Þjóðviljinn - 29.06.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 29.06.1985, Blaðsíða 16
Leiklist Strindberg er nálœgur Stúdentaleikhúsið trumsýnir Draumleik eftirStrindberg og Norrœna húsið gengstfyrirsýningu á Ijósmyndum hans og fyrirlestri dr. Olof Lagercrantz Sannkölluð Strindbergs- hátíð verður í Stúdentaleik- húsinu og Norræna húsinu í júlímánuði. Þann 11. júlíer frumsýning á Draumleikeftir AugustStrindberg undirleik- stjórn Kára Halldórs en Árni Harðarson tónskáld og stjórn- andi Háskólakórsins hefur frumsamið alla tónlist í sýn- ingunni. Tæplega 40 manns starfaað þessari uppfærslu. ( tengslum við þessa sýningu efnirsvo Norræna húsið til sýningar á Ijósmyndum Strindbergs og hefst hún 25. júlí en 7. júlí mun dr. Olof Lag- ercrantz haldafyrirlesturum Úrsýningunni. Erling Jóhannsson og Harpa Arnardóttir. Ljósm.: ívar Brynjólfs- son. Hluti af hópnum sem stendur að Draumleik. Meðal annarra má sjá Kára Halldór leikstjóra, Árna Harðarson tónskáld, dr. Árna Sigurjónsson og Knut Ödegaard. Ljósm.: Valdís. skáldið en hann hefur ritað ævisögu hans og er allra manna fróðastur um líf og starfStrindbergs. Draumleikur hefur aldrei áður verið settur upp á íslandi en verk- ið er lengi búið að vera til í þýð- ingu Sigurðar Grímssonar. Mjög vönduð leikskrá verður gefin út í þessu tilefni og eru meðal höf- unda efnis Thor Vilhjálmsson rit- höfundur og séra Gunnar Krist- jánsson. í leikskránni kennir margra grasa og má þar nefna skrá yfir öll verk Strindbergs sem hafa verið þýdd á íslensku sem dr. Árni Sigurjónsson tók saman. Hann ásamt Antoni Helga Jónssyni, rithöfundi Hafliða Arngrímssyni leikhúsfræðingi og Ingileif Thorleif Thorlacius ann- ast ritstjórn skrárinnar. Alls koma fram í sýningunni 16 leikarar en 10 manna hópur, að- allega úr Myndlista- og handíð- askólanum, annast gerð leik- myndar og búninga. Söngur og hljóðfærasláttur gegnir veiga- miklu hlutverki í sýningunni og er að mestu leyti í höndum leikar- ana sjálfra. Eins og nafnið bendir til er Draumleikur eftir Strindberg dulúðugt verk þar sem röklegur þráður lýtur oft á tíðum lögmál- um draumsins. Teflt er saman draum, skáldskap og veruleika og tími og rúm er ekki til. Leikrit- ið fjallar um konu, guðlegrar ætt- ar, sem fer til jarðar til að kanna hvernig mannlífið er. Viðkvæðið er: Mikið eiga mennirnir bágt. Leikritið var samið árið 1901, þegar Strindberg átti í sínu næstsíðasta ástarævintýri með ungri norskri stúlku. Einn hinna ungu leikenda í sýningunni sagði á blaðamannafundi: Það er mjög skrýtinn heimur sem kemur fram í verkinu. Við fyrstu sýn er allt mjög þungskýjað en eftir því sem maður les verkið oftar og veltir því fyrir sér kemur fram meiri húmor og meiri gleði uns allt er orðið heiðskírt. Knut Ödegaard, forstjóri Nor- ræna hússins, sagði á sama fundi að tímar Strindbergs, Munks og Hamsuns hefðu verið býsna und- arlegir en þeir væru nú að nálgast aftur og höfðuðu til ungs fólks. Strindberg er nálægur, sagði hann. -GFr MENNING GEGN'ALKA STEINVARI 2000 er íslensk uppfinning sem á sér enga hlið- stæðu. Þessi einstaka málning á rætursínaraðrekja til langrar reynslu íslendinga í að mála steinhús að utan, þekkingar og reynslu sem fengist hefur í baráttunni við alkalíefnahvörf í steinsteyptum mannvirkjum og óska íslenskra sérfræðinga um málningu sem gerir steinsteypu vatnsþétta án þess að hindra útöndun hennar. STEIIMVARI 2000 hefur gengist undir umfangsmikla nýnæmis- rannsókn á erlendri tæknistofn- un. Niðurstaða hennar ersú að STEIIMVARI 2000 er nýjung sem Málning hf. getur fengið einkarétt til framleiðslu á. Þetta eru góðar fréttir fyrir starfsfólk Málningar hf„ íslenskan iðnað og alla sem þurfa að mála steinsteypt hús að utan. Fyrír veðrun Eftir veðrun málning'i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.