Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 40
52 MÁNUDAGUR 19. APRÍL 1999 iET=©onn Ummæli Grátbiður um hærri skatta „Ingibjörg Sólrún Gísladóttir grát- biður ríkisvald- ið um að fá að hækka skatta á borgarbúa." Guðlaugur Þór Þórðarson borgarfulltrúi, í DV. Evrópa „Þetta stelsjúka Evrópu- samband er nú þegar á góðri leið með að ræna sjálfu nafni heimsálfunnar Evrópu, svo að orðið „Evrópa" er nú í vax- andi mæli notaö fyrst og fremst um það leiðindabákn og aðrir Evrópubúar þar með gerðir að annars flokks þegn- um í eigin álfu.“ lllugi Jökulsson á Rás 2. Vill verða ráðherra „Össur vill verða ráðherra, það strax og > það lengi.“ Steingrímur J. Sigfússon al- þingismaður, í Morgunblað- inu. 4 Aldarlok og önnur lok „Margt hefur liðið undir lok á stuttum tíma. Hér eru ekki bara aldarlok heldur stjórnmálalok, flokkalok og hugsjónalok." Guðbergur Bergsson rithöf- undur, í DV. Bjart hjá Páli „Það er sama hvar á er litið, alls staðar er bjart fram undan.“ Páll Pétursson félagsmálaráð- herra, í Morg- unblaðinu. Verð nógu skrýt- inn fyrir Ómar „Ég býst við að Ómar Ragn- arsson komi og taki viðtal við mig því ég verð orðinn svo I skrýtinn." KK, í upphafi sex vikna tón- leikaferðar um landið, i Fók- usi. xrf VEœexDR* ST=?rSF7 N FfE> VfeNíR F=í€> loETJR C\ VCUTsíNiI F=»E> MBTTq . ^vRNCTRÉTS ÖNID Hildigunnur Guðmundsdóttir, fegurðardrottning Suðurnesja: Ekki búin að fast- setja framtíðina DV, Suðurnesjum: „Fyrstu viðbrögð voru að hugur- inn fór á fulla ferð og sennilega hef ég ekki hugsað skýrt en þetta var yndisleg tilfmning", sagði nýkjörin fegurðardrottning Suðurnesja, HMigunmm Guðmundsdóttir. „Að sjálfsögðu gátum við allar átt von á því að vinna, ekki síður ég en hinar. Upphafið að þessu var að Lovísa, framkvæmda- --------------- stjóri keppninnar, tal- aði við mig um þátt- töku mér og gaf mér leiðbeiningar og að- stoðaði á allan hátt.“ Hildigunnur er í miðið af þremur systrum en eldri systir hennar, Sara Lind, býr í Texas í Bandaríkjunum en er núna stödd á landinu. „Síðan á ég níu ára gamla systur, Sunnu Sigriði, hún er mesta prinsessan í flölskyldunni og vildi ólm fá að máta kórónuna." Maður dagsins og ég þurfti að hugsa mig mikið um áður en ég tók ákvörðun. Undirbúningstíminn var mjög skemmtilegur og ég hlakkaði mikið til úrslitakvöldsins og að upp- lifa þetta allt og sjá og fá að koma fram. Ég svaf frekar illa nóttina fyrir lokakvöldið og vaknaði oft, sennilega af spenningi". Hildigunnur var einnig valin sú með fegurstu fótleggina og var leyst út með fjölda verðlauna, hún fékk hundrað þúsund krónur frá Spari- sjóðnum í Keflavík, demantshring frá Georg V. Hannah, árskort í líkams- ræktarstöðina Lífsstíl og ókeypis hár- og naglaþjónustu í ár hjá Art húsinu, svo fátt eitt sé nefnt. Hún segir fjölskyldu sína hafa staðið vel að baki sér en foreldrar hennar eru Gunnhildur Gunnars- dóttir og Guðmundur Sigurbergsson sem rekur fyrirtækið Nettverk sf. í Reykjanesbæ. „Mamma mætti á allar æfingar og lokakvöldið með HMirgunnur, sem er tæplega tví- tug, starfar við fiskverkun hjá Fiskþurrkun ehf. í Garði. „Ég hef unnið mjög mikið undanfar- ið og þetta hefur gefið góðan pening. Síðan er ég líka í námi á kvöldin í Fjölbrautaskóla Suður- nesja og stefni að því að klára stúdentspróf og fara síðan að læra ljósmyndun og eitthvað tengt fjölmiðlun. Mig langar líka til ferðast um heim- inn en ég er þó ekki alveg búin að fastsetja framtið- ina.“ Hildigunnur segist á næstunni ætla að njóta þess að vera til og m-. DV-mynd Arndís slappa af eftir mikla vinnutörn en í sumar ætlar hún að ferðast um land- ið. „Fossar heilla mig mikið og ég ætla að mynda þá og skoða." En hvað þurfa að hennar mati feg- urðardrottningar að hafa til að bera. „Þær þurfa auð- - .s vitað að vera vel á sig t ’ ~ - komnar líkam- > lega en umfram 2? allt að láta ekki ft»*L svona titla % stíga sér til höfuðs og halda áfram að vera þær sjálfar." Hildigunn- ur á kærasta sem heitir Einar Lars Jónsson. Hann er Keflvík- ingur eins og hún og varð stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja síðast- liðið vor en stefnir á leiklistarnám að hausti. -A.G. Marilyn Mead sem sagt hefur ver- ið um að sé Wynton Marsalis- flautunnar. Tónlist Thelonius Monk Annað djasskvöldið I Múla- djassvikunni verður á Sóloni ís- landus í kvöld. Þar mætir til leiks flautuleikarinn Marilyn Mead sem hefur getið sér gott orð í djassheiminum. Mun hún leika tónlist eftir Thelonius Monk. Með henni leika Sigurður Flosason, altósax, Kjartan Valdemarsson, pianó, Gunnar Hrafnsson, bassi, og Jóhann Hjörleifsson, trommur. Tónleikar Marilyn Mead hefur lengi verið á ferð um heiminn og leikið djass og kammermúsík, bæði sem sóló- isti og með öðrum. Gagnrýnandi í Evrópu lét svo ummælt að hún væri Wynton Marsalis-flautunnar sem segir nokkuð um ágæti henn- ar. Mead stundaði nám í París undir verndarvæng Michels Dehosts og var hún valin konsert- listamaður ársins af yngri kynslóð- inni af High-Fidelity Magazine. Hún vann til fyrstu verðlauna í keppni sem leiddi til þess að hún fékk að halda konsert Camegie Recital Hall. Marilyn Mead fæddist og ólst upp í Houston, Texas og segir hún að mestu áhrifavaldur hennar á þessum ámm hafi verið saxófónleikarinn Arnett Cobb. Hún býr nú í Reykjavík. Bridge Á hverju ári veita alþjóðasamtök bridgeblaðamanna (The International Bridge Press Association) verðlaun fyrir bestu sagnraðir, vöm og úrspil og er oft mikil keppni um þessi verðlaun. Spil dagsins þykir koma til greina fyr- ir bestu sagnröðina á líðandi ári. 1 sæt- um NS voru Roger Titkin og Erin Deloney. Suður gjafari og NS á hættu en spilið kom fyrir í tvímenningi: * KD643 é 7 DG863 ♦ 104 * D10652 ♦ KG9752 * K8 * 1098 Suður Vestur 1 grand pass 3 ♦ pass 5* pass Norður Austur 2 •* pass 5 * pass 7 ♦ p/h Galdur og ofbeldi í hádeginu á morgun, kl. 12.05, flytur Helgi Þorláks- son, prófessor í sagnfræði, fyrirlestur í boði Sagnfræð- ingafélags íslands sem hann nefnir Galdrar og félags- saga. Fundurinn verður haldinn í Þjóðarbókhlöðu á 2. hæð í hádeginu og er hluti af fyrirlestraröð Sagn- fræðingafélagins sem nefnd hefur verið: Hvað er félags- saga? og eru allir áhuga- menn um sögu hvattir til að koma á fúndinn. Helgi flutti fyrir- lestur um efnið á vegum heimspekideildar Háskóla íslands stuttu eftir að hann tók við embætti prófessors við sagnfræðiskor og mun í þessum fyrirlestri gera grein fyrir framhaldsrann- sóknum sínum með sér- stakri áherslu á ofbeldi sem var fólgið í líkamlegum árásum og meiðingum. GPS-staðsetn- ingartæki Björgunarskóli Lands- bjargar og Slysavarnafélag íslands stendur fyrir nám- skeiði í notkun GPS-gervi- hnattastaðsetningartækja fyrir almenning í dag og á morgun. Nám- skeiðið er haldið í húsnæði skólans að Stangarhyl 1, Reykjavík. Námskeiðið er grunnfræðsla í notkun GPS, en tæki þessi hafa notið aukinna vinsælda við ferða- lög um óbyggðir. Samkomur Myndgátan Ómótstæðileg kona Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. Grandopnun suðurs sýndi 15-17 punkta og tvö hjörtu norðurs var yf- irfærsla í spaða. Þrír tíglar lýstu há- markshendi með fjögurra spila stuðningi í tromplitnum og tvíspili í tígli. Þá greip norður til sagnar sem getur reynst vel i mörgum tilfellum, sagði 5 hjörtu sem spurði um ása þar sem hjartaliturinn er ekki talinn með (“Woid- wood“ - sumir vilja kaM þessa sagnvenju „Exclusion Blackwood"). Svar suð- urs á fimm spöðum greindi frá eng- um eða þremur ásum og norður vissi að suður átti þrjá en ekki eng- an ás og lyfti því í alslemmuna (suð- ur hefði varla sagt þrjá tígla með spaðagosann og nánast alla aðra punkta í hjartanu). Norður sá að alslemman gat jafnvel unnist þó tíg- ullinn væri 4-1 og í þessari legu var hún lítið vandamál. Sjö spaðar gáfu hreinan topp í tvímenningnum. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.