Þjóðviljinn - 07.09.1982, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 7. september 1982
*Þrigjudagur 7. september 1982 ÞJÓÐVILJINN — StDA 9
Amor vekur Psykke úr öngviti. Marmaramynd gerð árið 1810.
Bertel
Thorvaldsen
listamaður
íslenskrar ættar
Bertel Thorvaldsen var á sinni tíð einn frægastur
listamaður Evrópu. Hann fæddist í Danmörku 1770.
Faðir hans var íslenskur, Gottskálk Þorvaldsson tré-
skurðarmaður, en móðirin var dönsk. Hann ólst upp í
Danmörku og steig þar sín fyrstu spor á braut högg-
myndalistarinnar. Síðar fluttist hann til Rómarborgar
þar sem hann varð fullnuma í list sinni, þ.e. að svo
miklu marki sem það er hægt. Hann settist að þar í borg
og bjó þar stærstan part ævi sinnar.
f>að er ekki að ástæöulausu að
með íslendingum vaknaöi mikill
áhugi á Bertel Thorvaldsen. Hafa
suniir þóst nierkja að hið íslenska
innlegg í Bertel hafi þegar öllu er á
botninn hvolft reynst þyngra á
metunum. í öllu falli er nafn móður
Bertels óvíöa að finna, en faðir
hans Gottskálk Þorvaldsson mun
samkvæmt heímildum hafa verið
vel ættaður, sonur séra Þorvalds
Gottskálkssonar prests á Miöbæ í
Blönduhlíð og Guðrúnar Ásgríms-
dóttur. Gottskálk sigldi ungur yfir
hafið til að nema þar handverk í
Kaupmannahöt'n, og með í förinni
voru tvö systkini hans, Ari og Ólöf,
en það þótti nýiunda að kvenmenn
legðu í slíka ferð. Mun Oiöf hafa
átt að vera þeirn bræðfum til halds
og trausts.
Gottskálk gerðist lærlingur hjá
dönskum myndhöggvara og þess
utan tréskurðarmaður. Ilann
fékkst við ýmislegt sem listrænt
mátti kallast, og á þeim tíma hefur
hann sennilegast verið kallaður
handverksmaður.
Gottskálk kynntist danskri
konu, nokkru eldri en hann. Karen
Dagens, en hún var jósk, dóttir
djákna. Munu foreldrar hennar
hafa búið við kröpp kjör. laun
djáknans lítil og í ofanálag var
móðir hennar drykkfelld með af-
brigðum svo til vandræða horfði.
Karen og Gottskálk felldu hugi
saman og gengu stðan í hjónaband.
Þau eignuðust aðeins eitt barn.
Bertel Thorvaldsen. Sanibúð
Æska og sumar, eitt
verkanna á sýningunni
Listasafn íslands á þessa styttu, marmaramynd af Ganymedesi.
^pÍiBBÍÍ8Í!a
.
p.ý-" j'
Amor og Psykke, verk frá 1807.
þeirra var stormasöm og var á tíð-
um samkomulag með herfilegra
móti. Gottskálk var drykkfelldur
þó sagan taki þann fyrirvara, að í
raun megi menn vara sig á þjóðsög-
unni.....sem ætíð situr unt að
skerpa skin og skugga krrngum
hetju sína...“
Svoddan hrekkjalimur
Um heimilishaldið skrifaði Ber-
tel eitt sinn: „Foreldrar ntínir voru
fátækir og höfðu ekki efni á að láta
rnig fara í skóla. Sjálfum fannst
mér líka best að flækjast um og fara
að eigin geöþótta og ég var kominn
á tólfta ár þegar faðir minn fór
loksins að láta mig hjálpa sér viö
tréskurð sem var atvinna hans. Eg
hafði alltaf gaman af aö teikna og
þcgar einn af vinum föður mínssá á
því sem ég hafði krotað á hurðir og
veggi aö ég hafði hæfilcika sagði
hann við föður minn: „I Ivers vegna
(J ^ ...
Sýningin að Kjarvalsstöðum
Tómas t.v., þá Júdas og síðan Kristur.
Guðmundur Benediktsson myndhöggvari vinnur að uppsetningu sýningarinnar.
I baksýn er mynd af Bert Thorvaldsen, en hún er í híbýlum forseta íslands að
Bessastöðum. — Ljósmyndir: Gunnar Elíasson.
Sýningin á verkum Bertels
Thorvaldsen var opnuð að Kjarv-
alsstöðum síðastliðinn föstudag.
Verndarar sýningarinnar verða
þau Ingiríður ekkjudrottning og
dr. Kristján Eldjárn. Sýningin
stendur til loka október og að-
gangur ókeypis.
Hugmyndina um að slík sýning
yrði sett hér upp átti sendiherra
Dana á íslandi, Janus Paludan, en
hann er mikill aðdáandi Thorvald-
sen. Forstöðumaður Thorvald-
sensafnsins í Kaupmannahöfn, frú
Dyveke Helsted, hefur unnið að
uppsetningu ásamt safnvörðum og
fleirum.
Af þeim íslendingum sem koma
nálægt uppsetningunni skal telja
Júlíönu Gottskálksdóttur, Þóru
Kristjánsdóttur og Stefán Hall-
dórsson.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14-22. _ h61.
Forstöðumaður Thorvaldscn —
safnsins í Kaupmannahöfn við
vinnu sína að Kjarvalsstöðum.
Hún heitir Dyveke Helsted.
látið þér drenginn ekki fara í Iista-
háskólann?" en faðir minn svaraði
aðeins: „Hann er nú svoddanri-
hrekkjalimur, hvað skyldi svo sem
verða úr honum meðal piltanna
þar. Þar sem ég óskaði einskis frek-
ar en að fara í listaskóla þrábað ég
þennan vin föður míns unt að vinna
hann á sitt band sem honum tókst
að lokum."
11 ára gatnall í
F agurlistaskólanum
Ungir byrjuðu menn j fagurlist-
askólanum og Bertel var ekki
nema 11 ára gamall. Þar átti hann
eftir að vinna öll verðlaun skólans.
Mesta viðurkenningin voru gull-
verðlaun fyrir lágmynd sótt í efni
Biblíunnar. Verðlaunum þessum
fylgdi utanfararstyrkur sem hann
fékk í hendur nokkrum árunt síðar.
25 ára gamall hélt hann svo uppí
námsferð sína til Rómar ásamt
hundi sínum Hektor. Þar yfirgaf
hann foreldra sína; sá þá aldrei
framar.
í Rónt dreif ýmislegt á daga Ber-
tels Thorvaldsen. Hann lcnti þar i
flóknum ástarsamböndum, en
höggmyndalistin var þó hinn rauöi
þráður í lífi hans. Meö ítalskri
sendiherrafrú, Önnu Maríu Magn- *
ani. átti hann tvö börn. Róm hcfur
ugglaust haft geysileg áhrif á Bertel
sent listamann. enda gætir þeirra í-
verkum Itans. Þegar námsstyrkur
hans var upp urimi stóð til að hann
yrði aö halda til Kaupmannaháfntii'
þar sem eftir litlu var að slægjast
fyrir listamann á borð við hann. Úr
því varð þó aldrei. Viö þröngan
kost þraukaði liann áfram, og brátt
tóku verk hans að vekja athygli.
Stytta hans af Jason féll í góðan
jarðveg og brátt tóku fyrirspurnir
og pantanir að berast í verk hans.
Á tiltölulega skömmum tíma var
Bertel Thorvaldsen orðinn einn
mikiihæfasti ogvirtasti listamaðurí
Rónt og ungir danskir listamenn
sem þangað leituöu knúöu oft dyra
hjá honum, hann hjálpaði þeim
fjárhagslega og styrkti þá á marg-
víslegan hátt. Þegar hann var orö-
inn fjárhagslega sjálfstæður og gott
betur, kom hann á fót eigin lista-
verkasafni. Til þess var tekiö að í
þessu safni var margt listaverkiö
sem sötti í stílbrögö sem þá áttu
ekki uppá pallboröiö, hvorki hjá
almenningi né heldur gagnrýnentP
um. Hann hugöist kaupa liöll í ná-
munda viö Péturskirkju undir verk
sín, en á endanum var höllin seld
römverskum fursta og banka-
eigenda. Thorvaldsen arfleifði síð-
an Kaupmannáhöfn að listaverka-
safni sínu.
Ljónið í Luzern
í Thorvaldsen-safninu í Kaup-
mannahöfn sem var sett á fót IK48,
fjórum árurn eftir lát hans er að
finna hvorki fleiri né færri en 840
verk eftir Thorvaldsen. Þó er ekki
öll sagan sögð, því víða um heim
éru verk hans til. Sjálfsmynd
Thorvaldsen vargefin íslendingum
á því herrans ári 1874 þegar ís-
landsbyggð varð 1000 ára og árið
1931 var hún flutt í llljómskála-
garöinn. Á sýningunni aö Kjarvals-
stöðum eru auk þess tvö önnur
verk Thorvaldsen sem hér hafa
staðið í æði mörg ár, annaö er
brjóstmynd af Jóni Eiríkssyni kon-
ferensráöi og er það í eigu Þjóð-
minjasafnsins, hitt er marmara-
mynd af Ganymedesi sem Lista-
safn íslands á.
Af þeirn verkunt Thorvaldsen
sem eru dreifð vítt og breitt um
heiminn er ljónið í Luzern senni-
lega eitt það þekktasta. Það er
hoggið í klettavegg og er einskonar
tákn þessarar fallegu borgar. Á
bak við höggmyndina af hinu
deyjandi Ijóni er saga af svissnesk-
um lífvörðum páfa, sem samkvæmt
hefð eru ávallt af svissnesku bergi
brotnir, en féllu í frægri orustu við
Tuileriehallir í París árið 1792.
— hól.