Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Blaðsíða 16
34 MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001 Sport Anton Kristjánsson, sundmaöur úr Ösp, stóð sig vel á alþjóðlega mótinu í Malmö og náði B-lágmarki í landsliðiö í bringusundi. Hann tryggði sér jafnframt þátttökurétt á Evrópumeistaramótinu í sundi sem fram fer í sumar. DV-mynd AKV Fatlaðir íþróttamenn á alþjóðlegu móti í Svíþjóð: - í Malmö hjá íslensku krökkunum sem unnu til 29 verðlauna Eitt af fóstum verkefnum nokk- urra aðildarfélaga ÍF hefur verið þátttaka í alþjóðlegu íþróttamóti í Malmö i Svíþjóð, sem fram fer í febrúar ár hvert, nú síðast helgina 10.—11. febrúar síðastliðinn. Tvö að- ildarfélaga ÍF, Ösp og ÍFR, sendu keppendur á mótið. Alls tóku 14 keppendur frá Ösp og 4 frá ÍFR þátt í sundi en auk þess sendi ÍFR þrjá keppendur í borðtennis. Flestir , þeirra íslendinga sem eru 17 ára og yngri kepptu í 25 og 50 m greinum á mótinu en þeir eldri kepptu í 50,100 og 200 m greinum. Ný afreksstefna ÍF Að loknum Ólympíumótum fatl- aðra hefur yflrleitt farið af stað um- ræða innan hreyfingarinnar, um það hvort í sjónmáli séu framtíðar- efni til þess að fylgja eftir glæstum árangri fyrri ára. Innan aðildarfé- laga ÍF og viða um landið leynast framtíðarefni sem ÍF reynir að hlúa að í samvinnu við þjálfara viðkom- andi einstaklinga. íþróttanefndir ÍF vinna nú að mótun hverrar íþrótta- greinar í samræmi við nýja afrek- stefnu ÍF. Þar er m.a. lögð aukin áhersla á þá umgjörð er snýr að framtíðarefnum innan hreyfingar- innar. Persónuleg met gleðja mest! Á mótinu i Malmo í Svíþjóð náð- ist mjög góður árangur, ekki síst meðal þeirra yngri í hópnum sem settu persónuleg met i fjölda greina. íslenski hópurinn vann til fjöl- margra verðlauna, en það sem vakti mesta ánægju þjálfaranna var hve margir íslenskir keppendur settu persónuleg met á mótinu. Frá íþróttafélaginu Ösp unnu eft- irtaldir til verðlauna á mótinu: í flokki þeirra sem fæddir voru 1986 og síðar vann Adrian Óskar Erwin 2 brons. í flokki þeirra sem fæddir eru 1983-1985 vann Andri Hilmarsson 2 silfur. Anton Kristjánsson vann gull- verðlaun í 50 m skriði í unglinga- flokki en hann keppti í fullorðins- flokki í öðrum gi-einum og bætti tíma sína i flestum tilvikum. Hann náði meðal annars B-lágmarki í landslið í bringusundi og hefur með því unnið sér inn þátttökurétt á Evrópumeistaramótið í sundi sem fram fer i sumar. Fyrsta mót eftir árshlé Bára Bergmann Erlingsdóttir var að keppa á sínu fyrsta móti erlendis eftir árshlé frá keppni en hún á að baki áralanga keppnisreynslu og frækna sigra á alþjóðamótum. Það má með sanni segja að hún hafi minnt á sig svo um munar. Hún vann 4 gull og 2 silfur og synti und- ir A-lágmörkum i nokkrum grein- um. Til að komast inn í A-landslið þarf hún að synda undir lágmörk- unum í 50 m laug en keppt var í 25 m laug í Svíþjóð. 5 íslandsmet hjá Gunnari Gunnar Örn Ólafsson einn af okk- ar efnilegustu sundmönnum og yngsti íslenski keppandinn í Sydney í október, keppti í flokki fullorðinna og vann til 6 verðlauna. Hann er einn af fjórum sundmönnum sem náð hefur að synda undir A-lág- mörkum sem sett eru fyrir landslið ÍF í sundi. Gunnar Örn vann tvö gull og 4 silfur. Hann stórbætti ár- angur sinn og setti islandsmet í' 5 greinum. Þess má geta að fyrir einu ári síð- an keppti Gunnar Örn á þessu sama móti og komst þá ekki á verðlauna- pall. Gunnar Öm náði líka lágmörk- um fyrir IMÍ (innanhúsmeistara- móti íslands hjá ófötluðum) sem haldið verður í Vestmannaeyjum helgina eftir íslandsmót fatlaðra. Hann náði lágmarkinu í 100 m baksundi. Þátttakendur frá ÍFR kepptu allir í yngri flokkunum og hlutu samtals 12 verðlaun. Jóna Dagbjört Péturs- dóttir hlaut 3 gull, Jón Þorgeir Guð- bjömsson hlaut 4 gull og Bjarni Þór Einarsson hlaut 5 silfur. Hlúum aö einstaklingunum Þetta var mjög skemmtilegur og samstilltur hópur og voru þjálfar- arnir sammála um að þetta hefði verið mjög vel heppnuð ferð sem hefði staðfest aö framtíðarefnin eru til staðar innan hreyflngarinnar. Aðalatriðið nú er að hlúa vel að þessum einstaklingum og skapa að- stæður sem gera þeim kleift að ná sem bestum árangri á næstu árum. -AKV Sunddrottningin Kristín Ftós Hákonardóttir og þjálfari hennar, Kristín Guömundsdóttir fengu afhenta blómvendi frá Lionsklúbbnum Eir 5. febrúar síöastliöinn. Góð heimsókn íþróttasamband Fatlaðra hefur átt mjög gott samstarf við ýmis félagasamtök sem stutt hafa starfsemi ÍF og aðildarfélaga þess með fjárstuðningi en hafa auk þess tekið beinan þátt í starfi nokkurra aðildarfélaga ÍF. Kynningar á starfsemi ÍF hafa verið í boði fyrir þá er þess óska og margir hafa leitað til ÍF á undanfórnum árum og óskað eftir kynn- ingu og/eða heimsókn frá ÍF. Oft er um að ræða stutta samantekt á heildarstarfsemi ÍF auk þess sem sú regla hefur verið viðhöfð að fatlaður einstaklingur er með stutt innlegg um eigin reynslu af gildi íþróttastarfsins. Einnig eru kynningar stundum tengdar ein- staka verkefni á vegum ÍF. Lionsklúbburinn Eir, sem styrkti ÍF vegna þátttöku í Ólympíumóti fatlaðra í Sydney óskaði eftir því að fá fulltrúa ÍF á fund klúbbsins 5. febrúar. Lionsklúbburinn Eir hefur í mörg ár styrkt ÍF vegna einstakra verkefna og hefur þannig ásamt fjölmörgum öðrum aðilum gert ÍF kleift að efla og þróa starfsemina enn frekar. Tveir góðir fulltrúar mættu á fund hjá klúbbnum 5. febrúar, þær Kristín Rós Há- konardóttir, sundkona og Kristín Guðmunds- dóttir, landsliðsþjálfari ÍF í sundi. Kristín Rós Hákonardóttir, hélt erindi á fundinum um eigin reynslu af íþróttastarfl fatlaðra og þátttöku í Ólympíumótum. Kristín Guð- mundsdóttir, ræddi um þjálfun fatlaðra og ýmis mál tengd starfseminni. Kristín Rós og Kristín þjálfari voru yfir sig ánægðar með móttökurnar en heimsókn þeirra vakti mikla ánægju meðal Lionskvenna eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. -AKV I>V íþróttasamband fatlaðra íþróttamiöstööinni Laugardal Sími: 568 6301 Fax: 568 6315 Netfang: if@isisport.is www.isisport.is/sersamb/if Samstarfs- samningar Fyrir Ólympíumótið i Sydney 2000 gerði ÍF í fyrsta skipti samstarfs- samninga til fjögurra ára við 10 fyrir- tæki. Þetta samstarf var mjög ánægjulegt fyrir ÍF og vonandi einnig fyrir samstarfsaðilana. Árlega eru haldnir fundir með samstarfsaðilum þar sem starfsemin er kynnt og fyrir- spurnum svarað um einstaka þætti. Þannig fá fyrirtæki möguleika á að fylgjast með hvernig framlagi þeirra er variö en IF leggur megináherslu á að traust riki á milli aðila og aö sam- starfsaðilum sé sinnt sem hest. Flest- ir þessara aðila hafa staðfest áfram- haldandi samstarf við ÍF vegna Ólympíumótsins í Aþenu árið 2004. Undanfarna mánuði hefur verið í gangi hjá ÍF endurnýjun samninga og gerð nýrra samninga fyrir Ólympiu- mótið í Aþenu áriö 2000. Nú er fyrirtækjum gert kleift að velja styrktarupphæð m.t.t. þriggja mis- munandi möguleika. Styrktaraðilar velja upphæð sem skipa þeim í Gull- hóp, Silfurhóp eöa bronshóp. Tveir samstarfssamningar ÍF voru undirritaðir í síðustu viku en það eru samningar ÍF við Flugleiðir og Nike. Þessir samstarfsamningar hafa veru- lega þýðingu fyrir ÍF og eru grunnur að þeim undirbúningi sem nauðsyn- legur er fyrir áframhaldandi þátttöku afreksfólksins í verkefnum erlendis. Auk samstarfsamninga vegna ólymp- íumóta hafa verið gerðir samstarf- samningar m.a. vegna verkefna á vegum Special Olympics en ÍF er um- sjónaraðili Special Olympics á Is- landi. ErlaÝrfékk # Hvatningarbikar ÍF Erla Ýr Hansen frá Bocciadeild Völs- ungs fékk afhentan Hvatninga- bikar ÍF i hófi sem íþrótta- félagiö Völsungur á Húsavík hélt ný- lega. Skráning hjá Special Olympics Special Olympics alþjóðasamtökin hafa undanfarin ár unnið að því að skipuleggja skráningu á öllum þátt- takendum innan Special Olympics. Aðildarlönd samtakanna eru 150 og þvi gífurlegt verkefni að samræma slíka skráningu. Evrópulöndin hafa verið hvött til þess að vinna með samtökunum aö því að setja þetta verkefni af staö og ÍF mun leggja sitt af mörkum í samræmi við þær reglur sem gilda á íslandi varöandi slíka skráningu. Samtökin vinna að íþróttastarfi fyrir þroskaheft fólk um heim allan. Timothy Kennedy Shriver, forsvars- maður samtakanna, leggur meginá- herslu á að skráningar verði sam- ræmdar sem best þannig að ekki verði mögulegt að aðrir en þeir sem greinast samkvæmt staðli Special Olympics, taki þátt í verkefnum á vegum samtakanna. Sérstök yfirlýsing kom frá samtökun- um í kjölfar þess að ófatlaðir einstak- lingar kepptu með þroskaheftum á ólympíumótinu í Sydney. Send var samantekt til fjölmiöla þar sem gerð- ur var skýr greinarmunur á Special Olympics alþjóðasamtökunum og INAS- FMH, sem eru alþjóðaíþrótta- samtök þroskaheftra innan alþjóða- ólympíunefndar fatlaðra, IPC. Island er aðili að báðum þessum samtökum sem hefur gert ÍF kleift aö gefa öllum þroskaheftum, jafnt hinum almenna iðkanda sem afreksfólkinu, tækifæri á að taka þátt í spennandi verkefnum erlendis. IF hefur sent bréf til allra sinna aðildarfélaga þar sem óskað er samstarfs vegna þessa verkefnis. -AKV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.