Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1999, Síða 11
DV LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1999 11 Jarðgöng og Jagger „Hægðu á þér, maður,“ æpti blaðamaðurinn á ljósmyndarann þar sem þeir óku á methraða í gegnum vestfirsku jarðgöngin á Toyota turbo. Þeir voru á hraða sem ekki hefði fallið í kramið hjá sýslumanni þeirra ísfirðinga en ástæða þess hversu hratt miðaði var sú að sjálfur Mick Jagger hafði dúkkað upp handan fjallsins og vit- að var að hann myndi leggja á flótta um leið og hann svo mikið sem fyndi lykt af ljósmyndara eða blaðamanni. Blaðamaðurinn var hundkunnugur vestur á fjörðum en ljósmyndarinn hafði aOan sinn langa aldur haldið sig við Reykja- vík og þá helst miðsvæðis. Þeir höfðu farið um þriðjung ganganna án teljanlegra skakkafalla þó annar hliðarspegillinn hefði lent utan í gangaveggnum með slæmum af- leiðingum. Hinn vestfirski blaða- snápur rak miskunnarlaust á eftir ljósmyndaranum. „Hraðar, hraðar. Ætlarðu að missa af Jagger," sagði hann og lamdi létt í mælaborðið til að ná upp svipaðri stemningu og gerist í kappróðri þar sem stýri- maður gefur frá sér ákveðin hljóð og lemur með krepptum hnefa í borðstokkinn til að hvetja sína menn. í aftursæti bifreiðarinnar sat eiginkona ljósmyndarans sem var ýmsu vön eftir ótal fréttaferðir með manni sínum frá því um miðja öldina. Niðurbældar stunur henn- ar í húmi jarðganganna náðu ekki að trufla áform þeirra sem framar sátu í bílnum. „Er ekki allt í lagi?“ kallaði ljósmyndarinn aftur í til konu sinnar og með herkjum kom svarið. „Jú, jú, við erum búin að koma upp öllum börnunum okk- ar.“ I sporum Díönu Jarðgöngin eru einbreið en með útskotum til að þeir sem á móti koma geti vikið. Þegar nálin á hraðamælinum sýndi tölu sem ekki má koma á prenti birtust skyndilega bílljós skammt undan. Blaðamaðurinn sem fram að því hafði hvatt hinn óspart til að slá í klárinn fraus sem snöggvast. Um huga hans flugu lýsingar á þeim hryllingsatburði þegar Díana og Dodi enduðu líf sitt í jarðgöngum. Þar sem bílljósin nálguðust með ógnarhraða fannst hon- um sem hann væri í miðri mannkynssög- unni og gott ef ekki sjálf- ur Dodi. Jagger gleymd- ist og eitt andartak fannst blaðamannin- um sem hann væri sjálfur með nokkra papparazzía á hæl- unum á flótta undan pressunni. Hann hrökk upp úr þessum hugsunum enda ekki Díana sem-sat við hlið hans heldur frekar geðþekkur ljósmynd- ari sem á tyllistundum hafði að vísu verið líkt við hina erlendu kollega sem stund- uðu þá iðju að elta fræga fólkið og mynda. Þá lá fyrir að þrátt fyrir þokka hans hafði Díana vinninginn, auk þess að vera af öðru kyni. Þar sem ofsahræðsl- unni linnti og rökrétt hugsun fékk yfirhöndina bað hann ljósmyndar- ann að hægja á sér áður en illa færi: „Hvað er þetta, ertu aldrei ánægður?" urraði bílstjórinn sem var i ham. „Þú verður að gera það upp við þig hvort ég á að fara hraðar eða stoppa," bætti hann við þar sem hann stóð bremsuna i botni með tilheyrandi ískri í miðjum Vestfjarðagöngun- um. í sömu svifum mátti merkja hvar hinn aðvífandi ógnvaldur jarðgang- anna skaust inn í útskot og Toyotan tók aftur flugið undir hvatningu far- þegans í framsætinu. „Helvíti er dimmt í göngunum. Þeir tíma ekki að lýsa þau upp,“ sagði ökumaðurinn við farþegann þar sem hann fékk mælt eftir at- burðinn. Hinn var ekki sammála þessu mati ljósmyndarans og taldi lýsinguna vera með miklum ágæt- um svo sem Vestfirðinga væri von og vísa. í fjórðungnum væru menn þekktir fyrir allt annað en að spara ljós og hita eins og sjá mætti af hita- reikningum fólks sem gjarnan væru hærri en matarreikningarnir. Hann leit á bílstjórann, samstarfsmann sinn, og spurði hvort ekki væri ráð hjá honum að taka af sér sólgleraug- un þarna inni i fjallinu. „Nú, hvur fjandinn," sagði ljósmyndarinn af bragði og þreif þau af sér í sömu svifum og bifreiðin rann út um gangamunnann Ísafjarðarmegin og vestfirskt sólskin hellti geislum sín- um yfir ferðafólkið. Bíllinn tók smá- sveiflu yfir á rangan vegarhelming á meðan ökumaðurinn bjástraði við að koma á sig sólgleraugunum aftur en síðan var brunað, réttum megin, í áttina að miðbæ ísafjarðarkaup- staðar. Bærinn í uppnámi Bærinn var í uppnámi og algjört fjölmiðlafár ríkti. íbúarnir þvæld- ust hver um annan þveran í mið- bænum í leit að hinum eina sanna Jagger sem virtist týndur og tröll- um V Laugardagspistill Reynir Traustason gefinn eftir að hafa valdið taugaá- falli hjá nokkrum íbúum sem skyndilega höfðu mætt sjálfu goð- inu á heimavelli. Félagarnir spurðu nokkra vegfarendur um ferðir Jaggers en enginn vissi neitt nema það eitt að hann hefði hjólað í burtu. Sjá mátti hvar sjónvarps- menn voru að taka viðtal við út- varpsmann sem átt hafði viðtal við 'SsEá Jagger. Sá lýsti því með and- köfum hvernig hann hefði borið hljóðnemann upp að andliti hins heimsþekkta söngvara sem hefði hindrunarlaust tekið til máls. Hinn heimsþekkti munnur hans, sem jafnframt var vörumerki Stones, hafði opnast upp á gátt og út streymt meiri vísdómur en Vestfirðingar áttu að venjast. Það var sama hvar borið var niður í höfuðstað Vestfjarða, enginn vissi hvað hefði orðið af Rollingnum. Félagarnir sammæltust um að aka niður að höfn í þeirri von að þar væri Jagger að finna í lífæð staðar- ins. Þar bar vel í veiði og söngvar- inn stóð eins og hver annar triflu- karl á kajanum og virtist vera að athuga með sjóveður. Hann brosti út að eyrum þegar Toyotan stöðv- aðist við hlið hans og útsendaram- ir birtust. Tónleikana á íslandi sem aflýst var sagði hann aðeins hafa verið á umræðustigi en ekki hefði verið tekin ákvörðun. Hon- um fannst mikið til þess koma að hálf íslenska þjóðin hefði beðið þess í ofvæni að Rolling Stones spiluðu í Sundahöfn. „Er það virkilega? Trúðuð þið því að við kæmum?“ spurði hann á móti og var greinilega að forðast að gefa yf- irlýsingar um hið ofúrviðkvæma mál sem næstum því hafði valdið þjóðarsorg. Heimamenn og ferða- fólk þyrptust nú að söngvaranum í mikilli geðhræringu, raulandi Stoneslög. Jagger tók þessu með miklu jafnaðargeði þrátt fyrir að vera í erfiðu skiln- aðarmáli við Jerry Hall og faðmaði þá sem vildu faðma hann á annað borð. „Sorry about Jerry,“ sagði miðaldra kona og horfði djúpt í augu hans án þess að upp- skera svo sem sáð var. Önnur faðmaði hann og stundi í sífellu: „You can’t always get what you want.“ Hin þriðja raulaði í eyra söngvarans 1 can get no satisfaction en ekki var að sjá að söngvarinn hygðist bregðast sérstak- lega við þeirri krísu. Popp- goðið svaraði spurningum DV- manna, sem lagt höfðu á sig háskafor um jarðgöng og fjallvegi, um það hvenær restin af hljóm- sveitinni kæmi. „Ég veit það ekki? Ætli við komum ekki á næstu hljómleika- ferð,“ sagði hinn kjaftstóri stór- söngvari hinnar einu sönnu Roll- ing Stones og hló svo hátt að við lá að undir tæki í vestfirskum fjöllum og hvarf síðan um borð í léttabát sem flutti hann um borð í snekkju á Pollinum. Enn í háska V Bærinn var í uppnámi og algjort fjolmiðlafar rikti Jagger brosti út að eyrum og faðmaði þá sem á annað borð vildu faðma hann. DV-mynd Sveinn Það var afslappað andrúmsloftið í Toyotunni á heimleiðinni. Ekið var á löglegum hraða eftir Skutuls- fjarðarbrautinni þar sem Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður ís- firðinga, sem átti að baki tugi tón- leika með Rolling Stones og hafði nú loksins hitt sjálfan höfuðpaur- inn að máli, stóð og horfði á snekkju Jaggers en gaf sér samt tíma til að heilsa tiðindamönnum DV með heiðurskveðju. Ekið var á jöfnum og löglegum hraða inn í jarðgöngin sem voru tvíbreið. Ljós- myndarinn kippti af sér sólgleraug- unum um leið og komið var inn í fjallið og leit hróðugur á samstarfs- manninn. „Maður lærir af reynsl- unni,“ sagði hann og brosti út und- ir eyru. Þar sem komið var inn að miðju ganganna þrengdust þau og við tóku útskot. Á undan Toyot- unni voru fjórir bilar á vesturleiö og þar sem fyrsta útskotið var að baki byrjaði ljósmyndarinn að rausa. „Hvers konar aksturslag er þetta á þeirn," sagði hann og leit á hraða- mælinn sem sýndi 40 kílómetra hraða þar sem 60 kílómetrar voru leyfilegur hámarkshraði. „Hættu- legustu ökumennirnir eru þeir sem aka langt undir hámarkshraða. Það stafar af þeim stórhætta," sagði hann með nokkrum þjósti en í sömu svifum gáfu allir fjórir bíl- arnir stefnuljós til hægri og hurfu inn í útskot einn af öðrum. „Helvíti eru þeir almennilegir," sagði ljósmyndarinn og gaf allt í botn og fór fram úr lestinni áður en heimamaðurinn náði að mót- mæla og benda honum á að þeir sem væru á vesturleið ættu að víkja í einbreiðum göngunum. Toyotan var komin á gott skrið þegar farþeginn stundi upp að það væri bíll á móti og sá ætti réttinn. Þar sem ljósin nálguðust óðfluga tók sig upp gamla tilfinningin frá því fyrr um daginn og farþeganum fannst hann enn vera í sporum Dodi og Díönu í jarðgöngunum í París. Toyotan var þanin til hins ýtrasta og þar sem hún skaust inn í næsta útskot í sömu svifum og hinn þeyttist framhjá leit bíl- stjórinn á skjálfandi farþeg- ann: „Ertu svona bíl- hræddur. Þetta er aflt undir kontról og að- eins spuming um að víkja á réttum tíma.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.