Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 1. JANÚAR 1997 T>V gurílífi Dagur í lífi Ólafs G. Einarssonar, forseta Alþingis: Klækjarefir ekki menn að mínu skapi „Það er mánudagur, 27. janúar 1997. Ég vaknaði kl. tæplega 8 og fékk mér kornflögur með léttmjólk, ekki sykur. Ég er einbúi þessa dag- ana, kona mín er á sjúkrahúsi en hún hefur átt við vanheilsu að stríða. Þar sem ég hafði ekki bund- ið mig neitt fyrr en kl. 10 gat ég far- ið til dóttur minnar og hjálpað henni að koma 10 mánaða synin- um, Fannari Steini, til dagmömmu. Eldri strákurinn, 7 ára, nafni minn og uppáhald, er í skóla hér í næsta nágrenni frá 8 á morgnana. Þingfundir undirbúnir Dagurinn einkenndist af undir- búningi morgundagsins en þá hófust þingfundir að nýju að loknu fundarhléi sem sumir kalla jólafrí þingmanna. Árlegur fundur forsætisnefndar Alþingis og Ríkisendurskoðunar hófst kl. 10. Ríkisendurskoðun er ein af stofnunum Alþingis og for- sætisnefndin fylgist með störfum hennar. Þessi fundur stóð i rúmar tvær stundir. ■ Þá hófst fundur forsætisnefndar en í henni sitja auk mín varaforset- ar Alþingis, þeir Ragnar Amalds Sturla Böðvarsson, Guðni Ágústs son og Guðmundur Ámi Stefáns son. Þetta eru hinir mætustu menn og samstarfið í forsætisnefndinni eins og best verður á kosið. Venju- lega sitja hina vikulegu fundi nokkrir embættismenn þingsins Friðrik Ólafsson skrifstofustjóri Helgi Bemódusson aðstoðarskrif stofustjóri, Karl M. Kristjánsson fjármála- og rekstrarstjóri, og Þor steinn Magnússon sem sér um al- mennu skrifstofuna. Áætlun til þriggja vikna Mörg mál voru á dagskrá. Við skiptum með okkur störfum við fundarstjórn vikumar fram undan, ákváðum dagskrá fyrir hvern dag Alþingi er komið saman eftir jólafrí og Ólafur G. Einarsson þingforseti hefur í nógu að snúast. DV-mynd GVA vikunnar. Nú lagði ég raunar fram áætlun næstu þriggja vikna en það er að sjálfsögðu til mikiila þæginda fyrir þingmenn og ekki síður ráð- herra að vita með góðum fyrirvara hvenær málin verða tekin til um- ræðu. Fundi forsætisnefndar lauk nokkm fyrir kl. 14. Þá tók við ýmis vinna á skrifstofu minni. Ég fór yfir minningarorð sem ég flyt á þingfundi um þann mæta mann, Einar Ingimundarson, fyrrv. al- þingismann og bæjarfógeta, en hann lést 28. desember sl., 79 ára gamall. Þá svaraði ég nokkrum símtölum, skrifaði undir bréf og undirbjó fund með þingflokksfor- mönnum. Sá fundur hófst kl. 15.30 og stóð til kl. 17. Venjan er sú að þingfor- seti heldur fund með þingflokksfor- mönnum á mánudögum þegar þing situr. Þar eru kynnt drög að dag- skrá vikunnar, samið um ræðu- tima í sérstökum umræðum, rædd- ar beiðnir um utandagskrárum- ræður og margt fleira. Samstarfið við þingflokksfor- menn hefur verið með miklum ágætum, þeir hafa sýnt í verki vilja til að greiða fyrir þingstörfum og bæta ímynd þingsins. Stundum falla orð sem betur væru ósögð Auðvitað gerist það samt öðru hverju að umræður dragast á lang- inn og stundum falla orð sem betur væru ósögð. En allt er þetta á réttri leið. Að loknum fundi með þing- flokksformönnum ræddi ég við embættismenn þingsins um ýmis- legt sem varðar undirbúning þing- haldsins. Þá ræddi ég í síma við biskup um væntanlegan samráðsfund Al- þingis og kirkjuráðs en biskup hafði óskað eftir fundi til að ræða frumvörp sem varða kirkjuna og verða til umfjöllunar á Alþingi nú á næstunni. Fimdinn ákváðum við að halda miðvikudaginn 29. janúar kl. 11. Léttur pastaráttur útbú- inn Heim var ég kominn um kl. 18.30, útbjó mér léttan pastarétt og horfði á sjónvarpsfréttir á Stöð 2 og RÚV. Ég var óvenjumikið í símanum um kvöldið en það reyni ég að forð- ast sem mest ég má. En bæði var það að ég var einn heima og svo hitt að margir höfðu reynt að ná tali af mér en ekki tekist. Því hringdi ég til þeirra sem ég þekkti nægilega vel til þess að geta leyft mér að ónáða þá heima að kvöldi tR. Ég horfði á hluta sjónvarpsþátt- arins um Urquhart, breska forsæt- isráðherrann. Góður þáttur og snilldarvel leikinn en svona klækjarefir sem ráðherrann eru ekki menn að mínu skapi. Fór í gegnum nokkra persónu- lega pappíra, las nokkra kafla úr bók míns gamla og góða kennara, Gísla Jónssonar, íslenskt mál, og gekk til náða um miðnætti." Finnur þú fimm breytingar? 396 Myndimar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kem- ur í Ijós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: SHARP vasadiskó með útvarpi, að verðmæti kr. 3.950, frá Bræðrunum Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1790 - Ógnarást eftir Lindu Randall Wisdon og Sinnaskipti eftir Lyndu Kay Carpenter. Vinningamir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú flmm breytingar? 396 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.