leikur á
dagskrá ensku deildarbikar-
keppninnar. Liverpool sigraöi
Norwich 3/1 og stefnir þar
með að sigri I þessari keppni i
fyrsta sinn i sögu félagsins.
Fyrir Liverpool skoraöi
Johnson 2 mörk og Daglsish
eitt, Kevin Reeves skoraði
eina mark Norwich rétt fyrir
leikhlé.
— IngH.
Kenny Daglish var á skotskónum f kvöld og skoraði eitt marka
Liverpool i 3-1 sigri gegn Norwich.
Það sem helst vakti athygli i
þessum leik var hve bæöi liðin
voru afspyrnuslök, sérstaklega
slappur körfubolti á boðstólum og
ekki sæmandi tveimur af bestu
körfuknattleiksliðum landsins.
Þá voru skrilslæti áhorfenda og
munnsöfnuður KR-inganna i garð
dómaranna i leikslok ekki til
fyrirmyndar. Auðvitað hefur slik
framkoma sinar afleiðingar og
Marvin Jackson fékk að sjá rauöa
spjaldið hjá Guðbrandi Siguðrs-
syni, dómara og á nú yfir höfði
sér leikbann.
Svo aö vikið sé að leiknum
sjálfum þá byrjuðu Valsmennirn-
ir af miklum krafti og náöu
snemma undirtökunum. 13-8 og
22-10. Bæði liðin léku svæðisvörn
mestan fyrri hálfleikinn og fyrir
bragðið og var þ.a.l. hrútleiðin-
legur á að horfa. Þegar staðan
var orðin 25-14 fyrir Val breyttu
KR-ingarnir yfir i pressuvörn, en
tókst illa að saxa á forskot
Valsmannanna, 31-20, 37-25 og 41-
29 i hálfleik.
Vesturbæingarnir náöu aö
minnka muninn smátt og smátt á
upphafsminutum seinni hálfleiks-
ins, 47-37, 49-44 og 48-51. Þegar
rúmar 11 min. voru eftir hafði KR
skyndilega tekið forystuna 54-53
og þeir náðu 6 stiga forskoti
skömmu seinna, 59-53. Valsmenn-
irnir neituðu að gefast upp og
náöu að komast yfir 63-60 og þá
skiptu liðsstjórar KR Jóni
Sigurðssyni útaf!!! Þetta er ein
furöulegasta skipting sem undir-
ritaður hefur séð i langan tima.
Nú þurfti ekki að spyrja að þvi,
Valur skoraði nú 6 stig gegn 2 KR-
inganna og þá kom Jón inná
aftur, 69-62. Jón dreif félaga sina
áfram og þegar rúm min. var
eftir haföi KR jafnað 71-71 og átti
möguleika á að bæta viö þann
mun, en þeir glopruðu boltanum
útúr höndum sér. Slik mistök not-
uöu Valsararnir sér út I ystu æsar
og tryggðu sér nauman 75-71.
KR-ingarnir áttu einn góðan
kipp i þessum leik, þegar þeir
voru að vinna upp forskot Vals-
manna, en slikt er ekki nóg til
þess að sigra. Lengst af var
varnarleikur þeirra sæmilegur,
en hið sama verður ekki sagt um
sóknina. Þar voru öllum
mislagðar hendur. Einna skástir
voru Jón,Jackson og Garðar.
Valsmennirnir þurftu ekki að
sýna burðugan leik til þess að
sigra. Þar bjargaði einstaklings-
framtakiö þvi sem bjargaö varð.
Dwyer var geysisterkur
framanaf, en sprettir Kristjáns
og sér i lagi Þóris sáu um að
tryggja sigurinn. Hittni Þóris var
hreint með ólikindum. Hvað um
það, þetta var sætur sigur hjá
Val, en ætli þeir sér Islands-
meistaratitilinn þurfa þeir ýmis-
legt að laga.
Stigin fyrir KR skoruöu:
Jackson 30, Jón 17, Garðar 16,
Gunnar 4, Geir 2 og Birgir 2.
Fyrir Val skoruöu: Dwyer 23,
Þórir 18, Kristján 15, Rikharður 7,
Torfi 6 og Jón Steingrims 4.
Dómgæsla Guöbrands og
Þráins I þessum leik var mjög i
samræmi við slaka frammistöðu
leikmanna. Þeim voru einnig
misiagðar hendur, en það afsakar
ekki framkomu ýmissa
áhorfenda og leikmanna i þeirra
garð. Hér þarf greinilega úr að
bæta. — IngH
Það vakti mikla athygli I leiknum i gærkvöldi að fyrrum þjálfari Fram- i
ara, John Johnson var iiösstjóri hjá Val.
„Mun kæra
Jackson og
KR-inga”
Valssigurinn var
aldrei í hættu
Valur sigraði Hauka með 26 mörkum gegn 20
„Þetta var eins og það getur
orðið verst hjá okkur” sagði
Andrés. Semsagt, á brattann að
sækja fyrir Haukana.
Valsmenn eru greinilega aö
ná sér verulega á strik um þess-
ar mundir. Bjarni og Þorbjörn
J. áttu m jög góðan leik og einnig
varði Brynjar af stakri prýði
allann leikinn. Varði hann um 20
skot i leiknum.
Markahæstur Haukanna var
Þórir með 8 mörk og þar af 5 úr
vitum og Stefán skoraði 5 mörk,
að eigin sögn. Þorbjörn J. og
Bjarni skoruðu 7 mörk fyrir
Valsmenn. — IngH
„Við vorum einungis lélegir,
vörnin var hrikalega slöpp. Hins
vegar voru Valsmennirnir mjög
sprækir, sérstaklega I fyrri
hálfleiknum” sagöi Andrés
Kristjánsson fyrirliði 1. deildar-
liðs Hauka eftir að Hafn-
firöingarnir höfðu boriö lægri
hlut úr viöureign viö Valsmenn i
gærkvöldi 26—20.
Haukarnir skoruðu fyrsta
mark leiksins 1—0. Siðan var
jafnt næstu minúturnar, 2—2 og
3—3. Þá tóku Valsmennirnir
mikinn fjörkipp og skoruðu 6
næstu mörk og breyttu stöðunni
i 9—3. Haukarnir réttu litiö úr
kútnum næstu minúturnar,
13—4 og 16—7. Hafnfirðingarnir
skoruðu þvl næst 3 siðustu mörk
hálfleiksins, 16—10.
Haukar skoruðu fyrsta mark
seinni hálfleiks, 16—11. Þessi
munur hélst litt breyttur næstu
minúturnar og minnsti munur á
liðunum var 4 mörk, 19—15.
Haukarnir fengu þá 3 tækifæri
til þess aö minnka muninn enn,
en varð ekki kápan úr þvl klæö-
inu. 6 marka munur varð slöan
út leikinn og hann endaöi 26—20
fyrir Val.
Haukarnir voru sérstaklega
lélegir bæði i vörn og sókn.
I Sagði Guðbrandur Sigurðsson,
: annar dómarinn á leik KR ogVals
„Þú getur Imyndað þér
hvernig það er að standa i
þessu þegar maður þarf að
hætta á að hljóta meiðsii af
völdum áhorfenda eins og
skeði hér I kvöld,” sagði ann-
ar dómara leiks KR og Vals I
gærkvöldi, Guðbrandur
Sigurðsson að leiknum lokn-
um.
Við spurðum hann um það
hvers vegna Jackson hafi
verið sýnt rauða spjaldið,
sem væntanlega þýðir
leikbann fyrir hann.
Guöbrandur svaraöi:
„Maðurinn viðhafði
orðbragð við mig sem vart er
hafandi eftir. M.a. kallaði
hann mig „mother-fucker”,
sem þykir heldur svæsið I
Bandarlkjunum.”
„Aðsjálfsögðumun égkæra
Jackson og einnig KR fyrir
aðtryggjaeldd öryggi okkar
dómaranna, en það rigndi
yfir mig 50-krónu peningum
og einn þeirra hæföi mig i
höfuðið þannig að úr blæddi”
sagði Guöbrandur að lokum.
-IngH
Guðbrandur kominn með
rauða spjaldið á loft.