Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 1. FEBRUAR 1997 sviðsljós 13 Alvörukona prestsins: hnapphelduna eftir 13 ára vinskap Leikkonan Angela Bassett er í þann mund aö stíga í spor Whitney Houston sem kona prestsins í sam- nefndri mynd, The Preacher’s Wife, og þá í alvörunni. Sá lukkulegi er leikarinn Courtney B. Vance sem leikur prestinn í umræddri kvik- mynd en hún hefur slegiö í gegn í henni Ameríku og kemur senn til sýninga í kvikmyndahúsunum hér heima. Þaö merkilega við þeirra sam- band er aö þau hafa verið perluvin- ir í ein 13 ár, alveg frá því þau voru saman í leiklistinni í Yale-háskóla. „Af hverju ekki fyrr?“ spyr Court- ney, ,jú, líklega hefur rétti tíminn ekki verið fyrr en núna. Viö litum á hvort annað eitt kvöldið og sögðum og nú væri rétt að skella sér í þetta.“ Hlutverkið í myndinni fékk Sylvía Stayton sér aumur á þeim bílstjórum sem fylla ekki á stööumæla og hefur veriö fang- elsuö fyrir aö setja pening í mæla sér óviökomandi. Góðhjörtuð amma í Bandaríkjunum: Fangelsuð fyrir að setja í stöðumæla Hin bandaríska Sylvía Stayton, 62 ára gömul amma tólf bama, var dæmd til greiðslu sektar upp á 70 þúsund krónur fyrir að hafa sett pening í stööumæli - ekki við hennar bil heldur bil allt annars og henni óviðkomandi manns. Sylvia neitaði að greiða sektina og vildi frekar sitja fjóra mán- uði í fangelsi, sem og hún gerði. Málavextir eru þeir að einn daginn var hún á gangi í göt- unni sinni þegar hún sá lög- regluþjón gera sig kláran til aö setja sektarmiða á framrúðu bíls sem stóð við útrunninn stöðumæli. Sylvia spurði lög- regluþjóninn hvort hann væri búinn að skrifa skráningar- númer bílsins á miðann og neit- aði hann því. Við svo búiö skellti Sylvía pening í stöðu- mælinn og lögregluþjónninn varð æfúr. Sú gamla lét ekki þar við sitja heldur hélt áfram eftir gangstéttinni og fyllti þá mæla sem voru útrunnir. Lag- anna vörður elti Sylvíu uppi, handjámaði hana og færði á lögreglustööina. Þrátt fyrir fangelsisdóm seg- ist Sylvía ætla að halda áfram að koma náunganum til hjálpar og fylla þá mæla sem hún sér. Ekki amalegur nágranni hún Sylvía! Courtney einnig til að hugsa trúmál sin upp á nýtt. Hann tók skírn um síðustu jól og uppgötvaði þá að hann var yfir sig ástfanginn af Ang- elu. Leikararnir Angela Bassett og Courtney B. Vance eru á leiöinni í hnapphelduna eftir aö hafa veriö perluvinir í 13 ár. VERIÐ VELKOMIN í NÝJA OG STÆRRI VERSLUN Eru -n iitt j ákafen 9 Af því tilefni bjóðum við 20% afslátt af öllum vörum verslunarinnar, laugardag og sunnudag. Sófasett, stakir sófar, stakir stólar, sófaborð í miklu úrvali, rúm, borðlampar, gólflampar, veggljós. M ll ii I*® il Opið laugardag kl. 10-18 - sunnudag kl. 13-18 Ó<huVUÍ kútýÖýH Fákafeni 9 - sími 568-2866
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.