Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 19. APRÍL 1999 Fréttir 17 Páll Skúlason rektor, til hægri, var áhugasamur um samstarf sveitarfélag- anna á Austurlandi og kvað það mjög jákvætt að þau sameinuðust um fram- kvæmdir. Með Páli var Rögnvaldur Olafsson dósent. DV-mynd Júlía MARGAR LAUSNIR VIÐ RSKSTUR GÓÐRA BÍLA Háskólastofa á Austurlandi DV, Höfn: Meðal mála sem tekin voru fyrir á sameiginlegum fundi bæjarráða þriggja stærstu sveitarfélaganna á Austurlandi - Hornafjarðar, Austur- Héraðs og Fjarðabyggðar, sem hald- inn var á Höfn í síðustu viku, var stofnun Hákskólastofu á Austurlandi. Hugmyndin er að sú stofnun verði á Höfn og sagði Gísli Sverrir Árnason, forseti bæjarstjórnar á Hornafírði, að vonir stæðu til að hægt yrði á næstu dögum að gera samkomulag um hvernig samstarfi sveitarfélaganna og Háskóla íslands yrði háttað. Stefht verður að þvi að Háskólastofan geti tekið til starfa eftir 1 til 2 ár. Margar hugmyndir komu fram um nýtingu hákólastofunnar og talaði Páli Skúlason, rektor Háskóla íslands, sem mætti á fundinn, um að koma upp kennslu á háskólastigi sem tengd- ist því sem þegar hefur verið gert á Austgörðum á undanfórnum mánuð- um, svo sem fjarkennslu og fræðslu- neti Austurlands. Stofnun þessi yrði mikilvægt skref í eflingu hyggðar í fjórðungnum og myndi skapa ómetan- leg tengsl allra íbúa hans við Háskóla íslands. Bæjarráðin þrjú hafa lýst áhyggj- um sínum vegna ónógra íjárveitinga til reksturs framhaldsskólanna í fjórð- ungnum og fela forsetum bæjarstjórn- anna, að höfðu samráði við skóla- meistara, að vinna að því að tryggja rekstrargrundvöll skólanna til fram- tíðar með viðunandi fjárveitingum. -JI Segðu okkur hvað þ«i gerir, við höfum það sem þú þarft og bjóðum þér heildarlausn fyrir þitt fyrirtæki: REKSTRARLEIGA FJÁRMÖGNUNARLEIGA BÍLALÁN KAUPLEIGA Akranes: Tækjaminjasafn í Görðum DV, Akranesi: Landmælingar íslands, sem flutt hafa starfsemi sína á Akranes, hafa óskað eftir samstarfi við Akranes- kaupstað um að koma á fót tækja- minjasafni í tengslum við Byggðasafn- ið i Görðum á Akranesi. Landmæling- ar eiga á fórum sínum frá gamaili tíð mikið af tækjum og tólum sem notuð voru til landmælinga á árum áður. Forráðamenn Akraneskaupstaðar hafa enn sem komið er einungis sam- þykkt að geyma umrædd tæki á safn- inu meðan grundvöllur fyrir tækja- minjasafn er kannaður nánar. Viljayf- irlýsing var lögð fyrir bæjarráð Akra- ness fyrir skömmu til umfjöllunar. Gestum, sem komu á Byggðasafnið i Görðum á síðasta ári, fjölgaði nokk- uð frá því sem var 1997. Gera má ráð fyrir að fjöldi safngesta verði i fram- tíðinni um 5500-6000 árlega. Árið 1998 voru safngestir rúmlega 5600 en árið 1997 voru þeir 5300. -DVÓ Aukasólir yfir Reynisfjalli í vikunni. DV-mynd Njörður Þrjár sólir á lofti DV.Vík: Það var glæsilegt sólarlagið hjá Víkurbúum nú í vikunni. Þegar sólin var að síga vestur yfir Reynisfjallið fylgdu henni tvær spegilmyndir niður af himninum og baugmyndun um- hverfis allt saman. Þessi geislabrot sem sáust eru oft kölluð aukasólir, en áöur fyrr voru þær kallaðar gíll og úlfur. Gíli er það sem er vestan eða hægra megin við sólu og úlfurinn er á eftir henni. Til er máltæki sem segir: „Ekki er gíll fyrir góðu nema úlfur á eftir renni“. Það er forn hjátrú sem þessari myndun tengist. Ekki var talið sama hvort aukasólir sáust á austur- eða vesturhimni. Ef þær sjást í austri mun það vita á slæmt veður, en gott ef þær sjást í vestri. Þær aukasólir sem sáust svo skýrt í Vík voru í vestri, svo Mýrdælingar mega því búast við að framundan sé veðursæld og vetri fari fljótt að halla. ÞJÓNUSTUSAMNINGAR ATVINNUBÍLAR FyRI RTÆKJ AÞJ ÓN USTA Grjótháls 1 Sfmi 575 1200 Söludeild 575 1225/575 1226 NH. Sii

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.