Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 19. APRÍL 1999 39 [meira á| uðurland Selfoss. Ölfusárbrú og Selfosskirkja. um hvemig framboðinu vegnar en það verður nánast útilokað fyrir það að ná inn þingmanni. Þá býður Húmanistaflokkurinn fram i kjördæminu sem og annars staðar á landinu. Þeirra leiðtogi er Sigrún Þorsteinsdóttir, fyrrum for- setaframbjóðandi. Hún er frá Vest- mannaeyjum en fylgi við framboð- ið mælist ekki í skoðanakönnun- um. Spenna ísólfur Gylfi Pálmason berst fyrir pólitísku lífi sínu í kosningunum. Aftur á móti hefur þriðji maður á lista Sjálfstæðisflokksins, Kjartan Þ. Ólafsson, allt að vinna. Samkvæmt kosningaspá Vísis þyrfti Framsókn- arflokkurinn að vinna um 400 at- kvæði af Samfylkingunni til þess að ná öðrum manni inn sem kjör- dæmakjörnum en Samfylkingin næði þá engu að síður uppbótar- þingmanninum. Hann myndi hún vinna af Sjálfstæðisflokknum. En Framsóknarílokkurinn á engu að DV-mynd Hilmar Þór síður góða mögifleika að fá uppbót- arþingmann í kjördæminu ef niður- stöður kosninga í öðrum kjördæm- um verða honum hagstæð. Sam- kvæmt kosningaspá Vísis 14. þ.m. er það illmögulegt en margt getur breyst. Önnur framboð í kjördæm- inu verða þó líklega að bíða betri tíma til að koma manni inn á þing. Efstu menn á Suöurlandi teknir tali: Byggða- og atvinnumál í brennidepli Margrét Frímannsdóttir: Samfylkingin verður sigurvegari „Ég er mjög bjartsýn fyrirpessar kosningar. Ég tel að við höfum nokkuð góða stöðu hér í kjördæm- inu,“ segir Mar- grét Frímanns- dóttir, oddviti Samfylkingarinn- ar. Aðspurð seg- ist Margrét telja að Samfylkingin hafi góða mögu- leika á að haldá báðum þing-______ mönnum sínum á Suðurlandi. „Okkar vonir standa til þess að Samfylkingin verði sigurvegari kosninganna á Suðurlandi og haldi sínum mönnum." En Margrét segir þó erfitt að spá um úrslitin. „Póli- tískt landslag er aö nokkru breytt frá síðustu kosningum, þannig að það er erfiðara að spá. En það er alla vega ijóst aö við verðum aö vinna vel og kosningarnar verða spennandi," segir Margrét. Guðni Ágústsson: Eigum góða möguleika „Við eigum góða möguleika í þess- um kosningum. Við höfum staðið við þau fyrirheit sem við gáfum fyr- ir síðustu kosningar og viljum fá umboð til að stjóma áfram,“ segir Guðni Ágústsson, efsti maður Framsókn- arflokksins. „En þetta er barátta. Til að halda tveimur þing- mönnum þurfúm við að vera stærri en Samíylkingin, því við fáum ekki jöfnunarsætið." Guðni telur að Isólfúr Gylfi Pálma- son, annar maður á hsta Framsókn- arflokksins, sé að berfast fyrir póli- tísku lífi sinu, en segir jafhframt: „Ef ég tapa ísólfi Gylfa fyrir borð, eins og þessi skoðanakönnun gefúr til kynna, verð ég heldur ekki til stórá- taka fyrir Sunnlendinga. En ég kvíði engu í þessum efnum. Við erum bjartsýnir og uppskerum eins og við sáum,“ segir Guðni. Ragnar Alexander Þórsson: Sjálfstæðis- flokkurinn and- stæðingurinn „Viö erum með góð málefni og emm því auðvitað bjartsýn," segir Ragnar Alexander Þórsson, oddviti Vinstri hreyfmgarinnar - græns framboðs. „En auðvitað kemur þetta allt í ljós þegar búið er að telja at- kvæðin.“ Ragnar segist finna fýrir því að barátta í kosningunum sé frekar lítil. „Ég fmn reyndar ým- ist fyrir áhuga eða ákveðinni deyfð í kjördæminu. En við vildum gjaman aö hinir flokkamii- létu meh-a á sér bera. Það styrkir okkur. Og við lít- um svo á að viö séum höfuðandstæð- ingur Sjáifstæðisflokksins í þessum kosningum,“ segir Ragnar. Eggert Haukdal: Er hóflega bjartsýnn Eggert Haukdal, efsti maöur á lista Frjálslynda flokksins, vonar það besta fýrir kosningamar. „Við erum svona hóflega bjartsýnir fýrir þessar kosningar og vonum það i m besta,“ segir Eggert, sem spáir að Sjálfstæðisflokkurinn bæti við sig manni í kjördæminu. „Það er fráleitt að hugsa sér það. Uppröðunin á lista er ekki þannig að það sé stormandi lukka með það,“ segir hann. Eggert segir að sjávarútvegs- málin séu stærstu mál kosninganna. „Menn verða að sjá það að rétt fisk- veiðistjómun er launastefha við- komandi byggðarlags. Gjafakvótinn breikkar bilið milli ríkra og verr settra og i dag era engar breytingar fýrirsjáanlegar á þessari stefnu, ef stjómarflokkamir verða áfram við völd. Það þykjast allir vilja breyting- ar því þeir era hræddir við umræð- una í þjóðfélaginu, en það er aðeins yfirvarp,“ segir Eggert. Sigrún Þorsteinsdóttir: Þörfhumst málsvara á Alþingi Sigrún Þorsteinsdóttir, oddvTti Húmanistaflokksins, segir að flokkkurinn leggi áherslu á að ná einum manni inn á þing. „Við höf- um ekki veriö í sviösljósinu í lang- an tíma, en von- umst til þess að ná manni á þing til að eiga þar málsvara. Húmanistaflokk- urinn leggur áherslu á breyt- ingar á þjóðfélag- inu til aö koma húmanismanum á,“ segir Sigrún. „Við teljum aö núverandi alþingis- menn séu veraleikafirrtir," segir hún og leggur áherslu á að nauð- synlegt sé að afnema fátækt og beina peningunum inn í réttan far- veg. „Það gerum við með því að stofha einn sameiginlegan lifeyris- sjóð sem allir greiða í og öryrkjar og ellilífeyrisþegar fá greitt úr. Greiðsla til þessara hópa á að vera 90.000 kr. á mánuði sem kostar ár- lega 30 milljarða. Inn í lífeyrissjóð- ina koma árlega 30 milljarðar og þar að auki era notaðir 16 mflljarð- ar til að greiða núverandi bætur. Þannig að svigrúmið er ríflegt ef viljinn er fyrir hendi.“ Árni Johnsen: Ætlum að ná þremur mönnum „Okkar markmið er að ná þrem- ur þingmönnum. Miðað við eðlileg- ar kringumstæður á Suðurlandi og á landinu eigum við möguelika á að ná þremur,“ segir Árni John- sen, oddviti Sjálf- stæðisflokksins á Suðurlandi. „Sjálfstæðis- flokkurinn er sterkasta aflið á Suðurlandi og liMfc ’% það má lesa það —— út úr sögu Suðurlands á þessari öld, að þegar flokkurinn hefur ver- ið öflugastur hefur árangurinn verið öflugastur fyrir kjördæmið og framfarir mestar." Árni segir aö þriðji maður Sjálfstæðisflokksins verði uppbótarþingmaður og stað- an hafi ávallt verið sú að Fram- sóknarflokkurinn hafi verið sterk- ur - hafi verið með tvo þingmenn. „Alþýðubandalagið hefur haft tryggan mann en Alþýðuflokkur- inn hefur haft mjög veika stöðu á Suðurlandi og nýtur lítils trausts. Ég býst því við að það verði erfitt fyrir ýmsa að kjósa bræðinginn núna, sem er fyrst og fremst stein- barn Alþýðuflokksins sem hefur kokgleypt Alþýðubandalagið,“ seg- ir Árni. Mikilvægustu málin í kjördæminu Dil Framsóknarflokkurinn 1. Atvinnumál. 2. Ferðaþjónusta. 3. Menntamál. 4. Samgöngumál. 5. Byggðamál. Frjálslyndi flokkurinn 1. Byggðastefna. 2. Vegir og slitlög. 3. Landbúnaðarmál. 4. Velferðarkerfið. 5. Iðnaður. Húmanistaflokkurinn 1. Afnám fátæktar. 2. Byggðamál. 3. Mannréttindi fyrir homma og lesbíur. 4. Kvótamálið. 5. Aðskilnaður ríkis og kirkju. © Samfylking 1. Atvinnumál. 2. Menntamál. 3. Sjávarútvegur. 4. Velferðarkerfið. 5. Kjör ungs fiölskyldufólks. V Sjálfstæðisflokkurinn 1. Styrkja atvinnuumhverfið enn frekar. 2. Betra vegakerfi. 3. Uppbygging heilbrigðisþjón- ustu. 4. Lækkun orkuverðs. 5. Efling menntunar og menningar. Vinstri hreyfingin - grænt framboð 1. Atvinnumál. 2. Samgöngumál. 3. Félagsmál. 4. Umhverfismál. 5. Utanríkismál.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.