Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1996, Blaðsíða 45
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996
KkVikmyiidir*
Kristjana Friðbjömsdóttir:
Mér þykir hún mjög góð og
fyndin líka.
m
Birgir Sigurðsson:
Þetta er bara fín mynd,
svona Pollýönnumynd.
Ingveldur Steindórsdóttir:
Mér finnst gaman að þessari
mynd. Hún er skemmtileg.
Þór Sigurðsson:
Nokkuð góð, alla vega fyrir
ofan meðallag.
Sú sem vakið hefur mesta athygli
af hinum ungu leikkonum sem fara
með aðalhlutverkin í Norn-
aklíkunni er Fairuza Balk. Banda-
rískur kvikmyndagagnrýnandi
sagði um hana, eftir að hafa séð
Nornaklíkuna: „Hún lítur út eins og
köttur sem er nýbúinn að gæða sér
á gómsætri mús.“
Fairuza Balk var aðeins níu ára
gömul þcgar hún lék fyrst í kvik-
mynd. Var það í framhaldinu af
Galdrakarlinum í Oz, Return to Oz.
Var hún valin úr hópi 1200 stúlkna
i það hlutverk. Þegar leikstjórinn
kunni, Milos Forman, réð hana til
að leika í kvikmynd sinni, Valmont,
var hún aðeins fjórtán ára gömul.
Fékk hún góða dóma fyrir leik sinn
í þeirri mynd en táningaárin voru
henni erfið og á tímabili lagðist hún
í þunglyndi og virtist svo sem leik-
ferill hennar væri að renna út í
sandinn.
Þetta tímabil stóð þó ekki lengi.
Leikstjórinn Alison Anders (Mi
Vida Loca, Four Rooms) fékk hana
til að leika í Gas Food Lodging og
var það hrifin af frammistöðu henn-
ar að hún spáði því að hún ætti eft-
ir að ná langt i kvikmyndabransan-
um og svo virðist sem spádómur
Anders sé að ganga eftir.
Balk fékk nú fleiri og fleiri hlut-
verk til að spreyta sig á, bæði í sjón-
vari og kvikmyndum. þeir sem sáu
Things You Do in Denver When
You Are Dead muna eftir henni í
hlutverki vændiskonu en það er þó
The Craft sem hefur lyft henni upp
á stjörnuhiminninn og hefur hún
fengið afbragðsdóma fyrir leik sinn
í myndinni. Næsta mynd Balk er
endurgerð hinnar klassísku kvik-
myndar Island of Dr. Moreau, þar
sem hún leikur á móti engum öðr-
um en Marlon Brando.
Niðurskurður hjá
Disney
Á þessu ári gerir Walt Disney
kvikmyndafyrirtækið fjörutíu kvik-
myndir. Nýlega gaf fyrirtækið út þá
yfirlýsingu að mikill niðurskurðut
yrði á næsta ári á fjölda kvikmynda
og yrðu aðeins gerðar tuttugu kvik-
myndir. Ekki yrði þó um mikinn
niðurskurð að ræða peningalega
séð þar sem meira yrði lagt i þær
kvikmyndir sem gerðar yrðu.
Ástæðan var sögð skortur á góðum
handritum en þeir sem fylgjast vel
með segja að ástæðan sé að nokkr-
ar myndir frá Disney hafi nánast
enga aðsókn fengið og horfið spor-
laust á myndbandamarkaðinn.
Framhaldsmyndirn-
ar næsta sumar
Það hefur vakið nokkra athygli
að nánast engar framhaldsmyndir
eru meðal stóru kvikmyndanna
sem frumsýndar eru í Bandaríkjun-
um í sumar. Þeir sem hafa andað
léttar yfir þessu geta farið að kvíöa
næsta sumri og aðrir farið að
hlakka til því þá kemur skriðan en
meðal þeirra mynda sem áætlað er
að frumsýna sumarið 1997 eru The
Lost World (Framhald af Jurassic
Park), Alien: Resurrection (fjórða
Alien myndin), Batman og Robin
(fjórða Batman-myndin) og SpeedH
sv
r=FT rr?
RTrRrnr
Críndúettinn úr
er komlnn saman aftur
nún
prr il«ewbt
Í\T
í—.A.___Tl|
HÁSKÓLABÍÓ
IIM
örnubíó:
■Hn
Nornaklíkan (The Craft), sem
Stjörnubíó frumsýnir í dag, er
spennumynd um yfirnáttúrlega
hluti þar sem tekið er á svörtum og
hvítum galdri og eru skilaboð
myndarinnar til þeirra sem fá
áhuga á því sem stúlkurnar fjórar í
myndinni eru að fást við þau að þaö
sé hættulegt að leysa ókunn öfl úr
læðingi. Myndin hefur verið sýnd í
sumar í Bandaríkjunum við góða
aðsókn og er greinilegt að hún hef-
ur fallið i kramið hjá ungu fólki þar
í landi.
Myndin greinir frá menntaskóla-
HVERNIG VAR
MY
stúlkunni Söru (Robin Tunney) sem
flytur til Los Angeles ásamt fóður
og stjúpmóður. Hún fær smjörþef-
inii af því þegar hún sest á skóla-
bekk að það getur reynst erfitt að
flytja í nýtt umhverfi. Hún er fyrir-
myndarnemandi en það hjálpar
henni ekki til að verða vinsæl með-
al hinna skólafélaganna. Það kemur
að því að Sara kynnist þremur öðr-
um stelpum sem ekki eru virtar við-
lits af öðrum nemendum skólans.
Kannski ekki skrýtið þar sem þær
skera sig úr, eru dökkklæddar og
óvenju samrýmdar. Orðrómurinn
segir að þær séu nomir. Með Söru
og Nancy (Fairuza Balk), Bonnie
(Neve Campbell) og Rochelle (Rachel
Tme) tekst góð vinátta og fljótlega
kemur í ljós að Sara býr yfir innri
krafti sem hún getur ekki útskýrt og
Nornaklíkan fjallar um ungar stúlkur sem hafa ódrepandi áhuga á göldrum.
vinkonur hennar sjá nú að komið er
tækifæri til að mynda nomahring.
Galdrafúsk og galdrafár verða að-
aláhugamál vinkvennanna og kom-
ast þær upp á lagið með að beita
göldrum til að fá óskir sínar upp-
fylltar. Allt eru þetta saklausir galdr-
ar til að byija með en þær verða
kræfari með hverjum deginum og
brátt kemur að því að þær ráða ekki
við þau öfl sem þær hafa leyst úr
læðingi.
Leikstjóri og handritshöfundur er
Andrew Fleming. Hann nam kvik-
myndagerð við New York kvik-
myndaháskólann og meðan hann
var í námi hlaut hann athygli fyrir
stuttmynd sína In the Dark sem fjall-
aði um ofneyslu eiturlyfja, og Pri-
soner sem var allt í senn leikin kvik-
mynd og teiknimynd. Fjallaði hún
um mann sem varð innlyksa í mál-
verki. Fyrsta alvörumynd hans í
fullri lengd var hrollvekjan Bad
Dreams. Næsta mynd hans var
Threesome sem vakti mikla athygli,
þótti forvitnileg og ögrandi. The
Craft er þriðja mynd hans og sú sem
vinsælust hefur orðið.
-HK
Fairuza Balk, á framtiöina fyrir sér.
Fairuza
Balk