Þjóðviljinn - 07.09.1982, Page 1
Hvernig stendur á því
að Mitterrand Frakk-
landsforseti, ernú
farinn að hneigjast að
„gaullískum stfl“ í
utanríkismálum?
Sjá 6.
september 1982
þriðjudagur
202. tölublað
47. árgangur
Rekstrarvandi útgerðar
Oliukostnaður 25% aí tekjum
Fyrst stoppaði einn bíll — síðan annar, og brátt var komið bílaöngþveiti og fólksmergð við Elliðaárbrúna.
Það er vakti forvitni var veiðimaður sem var aðlanda vænum laxi rétt neðan við brúna. Ekki telst það nú til
sérstakra tíðinda þótt laxveiði hafi verið treg I ár, en hvað er betri tilbreyting en að gera stuttan stans á leið
heim úr vinnu á góðviðrisdegi og fylgjast með veiðimanni draga sprettharðan lax. — Ljósm. eik.
Hefur
hækkað
um 67%
á fimm
árum
Olíukostnaður minni
skuttogara iniðað við tekjur
hefur aukist um 67% á síðustu 5
árum, samkvæmt upplýsingum
sem Þjóðviljinn aflaði sér hjá
Þjóðhagsstofnun í gær.
Árið 1977 var olíukostnaður
minni skuttogara miðað við
tekjur 15.1% ogminnkaði
niðurí 14.9% áriðeftir. í
kjölfar olíuverðhækkananna
1978jókst þessi
hlutfallskostnaðuruppí 18.3%
árið 1979 og aftur upp í 20.5%
1980.
Endanlegar tölur fyrir
síðasta ár liggja ekki fyrir en
áætlaðar tölur fyrir þetta ár, þá
með talin síðasta
olíuverðshækkun, sýna að
olíukostnaður minni
skuttogara er kominn í 25 -
26% af tekjum. Hér er því um
að ræða 67% hækkun
olíukostnaðar miðað við
tekjur, á aðeins 5 árum.
Samsvarandi kostnaðartölur
fyrir stærri skuttogara eru 3 -
4% hærri að mati
Þjóðhagsstofnunar. jg.
Iðnaðarmenn á Tungnaársvæði:
Verkfall hófst á miðnætti
Verkalýðsfélagið Rangæingur
boðar verkfall 15. september
Á miðnætti í nótt hófst verkfall
iðnaðarmanna í virkjununum á
Tungnaársvæðinu og er það Iðnað-
armannafélag Rangæinga sem að
verkfallinu stendur. 15 — 20 iðnað-
armenn standa í þessari aðgerð og
bitnar vinnustöðvunin einkum á
framkvæmdum við Sultartanga-
stíflu og Kvíslarveitu en einnig að
nokkru í Hrauneyjarfossvirkjun.
Ríkissáttasemjara barst í gær-
morgun verkfallsboðun frá Verka-
lýðsfélaginu Rangæingi þar sem
þeir boða aðgerðir frá 15. septemb-
er, hafi samningar þá ekki tekist.
Næsti sáttafundur í deilunni er á
fimmtudag hjá sáttasemjara. Þar
mun fulltrúi Hagvirkis, sem er
stærsti verktakinn á svæðinu, mæta
til leiks en hingað til hefur Vinnu-
veitendasambandið farið með um-
boð f deilunni.
Á fimmtudag var haldinn fundur
með starfsmönnum í Sultartanga-
virkjun þar sem meðal annarra
komu Magnús Geirsson frá Raf-
iðnaðarsambandinu, Ásmundur
Hilmarsson frá Sambandi bygg-
ingamanna og Sigurður Óskarsson
frá Verkalýðsfélaginu Rangæingi.
Þar var þeim tilmælum beint til
stjórna og trúnaðarmannaráða
þeirra verkalýðsfélaga sem enn
hafa ekki boðað aðgerðir að
gera það strax. Verkalýðsfélagið
Rangæingur hefur orðið við þeirri
áskorun og hjá Rafiðnaðarsam-
bandinu og Sveinafélagi málmiðn-
aðarmanna í Rangárvallasýslu, er
málið í athugun.
— v.
1860 nýir
áskrifendur
í Þjóðviljabásnum á sýningunni
Heimilið og fjölskyldan ”82 sem
lauk um helgina, söfnuðust 1860 til-
raunaáskriftir að Þjóðviljanum og
nær 300 manns tóku þátt í verð-
launagetraun á vegum blaðsins.
Kristín Ólafsdóttir sem hafði
umsjón með þátttöku Þjóðviljans á
sýningunni, sagði mikinn áhuga
hafa verið fyrir blaðinu sem marka
mætti af fjölda nýrra áskrifenda.
Hún kvað dregið úr réttum lausn-
um í verðlaunagetrauninni í dag og
að nöfn verðlaunahafa yrðu birt í
blaðinu á morgun. Sá heppni hlýt-
ur ferð til Amsterdam í vinning.
Barnahornið í Þjóðviljabásnum
var oftast þéttsetið ungu fólki og
liggja nú á blaðinu bunkar af teikn-
ingum, sögum, gátum, skrýtlum og
vísum sem á næstu vikum og mán-
uðum bíður birtingar. Kristín
Heimilis-
sýningunni lauk
um helgina
kvaðst að lokum vilja fyrir hönd
Þjóðviljans þakka öllum þeim vel-
unnurum blaðsins sem lögðu hönd
á plóginn við margvísleg störf á
sýningunni.
Heimilissýningunni lauk sem
áður sagði um helgina og sóttu
hana 74 þúsund manns. Gert hafði
verið ráð fyrir að 70-75.00Ó manns
þyrfti til að endar næðu saman.
Þorskaseiðarann-
sóknir:A
„Eg
segi
pass”
segir Hjálmar
Vilhjálmsson
„Ég segi bara pass. Vil alls
ekki tjá mig um árangurinn
fyrr cn niðurstöður liggja á
borðinu eftir rúman viku-
tíma“, sagði Hjálmar Vil-
hjálmsson fiskifræðingur.
Hjálmar var leiðangurs-
stjóri á Bjarna Sæmundssyni
sem er nýkominn til hafnar
eftir rúmlega þriggja vikna
þorskseiðarannsóknir, eða
svokallaðar núllgrúppurann-
sóknir.
Aðspurður um þær
sögusagnir að lítið hefði fund-
ist af þorskseiðum í leiðangr-
inum sagði Hjálmar.„Ég held
að það sé óráðlegt að hlaupa
eftir slúðursögum. í bili get ég
lítið sagt því öll gögn eru ekki
komin á borðið. Hafþór er
enn við athuganir á Græn-
landshafi.“
Það verður því að bíða í
viku enn til að fá að sjá hvaða
litur verður á þorskskýrslu
ársins.
— Ig-
Morgunblaðið kú-
Venti um helgina og
tekur nú afdráttar-
laust undir kröfur
iðnaðarráðherra og
ríkisstjórnarinnar
um þreföldun raf-
orkuverðs til ál-
versins.
Þrátt fyrir mótmæli
íbúa í Selás- og Ár-
bæjarhverfum
verður Vatnsenda-
vegur áfram lokað-
ur við Árbæjar-
skóla og tengdur við
Selásbraut í stað-
inn.