Þjóðviljinn - 07.09.1982, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 7. september 1982
Sauðfé
á ferð
Nokkuð hefur borið á því
undanfarið að blessuð sauðkind-
in hafi gert skraut- og matjurta-
ræktendum í Eyjum gramt í geði
með því að vaða yfir garða, troða
þar plöntur niður gæða sér jafn-
vel á kálhausum og öðru sem
menn sanka að sér fyrir veturinn.
í FRÉTTUM, vikublaöi þeirra
Eyjamanna er fólki sem á þessar
kindur vinsamlegast bent á að
girða betur eins og reglur segja til
um, en vera ekki, beint eða
óbeint, að beita fénu í garða al-
mennings.
„Hljóð
stund
með
guði og
sj álf um
x 55
ser
Hótaði
að ganga
berlæruð
Nelly Commergnat borgar-
stjóri og þingmaður sósíalista á
þinginu í Frakklandi þurfti að
grípa til hótunar um að ganga
berlæruð um þingsali til þess að fá
uppskrúfaða stofnunina til að
fallast á að leyfa konum að ganga
til starfa sinna í buxum á þinginu.
Nú er það leyfi sumsé komið og
gömul hefð rokin fyrir róða.
Þetta gerist tólf árum síðar en á
þinginu í Vestur-Þýskalandi.
Umburðarlyndið í klæðaburði á
evrópskum þingum mun eftir
sem áður óvíða vera minna en hér
á alþingi íslendinga.
V estmannaeyjar
Nelly Commergnant þingmaður
franskra sósíalista, braut hefð-
ina.
Uppistand í
franska þinginu
Spjallað við
Mariusystur sem
leiða helgarsamveru
„Við leggjum mikla áherslu
á innri kyrrð og mátt bænar-
innar. Við erum glaðar og
hamingjusmar yfir að helga líf
okkar ástinni á Jesú Kristi“.
Það eru tvær Maríusystur
sem svo mæla, en þær verða
hér nokkrar vikur og leiða
helgarsamkomur að Löngu-
mýri og Skálholti.
Systrafélag Maríusystra er á
lúterskum grunni, stofnað í
Darmstadt í Þýskalandi í stríðs-
lok. Leiðtogar systranna voru
þær Móðir Basilia og Móðir
Martyria en nú eru um 200 systur
sem tilheyra reglunni í öllum
heimsálfum.
Systurnar sem hér eru heita
Juliana og Phanúela, — Júlíana
er finnsk og Phanúela þýsk.
í viðtali við þær sögðu þær að
þær mættu mættu ekki giftast
fremur en katólskar nunnur.
„í þessu starfi verður þú að
helga þig alla Jesú. Það er ekki
hægt ef þú ert með heimili og
börn. Ogþettaer ekki þvingandi.
Við erum glaðar og vinnum mik-
staðfast í trúnni og það heldur?
Hvers vegna lætur það ekki vígja
sambúð sína? Við viljum hjálpa
fólki til að fá svar við þeirri spurn-
ingu. Stærsti sársauki Jesú er af-
skiptaleysi og sinnuleysi fólks um
hann. Fólk heldur að það geti
verið sinn eiginn herra, en það er
misskilningur. Þú átt aðeins um
tvennt að velja, Satan eða Guð.
Og viö hjálpum fólki til að fylgja
boðum Guðs. Við viljum hjálpa
öllu því fólki sem er í neyð og
kreppu til að mæta sjálfu sér í
gegnum bænina. Á hljóðri stund
með sjálfu sér getur það fundið
leið að betra lífi, — öðru vísi lífi.“
Og þeir sem vilja kynnast
Maríusystrunum á helgarsam-
veru er bent á að snúa sér til Bisk-
upsstofnunar. **
Þs
Skattar á
Vestfjörðum:
Bolvíkingar
greiða mest
Um miðjan ágústmánuð var
skattskrá Vestfjarðarumdæmis
lögð fyrir. Margt forvitnilegt ber
fyrir augu og kemur m.a. í Ijós að
heildargjöld einstaklinga nema
alls um 162 miljónum króna. Þá
kemur í Ijós að meðalálagning er
mest í Bolungarvík eða kr.
27.334. ísafjörður kcmur næst
með u.þ.b. 26 þúsund.
Hæstu gjaldendur í umdæminu
meðal einstaklinga eru þessir:
Jón Fr. Einarsson, Bolungar-
vík, kr. 426 þús., Hrafnkell Stef-
ánsson, ísafirði, kr. 382 þús.,
Ruth Tryggvason, ísafirði, kr.
341 þús., Tryggvi Tryggvason, ís-
afirði, kr. 303 þús., Guðfinnur
Einarsson, Bolungarvík, kr. 226
þús.
Júlíana og Phanúela brosmildar með Lúther á milli sín. Ljósm. — eik
ið saman, en höfum einnig mik-
inn tíma með okkur sjálfum í friði
og einveru."
„Fáið þið laun?“
„Nei, við fáum engar beinar
launagreiðslur. Allt sem við ger-
um er unnið í sjálfboðavinnu, en
við fáum óbein framlög og fjár-
hagsstuðning frá ýmsum aðilj-
um.“
„Getur hver sem er gengið í
systrasamfélagið?"
„Já, svo fremi hún er 18 - 30
ára, ógift og hefur hlotið köllun
til þessa starfs."
Systir Juliana, sem er finnsk og
ung að árum sagði okkur að hún
hafi verið að læra líffræði í há-
skóla þegar hún fékk þessa köll-
un: Ég fór til Þýskalands og varð
mjög hrifin af starfseminni. Mig
langaði til að helga líf mitt Jesú.
Þetta var mín köllun."
Systir Phanúela, sem á lengra
starf að baki sem Maríusystir
segir okkur að hún hafi margsinn-
is sannað mátt bænarinnar í starfi
sínu. Systurnar fara mjög víða og
mótmæla hvers kyns guðlasti.
„Heimurinn er fullur af því.
Við reynum að mótmæla öllu
þessu auglýsingaskrumi með
Jesú. Við viljum endurvekja trú á
lög og reglu samkvæmt Kristinni
kenningu. Hvers vegna vill ungt
fólk í æ ríkara mæli hundsa bo-
ðorð krists og lifa í óvígðri
sambúð?
„Er ekki fyrir mestu hvernig
fólk lifir, en ekki hvort það er vígt
eða óvígt?“
„Hvers vegna vill ungt fólk
ekki gera eins og Jesú biður okk-
ur? Er það kannski ekki eins
Haldið þið að það sé gaman að vera forseti? Myndin að ofan sýnir svarið.
Sovéskt
hafrannsóknarskip
í Reykjavikurhöfn:
Prófessor
Zubov
leggst að
bryggju
Fyrir nokkrum dögum lagðist
við Faxabryggju í Reykjavíkur-
höfn sovéska rannsóknarskipið
Prófessor Zubov. Skipið er engin
smásmíði, tæp 7 þúsund tonn,
124 metrar að lengd og 17 metra
breitt. Það er eign Heimsskauta-
rannsóknarstofnunarinnar í Len-
íngrad.
Skipið kom beint frá Lenín-
grad og eftir tiltölulega stutta við-
komu heldur það norður á land
þar sem það mun kanna hitastig í
sjónum, mengun, sjávarstreuma
og breytingar á hitastigi, bæði
sjávar og í andrúmslofti. Skipið
mun halda uppað ströndum
Grænlands fara til Jan Mayen,
síðan í Norðursjóinn og þaðan
halda heim á leið.
Fulltrúum Hafrannsóknar-
stofnunar og Veðurstofunnar var
ásamt blaðamönnum gefinn kost-
ur á að skoða skipið. Það er búið
fullkomnum tækjum til rann-
sókna. Þarna starfa 80 manns og
samanstendur hópurinn af vís-
indamönnum, vélstjórum, tækni-
mönnum, starfsmönnum rann-
sóknarstofu auk annarra með-
lima áhafnarinnar. — hól.