Þjóðviljinn - 29.06.1985, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 29.06.1985, Blaðsíða 13
RMÁL Kjarnorkukomminn Ekki veit ég h vort mannkyninu stendur, meiri ógn afkjarnorku- sprengjunni en kjarnorku- kveðskap. ífljótu bragði virðist eini munur- inn áþessum fyrirbœrum verasá að kjarnorkukveðskapurinn er seigdrepandi en kjarnorku- sprengjan ódrepandi. Ég er kjarnorkukommi og yrki um ógnir, dauðaogstríð, um myrkur, ræsi, rigningu og blóð og reiðan, þjáðan lýð. Og harmatölur heimsins alls á herðum mínum ég ber. En kjarnasprengjan alltaf er efst í huga mér. Bombuna ég yrki um öll mín bestu Ijóð. Við geislavirku voðaskýi égvaramínaþjóð. Eldur brennur í æðum mér, ég er svo reiður og sár. Þið verðið steikt og stiknuð öll ogsteindauðeftirár. Ég leita uppi óvini og óðurberst viðþá. Ég deili á menn, ég deili á allt semdeilanlegterá. Ef finn ég óvin ekki neinn aðeigaíhöggi við, þá þefa ég uppi einhverja hugsjón og æstur legg henni lið. Ég erámótiölluþví semaðrireru með. Ég er á móti Albert og Lúsí, áengu hefég geð. Ég er einn og allir menn eru á móti mér. Ég er á móti mótmælum gegn mótmælum gegn her. Sverrir Stormsker «11» 9 1 Finlux-myndbandstæki 4ra ára, ný yfirfariö til sölu. Verð 22 þúsund. Sími 39442. Einnig til sölu gamall, en góöur stofuskápur. "Svo segistu aldæi hafe komið nálægt þessu tæki! a oddinn mér þá skoðun að hann væri gam- all hippi, að minnsta kosti þrí- tugur, ef ekki á fertugs aldri, hvort sem fólk nú telur það þroska eða vanþroska merki, eða Sverrir sér til hróss eða lasts. Til að koma í veg fyrir að aðrir dragi slíkar ályktanir skal það upplýst að Sverrir Ólafsson mun rétt rúmlega tvítugur vera. En hvað um það; hitt eða annað mál að „Hitt” er annað mál er sérstakt fyrirbæri og upplífgandi nokk á íslenskum hljómplötumarkaði þrátt fyrir óvandvirknishnökra - sem kannski eru þó ómissandi þáttur í hinu, eins og áður er minnst á... og þó - Frank Zappa nær til dæmis settu marki og er yndislega klúr en jafnframt einn vandvirkasti og besti músikant sem ég hef barið eyrum. Hins vegar minnir Sverrir mig á Zappa að því leyti að vera snyrtilega klúr, það er að segja láta sér ekki dónaleg orð um munn fara en ná samt fram því „dónalega”. Að vísu er Frank gamli víðar hugs- andi en Sverrir og náttúrulega ósanngjarnt að bera ungan dreng af íslandi saman við heimsfrægan og -virtan tónlistarmann frá henni Ameríku. En gert er gert, og þar á ofan höfum vér þá trú að ekkert, jafnvel ekki hitt, ætti að gera honum ókleift upp á leið að koma röddinni og öllu sínu geði, ... nema þá kannski hann vilji það ekki sjálfur. A AFMÆU Jón Þorvaldsson 70 ára Sjötugur er í dag 29. júní, Jón Þorvaldsson húsgagnasmiður, ótrúlegt en satt. Pegar að ungir menn taka upp á því að verða allt í einu sjötugir hlýtur maður að hrökkva í kút. Það eru fáir eins ungir í andan- um og þú félagi Jón og vegna dagsins langar mig að sendi þér þakkir fyrir baráttuandann þessi 19 ár sem við höfum þekkst. Þegar við kynntumst var ég ungur gasprari að byrja í þessu félagsmálastarfi, þóttist allt kunna og vita en þú sjóaður í lífs- baráttunni, í stéttarátökum lið- inna tíma, ótæmandi viskubrunn- ur fyrir óreyndan mann í forystu lítils verkalýðsfélags. Með þinni alkunnu snilld og hæversku leiddir þú mig í allan sann- leikann, svona eiginlega án þess að ég tæki eftir því, og hjá ykkur félögunum lenti ég í býsna góðum skóla, sem hefur verið mér drjúg- ur síðan. Brennandi í andanum hefur þú ætíð verið þessi ár, ævin- lega í fremstu víglínu kjarabarátt- unnar, margar ferðirnar höfum við farið saman á verkfallsvaktir sem eru mér ógleymanlegar. Enn ertu í fuílu starfi fyrir verkalýðsfélagið, í trúnaðar- mannaráði og í starfsnefnd sem miklar vonir eru bundnar við. Nú þegar bárur frelsis brotna á ströndum og ægivaldurinn ræðst á velferðarþjóðfélagið, brýtur niður kjör verkafólks og réttindi þess. Nú þegar ógnir herja á al- þýðuna eru svona menn eins og þú Jón ómissandi. Ótrauðir bar- áttumenn sem hafa tveggja tíma sýn, menn sem þekkja kreppu millistríðsáranna, menn sem geta bent okkur yngri mönnum á flagðið sem rótast undir þessu fagra skinni sem frjálshyggja er kölluð nú og hefur áður gengið undir ýmsum nöfnum. Frelsi manna á ekkert skylt við frelsi peninganna. Ég veit að þú verður sem áður fremstur í flokki við að méla fún- ar stoðir sérhyggjunar og við að reisa á ný réttlátt þjóðfélag. Ég árna þér, konu þinni, og fjöl- skyldu alls hins besta. Baráttukveðjur. Kristbjörn Árna. Nótulaus viðskipti geta virst hagstæð við fyrstu sýn. En þau geta komið þér í koll því sá sem býður þér slíkt er um leið að firra sig ábyrgð á unnu verki. Taktu nótu - það borgar sig Auk fjölmargra breytinga og leiðréttinga sem skattstjórar landsins gera á skattframtölum, tekur skattrannsóknarstjóri fjölda félaga og einstaklinga til sér- stakrar rannsóknar á ári hverju. Árið 1984 voru 360 mál í athugun. Dæmi eru um að skattaðilar hafi verið rannsakaðir sex ár aftur í tímann og fengið skattahækkanir svo milljónum skiptir. Loftnetsviðgerðar- 1 maðurinn var svo almennilegur að ég hunni ehhi við að biðja hann um nótu. F|ÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ Auglýsingaþjónustan

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.