Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001 21 DV Sport Haukar gegn Sporting Lissabon í EHF-keppninni: Sporting-Haukar 21-21 Breiðablik-Stjarnan 21-29 Dómarar (1-10): Kaplanis og Sawides frá Kýpur (7). Gœdi leiks (1-10): 5. Áhorfendur: 1.700. 1-0, 1-3, 2-3, 2-4, 4-5, 4-11, 6-12 (7-14), 7-15, 8-17, 10-18, 12-21, 14-24, 17-25, 19-28, 21-29. Breidablik Mörk/viti (skot/viti): Zoltan Belanyi 6/4 (10/4), Björn Hólmþórsson 5 (14/1), Kristinn Hallgrímsson 4 (6), Sigtryggur Kolbeinsson 3 (11), Orri Hilmarsson 2 (10), Andrei Lasarev 1 (2), Stefán Guðmundsson (5). Mörk lir hraóaupphlaupum: 3 (Belanyi, Lasarev, Kristinn). Vítanýting: Skorað úr 4 af 5. Varin skot/víti (skot á sig): Rósmundur Magnússon 13/1 (42/4, 31%). Brottvísanir: 0 mínútur. Stiarnan Mörk/viti (skot/viti): Arnar Pétursson 7/3 (10/3), Konráð Olavsson 6 (8), Davíð Ketilsson 5 (7), Eduard Moskalenko 3 (4), Magnús Sigurðsson 3 (6), Þórólfur Nielson 2 (2), Björgvin Rúnarsson 2 (6/1), Sigurður Viðarsson 1 (2). Mörk úr hraöaupphlaupum: 9 (Konráð 4, Þórólfur 2, Davíð 2, Björgvin). Vitanýting: Skorað úr 3 af 4. Varin skot/viti (skot á sig): Birkir ívar Guðmundsson 23/1 (44/5, 51%). Brottvisanir: 4 mínútur. Dómarar (1-10): Einar Hjaltason og Ingvar Reynisson (6). Gceói leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 30. Maður leikins: Birkir Ivar Guðmundsson, Stjörnunni „Verðum að halda áfram“ - sagði Guðmundur Karlsson eftir sigur FH á ÍBV í Eyjum „Við erum búnir að vera í svipuðum vandræðum og ÍBV, erum með meidda menn og höfum ekki unnið leik hérna í fjöldamörg ár. Við spiluðum hins vegar ágætlega úr því sem við höfðum og lékum betur en í undanförnum leikjum. iBV gefst aldrei upp og liðið á hrós skilið fyrir að vera með þennan sjúkralista en téíla samt fram ungum strákum sem standa sig mjög vel. Við áttum náttúrlega frábæran fyrri hálfleik og unnum leikinn á honum. Þetta gefur okkur sjálfstraust fyrir baráttuna sem fram undan er um sæti í átta liða úrslitum. Þetta gefur okkur aukna möguleika í bili en nú verðum við bara aö halda áfram,“ sagði Guðmundur Karlsson, þjálfari FH, eftir 18-26 sigur FH í Eyjum á fóstudag. Leikur ÍBV og FH í sextándu umferð Nissandeildarinnar varð aldrei spennandi. Gestirnir úr Hafnarfirði mættu einfaldlega mun sterkari til leiks enda ÍBV-liðið nokkuð auðveld bráð um þessar mundir þar sem meiðsl og brottíoll lykilleikmanna gera Eyjamönnum erfitt fyrir. Það verður þó ekki tekið af Hafnfirðingum að liðið lék vel. Það munaði mikið um það fyrir FH að Sigurgeir Ægisson átti hvert þrumuskotið af fætur öðru og ljóst að þar er mikið efni á ferð. Staðan í hálfleik var 8-16, helmingsmunur, og nánast aðeins spuming hve stór sigur Hafnfirðinga yrði. Ljóst er að mikið uppbygg- ingarstarf bíður Eyjamanna næstu misseri. Þó er enga uppgjöf að heyra í herbúðum liðsins og stefna menn ótrauðir á átta liða úrslit. Ef litið er raunhæfum augum á málið mun liðið ltklega róa lífróður í deildinni enda eru margir leikmenn liðsins enn í þriðja flokki. Efniviðurinn er svo sannarlega fyrir hendi en það er einfaldlega eftir að vinna úr honum. Segja má að FH-ingar séu skrefi á undan ÍBV í uppbyggingartíð sinni. Margir leikmanna liðsins eru um eða í kringum tvítugt og verða án efa erfiðir viðureignar það sem eftir lifir deOdarkeppninnar. -jgi íslandsmeistarar Hauka í handknattleik náðu á laugardag jafntefli gegn portúgalska liðinu Sporting Lissabon, 21-21, á útivelli í Lissabon. Góð barátta Haukanna, varnar- leikur þeirra og ekki síst frábær mark- varsla Bjama Frostasonar kom heima- mönnum í opna skjöldu og stuðningsmenn Hauka yfirgnæfðu blóðheita Portúgala í höllinni. Haukar byrjuðu vel í leiknum og sýndu Sporting strax að þeir væru ekki auðveld bráð og komust i 0-2. Heimamenn komust þó af stað eftir smáhik og náðu frumkvæð- inu og höfðu það fram yfir miðjan fyrri hálfleik, einkum sökum slakrar sóknar hjá Haukunum sem komust ekki almennilega í gang og voru aðeins að tapa boltanum klaufalega. Það lagaðist þó þegar nær dró hálfleikn- um og á tímabili náðu Haukar að skora fjögur mörk í röð og höfðu yfir í leikhléi, 9-10, og þá forystu áttu þeir að mestu Bjarna að þakka sem varði 13 skot í fyrri hálfleiknum. Skorið í fyrri hálfleik var mjög lágt og tæknileg mistök þeim mun fleiri en venja er og fátt breyttist á þeim vígstöðvum í síð- ari hálfleik. Heimamenn byrjuðu betur og náðu eins marks forystu en þá kom aftur slæmur kafli hjá þeim og Haukar skoruðu fjögur mörk í röð og náðu þriggja marka forystu sem þeir héldu aö mestu þar til ör- fáar mínútur voru eftir og heppnin virtist ganga í lið með Sporting sem skoraði þrjú síðustu mörk leiksins. Haukarnir voru klaufar að hleypa þeim svona inn í leikinn aftur en þeir áttu vart skot á markið á síðustu fimm mínútunum gegn ákafri vöm heimamanna. „Þetta var mjög óvænt og þeir voru í raun heppnir að ná jafntefli," sagði Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, þegar DV-Sport náði tali af honum eftir leikinn. „Ég þakka frábærri markvörslu Bjama og vörn þennan góða árangur og baráttan var góð í liðinu, það gáfu sig allir 100% í leikinn. Þetta var orðið erfitt í sókninni í lokin þegar höndin var komin upp eftir flmm sekúndur og okk- ur skipað að skjóta eftir þrjár sendingar og þetta fór í svolítinn baklás þess vegna. Við fórum illa með stöðuna 18-21. Við gátum gert út um leikinn nokkrum sinnum en vorum að klikka. í heildina var þetta hins vegar frábær leikur, baráttan frábær og stuðningsmennirnir stórkost- legir. Það er mjög mikilvægt fyrir liðið að hafa svona hóp á bak við sig. Þetta var mikið ævintýri og aðeins einu sinni á lífstíð sem maður uppliflr svona stórkostlega stemningu. Portúgalarnir virt- ust hálflamaðir og alveg að brotna, okkur vantaði að gefa þeim náðarhöggið en þeir komust inn í leikinn aft- ur af mikl- um dugn- aði. Við get- um verið ágætlega sáttir við dómgæslu Kýpurbúanna, þeir voru kannski aðeins í heimadómgæslunni en í heildina erum við mjög sáttir og þeir eru það besta sem við höf- um fengið á útivelli í þessari keppni," sagði Viggó. Bjarni Frostason var tvímælalaust besti maðurinn á vellinum, Halldór Ingólfsson kom sterkur inn í síðari hálfleikinn og skoraði sex mörk þá. Aliaksandr Shamkuts er alltaf traust- ur bæði í vörn og sókn og Rúnar Sigtryggsson var einnig traustur. Einar Örn Jónsson náði ekki að setja mark en spilaði feikilega vel í vöminni á móti hávaxinni skyttu Sporting sem setti aðeins eitt mark. Portúgalski landsliðsmaðurinn Ricardo And- orinho var besti maður heimamanna og skor- aði níu mörk og félagi hans f markinu, Fer- reira, varði einnig nokkuð vel eða 15 skot. Þá skoraði örvhenta skyttan, Garaca, sex mörk. Rosalegur leikur „Það stefnir í rosalegan leik á laugardag- inn,“ sagði Viggó þegar hann var inntur eftir því hvemig honum litist á heimaleikinn um næstu helgi. „Það verður svipaður leikur og hann getur farið á hvorn veginn sem er. Við þurfum að fara í þann leik með gífurlega öflugu hugarfari og sjálfstrausti og verðum auðvitað að fá fúllt hús. Þetta lið er mjög vel samhæft með reynda leikmenn. Maður getur alveg sagt að einhverjir þeirra hafi verið aö spila illa í dag og Bjami var að verja frábærlega. Við verðum því að passa okkur, þetta er ekki kom- ið enn,“ sagði Viggó að lokum. -ÓK Létt - hjá Stjörnunni gegn Blikum Stjarnan sigraði Breiða- blik 21-29, eins og við mátti búast, í Smáranum á laugardaginn. Stjörnumenn komu ákveðnir til leiks og tóku strax frumkvæðið og ber það helst að þakka sterkri vörn og góðri markvörslu Birkis ívars en auk þess réðu heimamenn engan veginn við skyndiupp- hlaup gestanna sem þeir nýttu vel og skoruðu níu mörk. Staðan í hálfleik var 7-14, Stjörnunni í vil, en Breiðabliksmenn vora þó ekki á þeim buxunum að gefa leikinn og komu mun grimmari til síðari hálf- leiks og sýndu á köflum prýðisgóðan leik. Hins vegar var sigur Stjörnu- manna aldrei í hættu og aðeins formsatriði fyrir leikmenn Stjömunnar að klára leikinn. „Við kláruðum leikinn í fyrri hálfleik en ég hefði viljað sjá menn spila af sama krafti í þeim seinni þvi hugsanlega getur markataflan ráðiö um stöðu leiðanna í lokin en við náðum í tvö stig og það er það sem máfi skiptir," sagði Einar Einarsson, þjálfari Stjömunnar. „Ég ánægður með leik liðsins í síðari hálfleik þeg- ar menn byrjuðu að spila saman og ég held að menn séu famir að skilja það núna hvernig þarf að spila,“ sagði Alexei Truf- an, þjálfari Breiðabliks, eftir enn einn ósigurinn. -ÞAÞ Bjarni Frostason átti frábæran leik í marki Hauka í Portúgal og varði alls 22 skot frá Sporting-mönnum. Uvmrpool- öfpar 9-2, 4-2, 5-5, 7-7, 7-10 (9-10), 11-10, 12-11, 12-15, 16-16, 17-18, 18-21, 21-21. Haukar Mörk/viti (skot/viti): Halldór Ingólfs- son 7 (9), Aliaksandrkj Shamkuts 5 (6), Rúnar Sigtrygsson 4/3 (9/3), Óskar Ar- mannsson 3 (6/1), Ásgeir Örn Hallgríms- son 1 (1), Jón Karl Björnsson 1 (1), Petr Baumruk (2), Þorvarður Tjörvi Olafsson (2), Einar Örn Jónsson (3). Mörk úr hraóaupphlaupunu 5 (Halldór 2, Óskar, Jón Karl, Shamkuts). Vítanýting: Skorað úr 3 af 4. Variti skot/víti (Skot á sig): Bjarni Frostason 22/1 (43/3, 51%). Brottvisanir: 8 mínútur. Maöur leikins: Bjarni Frostason, Haukum ÍBV-FH18-26 0-1,1-4, 3-8,6-11 (8-16), 9-16,13-18,14-21, 16-24,18-26. ÍBV Mörk/viti (skot/víti): Guðfinnur Krist- mannsson, 6 (16/1), Mindaugas Andriuska, 5/1 (10/3), Sigurður Ari Stef- ánsson, 4/2 (7/4), Ríkharð Guðmundsson, 2 (6), Davið Þór Óskarsson, 1 (2), Sindri Ólafsson, (3), Svavar Vignisson, (3), Daði Pálsson, (1), Sindri Haraldsson, (1). Mörk úr hraðaupphlaupum: 3 (Sigurð- ur, Davíð, Mindaugas) Vítanýting: Skorað úr 3 af 8. Varin skot/viti (skot á sig): Gísli Guð- mundsson 13 (39 33%). Brottvisanir: 10 mínútur. (Svavar rautt á 56. mín fyrir 3 brottrekstrar). FH Mörk/viti (skot/víti): Sigimgeir Ægis- son, 8 (11), Logi Geirsson, 4 (6), Jason Ólafsson, 4 (11), Valur Amarsson, 3 (6), Guðmundur Pedersen 2 (2), Hálfdán Þórð- arsson, 2 (3), Lárus Long 2 (4), Victor Guðmundsson, 1 (3), Sverrir Þórðars., (1). Mörk úr liraöaupphlaupum: 8 (Logi 2, Valur 2, Lárus 2, Guðmundur 2) Vitanýting: Engin víti. Varin skot/víti (Skot á sig): Bergsveinn Bergsveinsson 18/1 (34/4, 53%, víti í slá og í stöng), Jónas Stefánss. 3/2 (5/2 60%). Brottvísanir: 12 mínútur (Gunnar Gunn- ars. rautt á 48. mín fyrir 3 brottrekstra). Dómarar (1-10): Guðjón L. Sigurðsson og Ólafur Haraldsson (6) Gœói leiks (1-10): 5. Áhorfendur: 111. Maður leikins: Bergsveinn Bergsveinsson, FH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.