Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1996, Blaðsíða 4
4 fréttir LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 JLlV Stúlka sem var á leið heim til sín að næturlagi kærði bílstjóra: Leigubílstjóri sýknaður í kynferðisbrotamáli - mið tekið af frásögn hans þrátt fyrir óstöðugan og ósannan framburð Leigubílstjóri á fimmtugsaldri hefur veriö sýknaður af sakargift- um um að hafa notfært sér svefn- drunga stúlku sem var farþegi hjá honum, haft við hana samfarir og þannig notfært sér ástand hennar kynferðislega. Fjölskipaður dómur í Héraðsdómi Reykjaness komst að þeirri niðurstöðu að „ósennilegt" hefði verið að samfarir mannsins við stúlkuna hefðu verið án „viss frumkvæðis" farþegans. Stúlkan kærði verknaðinn klukk- an hálfsjö að morgni laugardagsins 30. september siðastliðins. Hún var þá komin í hús í Garðabæ þar sem hún hafði verið fyrr um nóttina. Stúlkan sagðist hafa yfirgefið húsið um nóttina er hún ætlaði heim, sest í framsæti í umrædds leigubíls og sofnað ölvunarsvefni. Það næsta sem hún myndi hefði verið að er hún vaknaði hafi hún „setið“ og verið í samförum við bílstjórann. Báðum málsaðilum bar saman um að þá heföi stúlkan sagt: „Hver ert þú?“ og síðan hefði hún tekið mann- inn kyrkingartaki og orðið ofsareið er hún áttaði sig á kringumstæðum. í kjölfar þessa ók bílstjórinn stúlkunni á ný í Garðabæinn þar sem hún tilkynnti um verknaðinn. Er lögreglan hafði fyrst tal af mann- inum neitaði hann að hafa haft sam- farir við stúlkuna en viðurkenndi slíkt hins vegar við aðra yfir- heyrslu. Hann sagði stúlkuna hafa „reynt við sig“ og hann síðan tekið á móti. Bílstjórinn viðurkenndi á hinn bóginn að eftir á að hyggja væri ljóst að hún hefði talið sig einhvern annan karlmann eins og stúlkan reyndar bar sjálf. Sum atriði í fram- burði bílstjórans komu ekki heim og saman við staðreyndir sem fram komu viö rannsókn. Framburður hans var því ekki taiinn stöðugur. Niðurstaða hins fjölskipaða dóms varð hins vegar sú að ósennilegt væri að samfarir ákærða og kær- anda heföu getað orðið með þeim hætti sem bæði sögðu frá án þess að ákveðnum athöfnum og frumkvæði stúlkunnar heföi verið til að dreifa. Einnig yrði ekki litið fram hjá því að hún virtist hafa farið mannavillt. Dómurinn vísaði jafnframt í lagaákvæði um misneytingaraðferð en í því felist að ótvírætt þurfi að vera um það að ræða að einhver „notfæri sér“ ástand brotaþola. Svefnástandið dugi ekki eitt og sér til sakfellingar. -Ótt Skýrsla Ríkisendurskoðunar: Bókhald og tekjuskráning Flugmálastjórn- argagnrýnt - greiðslum ekki ráðstafað á rétta reikninga í skýrslu Ríkisendurskoðunar um ríkisreikning 1994 má lesa fjölmarg- ar athugasemdir um rekstur og bók- hald Flugmálastjórnar og Alþjóða- flugþjónustunnar það ár. Tekju- skráning er gagnrýnd, sem og eigna- skráning, dráttur varð á afborgun- um lána, tvö fjárdráttarmál komu upp á árinu og greiðslum var ekki ráðstafað á rétta reikninga. Bókfærðar tekjur Flugmálastjóm- areruuml milljarður króna á ári. í skýrslunni er bent á nokkur atriði sem taka þarf til athugunar í sam- bandi við tekjuskráningu hjá stofn- uninni. Ríkisendurskoðun telur ríka ástæðu til að gefa tekjuskrán- ingunni meiri gaum en gert hefur verið til þessa sökum mikilla og margbreytilegra tekna stofnunar- innar. Virkara innra eftirlit „Sérstaklega virðist nauðsynlegt að byggja upp virkara innra eftirlit hjá stofnuninni sjálfri varðandi tekjuskráninguna þannig að ganga megi að því vísu að allar tekjur skili sér að fullu. Þá er gerð athugasemd við að lendingargjöld, flugvallagjöld og eldsneytisskattur séu færð sem sértekjur Flugmálastjómar. Hér er um að ræða markaðar skatttekjur sem ættu með réttu að færast með öðram ríkissjóðstekjum," segir m.a. í skýrslunni. Rikisendurskoðun bendir á að við endurskoðun í fyrra hafi komið í ljós að talsvert var um að starfs- mönnum væri lánað fé úr sjóði sem gjaldkeri hefur undir höndum. Þetta var gert með þeim hætti að ávísunum var skipt fyrir peninga en þær siðan ekki innleystar fyrr en síðar. Ríkisendurskoðun bendir á að slíkar fjárveitingar til starfs- manna séu óheimilar en veruleg umskipti til hins betra hafi orðið hjá stofnuninni hvað þennan þátt varðar. Athugasemd var gerð við að greiðslu upp á tæpar 47 milljónir, sem barst frá Alþjóðaflugmálastofh- uninni, hafði ekki verið ráðstafað á reikning Alþjóðaflugþjónustunnar í Seðlabankanum, eins og öðrum greiðslum vegna þjónustu við al- þjóðaflugið. Þá gerir Ríkisendurskoðun at- hugasemd við birgðahald þar sem ekki var nógu gott eftirlit með að út- tektarseðlar skiluðu sér í bókhaldið. Nokkur dráttur hefur orðið á að afborganir af lánum, sem og vextir, sem tekin hafa veriö vegna ýmissa fjárfestinga, væru greiddar á gjald- daga. Hefur það leitt til þess að Al- þjóðaflugþjónustan hefur orðið að taka á sig vanskilakostnað. Ríkis- endurskoðun telur að það eigi að vera hægt að komast hjá slíkum út- gjöldum. Nauðsynlegt sé að fulltr'ú- ar Flugmálastjómar ræði þetta mál við ríkisféhirði og fjármálaráðu- neytið enda séu greiðslur af lánum þessum fjármagnaðar í gegnum bankareikning Alþjóðaflugþjónust- unnar í Seðlabankanum. -bjb Hún Steinunn Björk var á leið með afmælisblóm til kennarans í gær. Kennarinn heppni heitir Borghildur og kennir við Vesturbæjarskólann. Dv-mynd GVA Vita- og hafnamálastofnunin: Ekki vaskur á reikningum verktaka - samkvæmt skýrslu Ríkisendurskoðunar Vita- og hafnamálastofnunin fær nokkrar athugasemdir frá Ríkisend- urskoðun vegna ríkisreikningsins 1994. Meðal þess sem er gagnrýnt er að ákveðnir reikningar vegna verk- takavinnu bára ekki að reiknaður væri virðisaukaskattur af fjárhæð þeirra. Ríkisendurskoðun hefur beint þeim tilmælum til stofnunar- innar að versla aðeins við aðila sem eru meö skráða starfsemi og gefa út reikninga sem uppfylla tilskildar kröfur. Bent var á að Vita- og hafnamála- stofnunin þyrfti að marka skýrari vinnureglur um reikningsviðskipti og innheimtu útistandandi við- skiptakrafna, m.a. að kveða á um greiðslufrest krafna og til hvaða innheimtuaðgerða eigi að grípa komi til vanskila. Bókhald stofnunarinnar er ekki færi í sérstakt bókhaldskerfi á veg- um ríkisins heldur í bókhaldskerf- inu Stólpa. Ríkisendurskoðun gerir athugasemd viö að engin skrifleg lýsing var til á bókhaldi, þ.e. hvorki á fjárhags- né rekstrarbókhaldi, samanber lög um bókhald. Heildstæð eignaskrá lá ekki fyrir hjá stofnuninni. Ríkisendurskoðun telur að úr þessu þurfi að bæta með því að merkja eignir og skrásetja. Vakin er athygli á að eignir sem færðar era hjá þjónustumiðstöð stofnunarinnar hafi ekki verið af- skrifaðar eins og þó væri ætlast til hjá stofhunum í B-hluta rikisreikn- ings. Ákveðið hefur verið að fækka fjárlagaliðum sem snerta Vita- og hafnamálastofnun úr fjórum í tvo. Að mati Ríkisendurskoðunar heföi mátt ganga lengra og hafa fjárlaga- liðinn aðeins einn. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.