Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1997, Blaðsíða 47
JLlV LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1997 afmæli « Kristján Belló Gíslason Kristján Belló Gíslason leigubil- stjóri, Vogatungu 101, Kópavogi, er áttatíu og fimm ára í dag. Starfsferill Kristján fæddist í Sandprýði í Vestmannaeyjum og ólst upp í Eyj- um og að Múlakoti í Fljótshlíð við sjómennsku og almenn sveitastörf. Hann flutti til Reykjavíkur 1934, stundaði þar almenna verkamanna- vinnu fyrstu tíu árin en gerðist þá leigubílstjóri og stundaði aksturinn, lengst af á Hreyfli, til 1987 er hann hætti fyrir aldurs sakir. Kristján og kona hans fluttu í Kópavoginn 1946 þar sem þau hafa búið síðan. Fjölskylda Kristján kvæntist 1942 Halldóru Stefánsdóttur, f. 6.8. 1922, húsmóð- ur. Hún er dóttir Stefáns Guð- mundssonar, verkamanns á Raufar- höfn, og Arnþrúðar M. Hallsdóttur húsmóður. Börn Kristjáns og Halldóru eru Gísli Þröstur, f. 1.10. 1943, fulltrúi á Keflavíkurflugvelli, búsettur í Garðabæ, var kvæntur Guðrúnu Ernu Björnsdóttur, starfsstúlku á Sólvangi í Hafnarfirði, og eignuðust þau fjögur börn; Guðleif, f. 29.1. 1945, verslunarmaður, búsett í Hafn- arfirði, gift Helga H. Eiríkssyni bif- vélavirkja og eiga þau þrjú börn; Arnþrúður Margrét, f. 6.2. 1947, starfsstúlka á Hrafnistu í Hafnar- firði, gift Hafsteini Má Guðmunds- syni húsasmíðameistara og eiga þau fimm dætur; Guðni Svavar, f. 20.11. 1954, d. 7.8. 1984, rafvirki í Reykja- vík, var kvæntur Júlíönnu Sóleyju Gunnarsdóttur skrifstofumanni og eru böm þeirra tvö; Stefán Rúnar, f. 2.4. 1957, framkvæmdastjóri í Kópa- vogi, var kvæntur Lindu Hreiðars- dóttur fóstru og eiga þau eina dótt- ur. Dóttir Kristjáns frá því fyrir hjónaband er Vera Kristjánsdóttir, f. 10.7. 1932, gift Sigurjóni Richter vörubílstjóra og eiga þau þrjár dæt- ur en móðir hennar er Kristjana Hannesdóttir. Systkini Kristjáns; Haraldur Gíslason, f. 24.5.1907, nú látinn; Sig- ríður Gisladóttir, f. 11.5. 1909, hús- móðir í Kópavogi; Guðlaug Gísla- dóttir, f. 19.9. 1909, nú látin; Fanney Gísladóttir, f. 16.12. 1914, búsett í Kópavogi; Soffla Gísladóttir, f. 31.12. 1915, húsmóðir á Hvolsvelli, Foreldrar Kristjáns: Gísli Þórðar- son, f. 15.12.1877, d. 9.11.1943, verka- maður og sjómaður í Vestmannaeyj- um, og Guðleif Kristjánsdóttir, f. 15.10. 1886, d. 22.1. 1917, húsfreyja. Kristján og Halldóra verða að heiman á afmælisdaginn. Regína Margrát Birkis Regína Margrét Birkis, ritari hafnarstjórans í Reykjavík, Árskóg- um 8, Reykjavík, er sextug í dag. Starfsferill Regina Margrét er fædd og uppal- in í Reykjavík. Hún lauk prófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík 1954 og var formaður Nemendasam- bands Kvennaskólans um árabil. Regína Margrét starfaði hjá Sam- bandi íslenskara samvinnufélaga frá 1954 til 1956; hjá Olíufélaginu hf. frá 1956 til 1960; hjá Eimskipafélagi íslands frá 1961 til 1962; hjá Þjóð- minjasafni íslands frá 1967 til 1976 og hefur verið starfandi hjá Reykja- víkurhöfn frá 1976. Fjölskylda Regína er í sambúð með Guðbergi E. Haraldssyni, f. 30.9. 1927, deildar- stjóra hjá Reykjavíkurhöfn. For- eldrar hans vom Haraldur Jónsson, f. 7.12. 1901, d. 10.2. 1986, verkstjóri hjá Reykjavík- urhöfn, og k.h., Olga Egg- ertsdóttir, f. 19.2. 1906, d. 5.11. 1981, húsmóðir. Regína giftist 17.5. 1956 Jóni B. Gunnlaugssyni frá Ólafsfirði, f. 21.6. 1936, d. 17.12. 1991. Börn Reginu og Jóns: Gunnlaugur Kristján, f. 20.8. 1956, rannsóknarlög- reglumaður, kvæntur Auði Guðmundsdóttur, f. 12.9. 1960, flugfreyju hjá Flugleiðum, og eiga þau dótturina Brynju, f. 17.7. 1987; Guð- björg Birkis, f. 5.8. 1962, húsmóðir, gift Marínó Björnssyni, f. 24.1. 1956, sölustjóra hjá Heklu, og eiga þau börnin Jón Ragnar Birkis, d. 7.4. 1981, Þorbjörgu Öldu, f. 7.12. 1984, Reginu Sif, f. 26.2. 1992, og Rebekku Rut, f. 25.12. 1993; Dalla Rannveig, f. 31.3. 1964, í sambúð með Inga Þór Jónssyni, f. 4.10.1966, framkvæmda- stjóra, og er þeirra sonu- ur Vigfús Blær, f. 21.11. 1994. Fyrir átti Dalla dótturina Regínu Diljá, f. 20.8. 1983, og soninn Jón Birki, f. 18.5.1985, og fyr- ir átti Ingi Þór soninn Sævar Þór, f. 23.6.1989. Bróðir Regínu er Sig- urður Kjartan, f. 13.3. 1945, yfirfluvélavirki hjá UPS í Atlanta í Banda- ríkjunum, kvæntur Bonnie DePalma Birkis, f. 5.7.1948, flugfreyju hjá American Airlines, og eiga þau þrjú börn; Sigurð Pétur, f. 5.4. 1975; Jónas Paul, f. 5.12. 1978 og Kate Elisabeth, f. 27.8. 1982. Foreldrar Regínu: Sigurður Birk- is, f. 9.9. 1893, d. 31.12. 1960, söng- málastjóri Þjóðkirkjunnar, og Guð- björg Birkis, f. 7.5. 1908, húsmæðra- kennari og húsmóðir. Þau voru bú- sett í Reykjavík. Ætt Foreldrar Sigurðar vom Eyjólfur Einarsson, bóndi að Reykjum í Skagafirði, og Margrét Þormóðs- dóttir. Foreldrar Guðbjargar voru Jónas Kristjánsson, f. 20.9. 1879, d. 3.4. 1960, læknir á Sauðárkróki og stofn- andi NLFÍ, og Hansína Benedikts- dóttir, f. 17.5.1874, d. 21.7. 1948, hús- móðir. Jónas var sonur Kristjáns Krist- jánssonar, bónda að Snæringsstöð- um í Svínadal, og Steinunnar Guð- mundsdóttur. Hansína var dóttir séra Benedikts Kristjánsdóttur, prests á Grenjaðarstað í Þingeyjar- sýslu, og Regínu Sivertsen. Regína tekur á móti gestum í samkomusal Árskóga 6 og 8 í dag, á afmælisdaginn, milli kl. 17 og 19. fréttir Regína Margrét Birkis. Vestfirskur skelfiskur hf.: Svars beðið vegna kaupa á nýjum kúfiskbát DV, ísafirði:_________________________ Guðlaugur Pálsson, fram- kvæmdastjóri hjá Vestfirskum skelfiski hf. á Flateyri, segir enn allt í biðstöðu hvað framtíð fyrir- tækisins varðar. Sem kunnugt er þá lagðist starfsemi fyrirtækisins af þegar kúfiskveiðiskip fyrirtæk- isns Æsa fórst á Arnarfirði á síð- asta ári. Fljótlega var farið að kanna leið- ir til að fá nýtt skip og hafa menn augastað á skelfiskbáti í Bandaríkj- unum. Beðið er eftir svari frá Byggðastofnun og Fiskveiðasjóði varðandi fyrirgreiðslu til skipa- kaupa. Um er aö ræða töluvert burðármeira skip en gera verður breytingar á því ytra til að það standist kröfur Siglingamálastofn- unar. Skipið er 13 ára, lítur vel út. Stórt og öflugt. Búið er að ganga frá samningum við lánardrottna en greiðslustöðv- un fyrirtækisins rennur út næstu daga. Guðlaugur telur engin vand- kvæði á því að hefja rekstur að nýju ef fyrirgreiðsla fæst til skipa- kaupa. Búið er að auka hlutafé fyr- irtækisins og vonir standa til að nýir hluthafar fáist. Ef allt gengur upp ætti að vera hægt að hefja vinnslu í apríl. Búist er við að breytingarnar á skipinu geti tekið mánuð og þá er eftir 15 til 20 daga sigling til íslands. Einn starfsmaður hefur að und- anförnu unnið hjá fyrirtækinu við lagfæringar á vélum og breytingum sem miða að því að geta tekið við auknu hráefnismagni af stærra veiðiskipi. Guðlaugur bjóst ekki við svari frá Byggðastofnun fyrr en. eftir fund hjá stofnuninni 4. febrúar. Hins vegar er ekki áætlað að halda fund hjá Fiskveiðasjóði fyrr en 18. febrúar. Sagðist hann þó vonast til að Fiskveiðasjóður flýtti afgreiðslu málsins. - HKr. Þórður á Skógum Sunnlendingur ársins Þórður Tómasson og Örn Grétarsson. DV-mynd Kristján DV, Selfossi:__________________________ Sá kunni kappi Þórður Tómas- son, safnvörður i Skógum undir Eyjafjöllum, var kosinn Sunn- lendingur ársins 1996 af lesendum blaðsins Dagskrá sem Prent- smiðja Suðurlands gefur út á Sel- fossi. í hófi sem haldið var í tilefni af valinu afhenti Örn Grétarsson prentsmiðjustjóri hinum snjalla safnverði skjal valinu til staðfest- ingar. Þórður þakkaði fyrir sig með góðri ræðu og minnti á „að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja". Dagskrá kemur út einu sinni í viku og og er dreift á öll heimili á Suðurlandi. -KE Til hamingju með afmælið 1. febrúar 75 ára________________________ Ragnhildur Þorgeirsdóttir, Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnar- firði. Ragnhildur verður að heiman á afmælisdaginn. Steingerður Theódórsdóttir, Aðalbraut 38, Raufarhöfn. Valborg Sigurðardóttir, Aragötu 8, Reykjavík. 70 ára________________________ Ásta Bjarnason, 1 Vatnsveituv. Laufási, Reykja- vík. 1 Ásta verður að heiman á af- mælisdaginn en dvelur hjá syni sínum í Asparfelli 2 að kvöldi afmælisdagsins. Anna Jónsdóttir, Skólavegi 24, Reykjanesbáe. 60 ára_______________________ Ingibjörg Guðleifsdóttir, Birkiteigi 17, Reykjanesbæ. Margrét Jónsdóttir, Löngumýri, Seyluhreppi. Hulda Karlsdóttir, Hvannavöllum 8, Akureyri. Baldur Jónsson, : Klettavík 15, Borgarbyggð. Birgir Haraldsson, Bakka, Viðvíkurhreppi. Kristín Karlsdóttir, Hvammi 2, Hrunamanna- hreppi. Aðalheiður Svavarsdóttir, Espigerði 4, Reykjavík. Jón Ásgeirsson, Flyðrugranda 12, Reykjavík. 50 ára_______________________ Sveinn Steindór Gíslason, Arnarheiði 20, Hveragerði. Sveinn Steindór Gíslason húsa- smíðameistari og eiginkona hans, Magnea Ásdís Árnadóttir taka á móti ættingjum og vin- um á heimili sínu á afmælis- daginn eftir kl. 15.00. Ingvi Örn Jóhannsson, Norðurbraut 29, Hafnarfirði. Sigurður Ferdinandsson, Bjargartanga 13, Mosfellsbæ. Jón Zimsen, Bugðutanga 13, Mosfellsbæ. Bima Björnsdóttir, Haðarstíg 22, Reykjavik. Benna S. Rósantsdóttir, Fögruhlíð 17, Eskifirði. Ruth Alfreðsdóttir, | Hæðarbyggð 18, Garðabæ. Sigrún Ólafsdóttir, - Lyngholti 5, Reykjanesbæ. 40 ára_______________________ Örn Ómar Guðjónsson, Gerðhömrum 25, Reykjavík. Öm Ómar dvelur erlendis um þessar mundir. Guðmundur Solheim, Marbakka 7, Neskaupstað. Ólafur Jóhann Jónsson, ’ Uppsalavegi 19, Húsavík. Sólveig Þ. Sigurðardóttir, Birkiteigi 2, Mosfellsbæ. Einar Sigurðsson, Víðimýri 18, Neskaupstað. ÍMálfríður Vilbergsdóttir, Kletti, Geiradal, Reykhóla- hreppi. Finnbogi Þorláksson, Espilundi 6, Akureyri. Helga Gunnarsdóttir, Álfholti 18, Hafnarfirði. Ársæll Sigurþórsson, Túngötu 3, Grindavík. Pétur Pétursson, : Hólabæ, Bólstaðahlíðahreppi. Guðrún Gunnarsdóttir, Breiðvangi 16, Hafnarfirði. Oddur Björgvin Júlíusson, Brekastíg 7b, Vestmannaeyjum. Kristinn Ómar Kristinsson, Unnarstíg 2, Reykjavík. Jón Már Jónsson, Blómsturvöllum la, Neskaup- stað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.