Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Blaðsíða 34
42 heilsurækt LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1997 > > Ekki æfa of mikið í byrjun: Vigtin mælir kíló - ekki árangur - þegar vöðvarnir koma í stað fit- unnar er árangurinn bestur en vigt- in veit ekkert af því Oft á tíðum verða menn fyrir miklum vonbrigðum þegar þeir stíga á vigtina eftir kannski eins mánaðar röskar æfingar og sjá að kg-tölurnar hafa ekkert lækkað. Þetta gerist jafnvel þó að á sama tíma hafi verið farið eftir öllum fyr- irmælum um mataræði. Hver er ástæðan fyrir þessu? Geta sumir kannski ekki lést þrátt fyrir svita og púl? Þjálfun, mataræði, hvíld „Þetta getur allt verið eðlilegt og já- kvætt,“ sagði Sölvi Fannar, leiðbeinandi hjá World Class, þegar við spurðum um ástæð- ur þessa. „Árangur af líkamasrækt byggist á þrem atriðum: þjálfunarálagi, mataræði og hvíld. Allt verður þetta að vera í lagi. Hvað varðar dæmiö um mann, sem ekkert léttist fyrsta mán- uðinn, er það að segja að á þess- um tíma hefur hann brennt heilmikilli fitu en á sama tíma byggt upp vöðva líkam- ans. í raun hefur þessi maður lést um jafnvel mörg kílógrömm, þótt vigtin nemi það ekki. Heilmikið af fitu er farið.“ Ekki æfa of mikið í byrj- un „Eitt grundvallaratriðanna þriggja sem ég nefndi er hvíld. Það þarf að varast að æfa of mikið. Satt að segja er algengt að fólk æfi of mikið, þreytist og nái ekki fullum árangri þess vegna. Til að byrja með er til dæmis allt of mikið að æfa á fullu sex sinnum í viku. Lík- aminn þarf sína hvíld til að vinna úr álag- inu sem — skapast við þjálfunina. Þjálfun og líkamsrækt, sem á m.a. að leiða til þess að fólk losni við kílóin, verður að vera í jafn- vægi,“ sagði Sölvi. - Hreyfing, mataræði og hvíld. „Þetta gildir auðvitað alveg sérstaklega í byrj- un.“ Margir gefast upp fyrir ' ski' ' missKÍInmg Sölvi sagði að lokum að margir gæfust upp og hættu líkamsrækt eft- ir skamman tíma vegna þessa mis- skilnings með vigtina. Stundum er ákafinn allt of mikill í að sjá lægri tölur á vigtinni að skynsemin kemst ekki að og því gefast margir upp að ástæðulausu þrátt fyrir að í raun mm hafi þeir náð ágætis árangri, sem yrði góð undirstaða undir áframhaldandi heilbrigða I lifshætti. Pau eru ófá götin á beltinu sem Árni er hættur að nota. DV- mynd GVA Árni snýr við mataræðinu: Núer borðað með , priónum - og Nupo Sr næringarduftið tryggir öll næringarefni í samráði við Sölva Fannar þjálfara sinn hefur okkar maður Ámi Sigurðsson, tekið upp algjörlega nýja siði í matarmálum. „Nú borða ég aðalmáltíð dagsins um hádegið í stað þess að áður borðaði ég nær eingöngu á kvöldin og stundum meira að segja rétt áður en ég fór að sofa,“ sagði Ámi. Betra að hafa næringu til að brenna „Sölvi benti mér á, að miklu skynsamlegara væri að taka inn fæðuna fyrr um daginn og hafa þannig eitthvað til að brenna og nýta í daglegu amstri í stað þess að drekka ekkert nema kaffí allan daginn og fá síðan allar hitaeiningamar rétt áður en maður fór í rúmið við lok dagsins.. Ég haga vinnutíma mínum í samræmi við fjölskyldaðstæður og fer sþví fremur seint á fætur en er oft að við vinnu fram á kvöldið. Ef ég vakna snemma þá fæ ég mér eitt glas af Nupo létt næringardufti og síðan einn kaffibolla. Aðalmáltíð dagsins um hádegið Um hádegið er síðan komið að aðalmáltið dagsins. Hún samanstendur af fiski og eða pasta eða hýðishrísgrjónum og með því steiki ég eða síð allskonar grænmeti eins og kál, gulrætur, rófur o.fl. Þetta krydda ég með pipar og grænmetiskryddi en reyni að forðast allar kryddblöndur. í þeim flestum er of mikið af salti, sem ég reyni að forðast. Við matseldina nota ég sojaolíu og þá helst góða tegund eins Virginoliu. Síðan er það ekkert nema Nupo létt næringarduftið, sem ég borða það sem eftir er dagsins. Fæ mér gjarnam eitt glas á tveggja til þriggja tíma fresti. Með því tryggi ég mér á auðveldan hátt að fá öll næringarefni og önnur nauðsynleg efni sem líkaminn þarfnast án þess að þurfa aða standa í miklum útreikningum af neinu tagi,“ sagði Árni. Hann sagðist ekkert standa í því að telja kaloríurnar en hinsvegar hefur Ámi tekið það upp að borða af minni diskum en áður og nú fær hann sér aðeins einu sinni á diskinn.. „Hér áður fyrr þá var ég manna fljótastur að borða og matmálstímarnir vom þannig að ég sat með stóra skál fyrir framan sjónvarpið og borðaði úr henni með skeið. Auðvitað gleypti ég þetta í mig á methraða , svona tveim til þrem míonútum og vissi ekkert hvað upp í mig fó'r. „í dag höfum við fjölskyldan tekið upp þá hætti að borða ávallt við borðið öll saman. Það er dúkað upp og við diskinn eru ekki lengur hnífapör heldur prjónar. Þetta er ansi erfitt og heilmikið átak en skílar sár Nú er ekkert sjónvarp á matmálstímum, heldur er matarins neytt í ró og prjónarnir tryggja það að hraðinn er ekki mikill. Nú tekur máltíð hjá mér í það minnsta fimmtán til tuttugu mínútur í stað tveggja til þriggja mínútna áður. Núpó létt tryggir mér öll bætiefni og mér líður mun betur og finnst ég nýta næringuna betur en áður. Þetta er vissulega erfitt og heilmikið átak að snúa mataræðinu svona við eins og ég hef gert en það skilar sér,“ sagði Ámi Sigurðsson að lokum. Blanda íþróttafélag kvenna var stofnað fyrir rúmum sextíu árum (1934) og starfar enn af fullum krafti þó kannski fari ekki mikið fyrir því í umræðunni. Að sögn Ágústu Guð- rúnar Sigfúsdóttur, formanns lK, stunda félagskonur leikfimi og blak á vegum þess. Leikfimi fyrir ungar stúlkur hefúr einnig verið á vegum félagsins en er þó ekki í vetur. - En af hverju var stofnað sér- stakt íþróttafélag fyrir konur? „Árið 1934, þegar ÍK var stofnað, áttu konur erfitt uppdráttar innan íþróttahreyfingarinnar sem oftar,“ sagði Ágústa. „Á stofnfundinum var lýst óánægju með það hvað stúlkum var lítt sinnt og einnig var rætt um mikilvægi þess að faglærðir kven- fimleikakennarar kenndu stúlkum. Kveikjan að því að íþróttafélag kvenna var stofnað var til dæmis m.a. sú að stjóm KR ákvað að karl íþróttafálag kvenna: af „gömlu" leikfiminni skyldi taka við þjálfun fimleika- flokks kvenna hjá félaginu í stað Unnar Jónsdóttur, lærðs fim- leikakenn- ara, sem síðar starf- aði mikið fyrir ÍK. Varð þetta til þess aö meginhluti fimleika- kvenna í KR stóð að stofnun ÍK. Ásamt leikfimi Á æfingu hjá Iþróttafélagi kvenna í sal Austurbæjarskólans í Reykjavík. Kennarinn, Margrét Jónsdóttir, er lengst til hægri og á innfelldu myndinni. Ágústa Guörún Sigfús- dóttir, formaður félagsins, er fremst til vinstri. DV-mynd Hilmar og hefúr félag- ið lagt mikla áherslu á skíðaiðkun. Skíðaskáli ÍK er í Skálafelli og hefur verið mikil lyfti- stöng en einkum hef- ur verið lögð áhersla á skíða- göngu og oft boðið upp á kennslu í henni,“ sagði Ágústa for- maður að lokum. þolfimi Við spurðum Margréti Jónsdótt- ur, íþróttakennara og þjálfara fK, hver væri munurinn á þeirri leik- fimi sem boðið væri upp á hjá ÍK og annarri: „Munurinn er alls ekki mikill,“ Umsjón Ólafur Geirsson sagði Margrét. „Hér er blanda af nú- tíma þolfimi og „gömlu“ leikfi- minni, sem mörgum líkar vel. Sum- ir setja fyrir sig hraðann eða hávað- ann á líkamsræktarstöðvunum en auðvitað er öll hreyfing og líkams- rækt góð og meginatriðið er að hafa af henni gaman og ánægju,“ sagði Margrét.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.