Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Blaðsíða 18
36 MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001 Sport i>v Björg Gunnarsdóttir sýndi góö tilþrif þrátt fyrir að hún væri nýlega byrjuð að stunda golfið. Ólafur Ólafsson er hrifinn af golfinu. Krakkarnir hafa unað hag sínum vel í skólagolfinu og áhuginn er mikill. DV-myndir E.ÓI. „Tiger Woods er langbestur“ Eina stúlkan sem var í hópnum sem blaðamaður heimsótti var Björg Gunnarsdóttir og var hún tiltölulega nýbyrjuð í þessu (þó að það sæist ekki á tilþrifunum). Þeg- ar hún var spurð af hverju hún hefði skellt sér i þetta var fátt um svör, en svo kom þó í ljós að pabbi hennar hefur stundað golf. „Hann fer mikið í golf á sumrin og ég hef stund- um farið' með honum. Mér fmnst það mjög gam- an,“ sagði hún. Björg reiknar með að hún fái að fara eitthvað með pabba sínum á golf- völlinn í sumar og kannski jafnvel slá eitt- hvað sjálf. „Ég hef stund- um fengið að slá aðeins þegar ég er með pabba og kannski fæ ég að slá meira núna,“ segir hún. Björgu fannst óneitan- lega skrýtið að vera eina stelpan i hópnum en virt- ist samt ekkert finnast neitt athugavert við það. „Ég myndi ekkert frekar vUja fá fleiri stelpur i þetta. Þetta er ágætt svona,“ sagði hún. Henni finnst skemmti- legast að pútta þegar hún er í golfinu. Ólafur Ólafsson er að- eins reyndari í golflnu en Björg. „Ég er búinn aö æfa 2-3 sinnum þannig að ég er að verða betri. Ég hef líka farið upp á völl með kennaranum," segir hann þegar blaða- maður hrósar honum fyr- ir góð skot. Ólíkt Björgu er enginn náinn fjölskyldumeðlim- ur Ólafs í golfinu. „Ég var bara hrifinn af þess- ari íþrótt," segir hann. Ólafur segist ekki horfa mikið á golf í sjón- varpinu en á þó sinn upp- áhaldsgolfara. „Það er Tiger Woods. Hann er bestur. Hinir eru lélegir." Honum finnst skemmtilegast að taka löng skot. Hann er þó ekki viss um hvort hann muni fara mikið á golf- völlinn í sumar. Það er ekki vafamál að í þessum hópi, sem stundar golfið, leynast nokkrir upprennandi golfarar og verður fróð- legt að sjá hvemig mun ganga hjá þeim þegar fram líða stundir. -HI Marsmaraþon Marsmaraþon verður þreytt laugardaginn 31. mars. Það hefst kl. 9.30 við Ægisíðu í Reykja-vík. Það sérstaka við hlaupið er að þetta er forgjafarhlaup sem þýðir að menn byrja ekki á sama stað heldur fer það eftir ákveðnum skala hvar hver hlaupári byrjar. Skráningu í hlaupið lýkur viku áður en hlaupið hefst og fá allir sem Ijúka keppni verðlaunapening. Nánari upplýsingar veitir Pétur I. Frantzson í símum 551-4096 og 898- 9902. Þess má aö lokum geta að hlaupaskrá fyrir árið 2001 verður birt hér á síðunni i næstu viku. -HI Almenningsíþróttir og útivist Skólagolf Iþróttakennsla fyrir böm i skólum er að verða sífellt fjölbreyttari og krakkar fá að kynnast mun fleiri iþróttagreinum nú en fyrir nokkrum árum. Meðal þess sem börn geta nú lært í skólunum er golf, en Anna Día Erlingsdóttir, íþróttakennari við Hofs- staðaskóla, hefur nú kennt grunnskóla- börnum golf í vetur. Það voru tveir golfkennaranemar sem gerðu lokaverkefni um skólagolf fyrir rúmu ári og gáfu út rit um golf- kennslu fyrir börn. Anna Día, sem er íþróttakennari við Hofsstaðaskóla í Garðabæ, var hvött til að taka þessa kennslu upp í skólum og er þetta ann- ar veturinn sem hún sér um þetta. Yfir vetrartímann er æft golf í íþróttasaln- um en á haustin og vorin fá krakkarn- ir að prófa þetta utanhúss. Tíminn hjá krökkunum byrjar á að krakkamir velja sér kylfu og setjast síðan á gólfið. Enginn má hreyfa kylf- una nema með leyfi kennarans. Síðan getfur kennarinn skip- anir um hvernig æfing- ar skuli gera og síðan fá krakkarnir að æfa sig. Á meðan blaðamað- ur fylgdist með voru gerðar margvislegar æfingar, s.s. púttæfing- ar, há högg og reynt að hitta kúluna á ákveð- inn stað (tekið skal þó fram að ekki var leikið með alvöru golfkúlum, heldur litlum plastkúl- um og tennisboltum). Að sögn Önnu eru krakkamir mjög mót- tækilegir fyrir þessu. „Þeir hafa tekið þessu mjög vel og finnst mjög spennandi að prófa eitt- hvað nýtt. Krakkamir héldu fyrst að það væri ekki hægt að spila golf inni en svo komust þeir að því að það þarf ekki golfvöll til að geta æft sig í golfi." Og foreldrarnir hafa einnig sýnt þessu áhuga. „Síðasta vor var svo mik- Ul áhugi hjá mæðrum að fá að taka þátt í þessu með bömunum að við skeHtum þeim i sérhóp í einum tíman- um. Það var mjög skemmtUegt og for- eldrarnir eru alltaf velkomnir að taka þátt i þessu með börnunum enda er þetta fjölskylduíþrótt og fjölskyldur ættu að gera meira af því að fara sam- an á golfvöllinn." Það sem hefur vakið sérstaka at- hygli er að stelpurnar hafa ekki sýnt þessu sérstakan áhuga og það sást á því að i timanum, sem undirritaður fylgdist með, var aðeins ein stúlka í tólf manna hópi. „Það er eins og stúlk- umar haldi að þetta sport sé bara fyr- ir stráka en það er að sjálfsögðu mikiU misskUningur." Anna Día vonast tU þess að golfið verði kennt í fleiri skólum. „Þetta hef- ur tekist mjög vel hér og ætti örugg- lega að geta gengið annars staðar líka,“ segir hún að lokum. Þess má geta að auk skólagolfsins býður Tómstundaheimili Flataskóla og Hofsstaðaskóla upp á golfleikjanám- skeið þar sem menn eru að leika sér meira í golfínu. -HI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.