Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 21
MÁNUDAGUR 19. APRÍL 1999 21 DV Fréttir Vesturland: Enn fækkar fólkinu - og flestir úr Hólminum DV, Akranesi: Samkvæmt bráðabirgðatölum Hag- stofu íslands yfir brottflutning fyrstu þrjá mánuði ársins, fluttust 51 fleiri frá Vesturlandi en fluttust þangað. Ef litið er á brottflutta og aðflutta í stærstu kaupstöðunum á Vesturlandi kemur í ljós að flestir flytjast frá Stykkishólmi, eða 16 fleiri en flytjast þangað, 14 frá Snæfellsbæ, 12 frá Grundarfirði, 6 frá Dalabyggð og fjór- ir frá Borgarbyggð. TO Akraness flytj- ast hins vegar 8 fleiri en flytja frá staðnum. Alls fluttust 185 manns til Vesturlands fyrstu þrjá mánuði árs- ins en 236 fluttust þaðan, eða 51 fleiri. -DVÓ Hornafjörður: Nýr bæjarstjóri DVi Höfn: Bæjarstjóraskipti urðu á Horna- firði 10. apríl þegar Garðar Jónsson tók við af Tryggva Þórhallssyni, settum bæjarstjóra frá 4. febrúar sl. Garðar er viðskiptafræðingur og var deildarstjóri hagdeildar Sam- bands íslenskra sveitarfélaga. Garð- ar er kvæntur Huldu Óskarsdóttur og eiga þau tvö börn. Hvemig leggst starfið í nýráðinn bæjarstjóra? „Mér líst mjög vel á starfið. Hér er stórhugur um uppbyggingu stað- arins, sveitarfélagið er öflugt og hér er ýmislegt að gerast sem ekki er venjulegt að gerist i sveitarfélögum - allt á sama tíma. Hér stendur til uppbygging á Nýherjabúðum, þar sem ný fyrirtæki geta komið undir sig fótunum. Uppbygging fram- haldsskóla, upplýsingamiðstöðvar og háskólastofu fyrir Austurland. Fyrirhugaðar eru stórfram- kvæmdir við höfnina og Markaðs- ráð er nýtekið til starfa. Allt þetta, Tryggvi Þórhallsson (t.v.) tekur nú við sínu fyrra starfi sem fram- kvæmdastjóri stjórnsýslusviðs sveitarfélagsins. Til hægri er Garðar Jónsson bæjarstjóri. DV-mynd Júlía ásamt fjölmörgu öðru, bendir á áhugavert starf og möguleikamir em miklir. Ég er bjartsýnn á fram- tíðina og náttúrufegurð Hornafjarð- ar er einstök og veðráttan eins og best gerist á íslandi," segir Garðár Jónsson, bæjarstjóri Hornafjarðar. Júlía Imsland Togarinn DV-mynd Halldór Dalvík: Arnþór EA til Grindavíkur DV, Dalvík: Undirritaðiu hefur verið kaup- samningur milli Vísis hf. í Grindavík og BGB hf. i Dalvíkurbyggð um kaup Vísis á Arnþóri EA 16 og verður skip- ið afhent þann 23. apríl. Arnþór EA er 395 brúttótonn að stærð og er seldur án kvóta. Arnþór EA er útbúinn til veiða á uppsjávar- fiski og er gert ráð fyrir að hann fari til síldveiða hjá nýjum eigendum. Fyrr á þessu ári festi BGB hf. kaup á Höfmngi AK 91af Haraldi Böðvars- syni og hefur það skip fengið nafnið Arnþór EA 116. -hiá TRIM/VFORM $gl * fi e # H> # t f Grensásvegi 50, sími 553 3818. EMqpM Iií >*, o. /0 rið/ Þjáist þú af vöðvabólgu, þvagleka, brjósklosi eða viltu bara grenna þig og losna við cellobte eða styrkja þig? Þá ertu velkomin í ókeypis kynningartíma hjá okkur. Vatnsnuddbekkur sem gefur nudd og góba slökun. Opið frá kl. 8.00. i fullkomnu -avamat 74620 Þvottahæfni „A“ Þeytivinduafköst „B“ Ljósabretti: Sýnir hvar vélin er stödd í þvottakerfinu Vindingarhraði: 1400/1000/800/600/400 sn/mín afgangsraki 50% Mjög hljóðlát: Ytra byrði hljóðeinangrað Klukka: Sýnir hvað þvottakertin teka langan tíma. Hægt að stilla gangsetningu vélar allt að19tímaframítímann Öll hugsnaleg þvottakerfi BRÆÐURNIR D1ORMSSON HF Lágmúla 8 • Sími 5332800 Umboðsmenn um allt land! tm Heimsending innifalin í verði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.