Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Blaðsíða 14
32 MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001 Sport JOV NBA-DEILDIN Úrslit fimmtudag: Washlngton-Sacramento . 110-115 Hamilton 29, Whitney 24 (11 stoös.), Richmond 24, White 18 (14 frák.) - Christie 32, Divac 27, Stojakovic 22. Charlotte-Golden State .... 93-91 Brown 18, Mashburn 16 (12 frák.), Campbell 14, Davis 14 - Jamison 28 (10 frák.), Hughes 21, Blaylock 18. Portland-Utah ............84-90 Wallace 32 (11 frák.), Smith 16, Wells 14 - Malone 22, Marshall 22, Stockton 18, Manning 10. Chicago-LA Clippers ......80-93 Hioberg 22, Brand 17 (16 frák.), Benjamin 17 - Mclnnes 17, Odom 14 (10 frák.), Piatkowski 14, Miles 14. Dallas-Boston.............98-91 Nowitzki 23, Finley 19, Buckner 15, Bradley 14 - Pierce 23 (11 frák.), Walker 17, Potapenko 16, Blount 10. Úrslit föstudag: Toronto-Sacramento .... 118-119 Carter 38 (10 frák.), A. Davis 20 (12 frák.), Williams 18 (13 stoðs.), Murray 18 - Stojakovic 39 (12 frák.), Divac 25, Christie 20, PoUard 19 (17 frák.). Cleveland-Indiana ........90-92 Jackson 23, Weatherspoon 16 (9 frák.), Gatling 14, Coles 10 - MUler 25, J. O’Neal 15 (10 frák.), Rose 15, Best 15. New York-Phoenix...........84-88 Sprewell 26, Houston 21, Johnson 10 (9 frák.), Camby 9 (23 frák.) - Marion 19 (11 frák.), Kidd 16 (9 frák.), Tsakalidis 14, Robinson 13, Rogers 10. Detroit-Philadelphia ......78-99 Stackhouse 22, Atkins 12, Barros 10 - Iverson 43 (10 frák.), Mutombo 17 (13 frák.), Lynch 10. Minnesota-Golden State . . 122-83 Brandon 27 (16 stoös., 10 frák.), K. Garnett 23, Szczerbiak 14, Billups 12 - Hughes 18, Jamison 14, Foyle 12, Blount 10 (10 frák.), McPherson 10. Houston-Orlando ..........105-95 Taylor 34, Mobley 23, Francis 17 (11 frák., 8 stoðs.), Olajuwon 16 (12 frák.) - McGrady 32, Armstrong 23, MUler 14. Milwaukee-Vancouver .... 93-81 Allen 29, Cassell 18, Hunter 16, Thomas 10 - Bibby 28, Abdur-Rahim 22 (13 frák.), Strickland 12. San Antonio-Boston.......100-82 Anderson 20, Duncan 18 (10 frák.), Robinson 14 (10 frák.) - Pierce 24, Walker 23, Palacio 10, Carr 10. Seattle-Utah...............84-96 Payton 19, Patterson 17, Lewis 16, B. Barry 12 - Malone 33 (10 frák.), Marshall 20, Starks 12. LA Lakers-Atlanta.......113-106 O’Neal 30, Shaw 22, Penberthy 16, Rider 14, George 10 - Crawford 27, Terry 25, Wright 18, Glover 11. Úrslit laugardag: Washington-Toronto.......99-106 Hamilton 23, Laettner 18, Richmond 16, Alexander 13 - Carter 19, Clark 17 (5 varin skot), A. Davis 16, Oakley 12, WiUiams 12 (8 stoðs.). Charlotte-Philadelphia .... 86-85 Robinson 15, Davis 14 (10 stoðs.), Wesley 13, Mashburn 12, CampbeU 12 - Iverson 47, Lynch 9, Mutombo 9 (9 frák.), HiU 8 (12 frák.). Miami-New Jersey...........75-70 Grant 21 (9 frák.), Mason 17 (10 frák.), Jones 16 (9 frák.) - Newman 17, Williams 10 (11 frák.), Marbury 10 (9 stoðs.), Van Horn 9. Chicago-Vancouver .........90-75 Brand 22 (12 frák.), Artest 19, Hoiberg 14, Fizer 13, Miller 12 (12 frák.) - Strickland 15, Abdur-Rahim 14, Long 14, Dickerson 10, Massenburg 10. Dallas-San Antonio......104-107 Nash 29 (10 stoðs.), Finley 23, Nowitzki 16 (9 frák.), Eisley 14, Howard 12 - Duncan 31 (13 frák.), Anderson 24, Daniels 17, Robinson 16 (10 frák.). Denver-Atlanta ............85-82 McDyess 19 (15 frák.), Van Exel 18 (10 stoðs.), Lenard 11, Posey 10 - Terry 22, Crawford 11, Mohammed 11, Wright 10. LA Clippers-Portland . . . 123-120 Olowokandi 24 (9 frák.), Mclnnes 23 (10 stoðs.), Odom 22 (9 frák.), Piatkowski 15, MUes 12 - Wallace 35 (9 frák.), WeUs 23, Pippen 17 (11 stoðs.), Smith 16, Stoudamire 12. -ósk Um helgina fór fram bikarmót og þorramót í áhaldafimleikum karla og kvenna. Mótið var haldið í íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ. Bikarmótið er liðakeppni en þorra- mótið einstaklingskeppni. Einkunn einstaklings gat því bæði talið til stiga í einstaklingskeppninni og í liðakeppninni. Tvö lið mættu til leiks í karlaílokki, Ármann og Gerpla, en i kvennaflokki komu tvö lið frá Ármanni, auk liða frá Björk, Gerplu og Gróttu/KR. Að auki tók keppandi frá Stjömunni þátt í ein- staklingskeppninni. Keppt var eftir nýjum reglum Alþjóða fimleikasam- bandsins en þær eru endumýjaðar á fjögurra ára fresti eftir hverja Ólympíuleika. í karlaílokki urðu úrslit þau sömu og undanfarin ár; lið Gerplu vann sigur á Ármenningum, en að þessu sinni var sigurinn mjög afgerandi og aldrei í hættu. Fimm piltar skipa lið en íjórar hæstu einkunnirnar á hverju áhaldi giltu til stiga á mótinu. Gerplupiltar hlutu samtals 158.250 stig sem var rúmum 20 stigum meira en Ármenningar fengu en þeir hlutu 135.700 stig á mótinu. Lið Gerplu, sem að stórum hluta samanstendur af bræðrum, skipa þeir bræðurnir Dýri og Erlendur Kristjánssynir og Viktor og Róbert Kristmannssynir, auk Jóns Trausta Sæmundssonar. Þjálfarar þeirra eru Nikolay Vovk og Heimir Jón Gunnarsson. Dýri stigahæstur Dýri Kristjánsson, Gerplu, var stigahæstur allra á mótinu og varð því einnig þorrameistari um helgina. Hann hlaut 44,60 stig og var mjög sæll með þá frammistöðu sína. Dýri, sem stundar nám í Minnesota í Bandaríkjunum, kom heim um helg- ina til þess að taka þátt á bikarmót- inu með félögum sínum. "Það er mjög fínt úti og rosaleg tilbreyting að æfa allt í einu með tuttugu öðrum strákum á sama aldri og getustigi og ég, það finnst mér gefa mér mikið. Hér fyrir ofan eru bikarmeistarar Gerplu en liðiö skipa þeir bræðurnir Dýri og Erlendur Kristjánssynir og Viktor og Róbert Kristmannssynir, auk Jóns Trausta Sæmundssonar. Hér til vinstri eru bikarmeistarar Ármanns í kvennaflokki en liöiö skipa Ásdís Guömundsdóttir, Birta Benónýsdóttir, Hrefna Halldórsdóttir, Sif Pálsdóttir og Svava Björk Örlygsdóttir. DV-myndir PÖK Auk þess er náttúrlega æfingaaðstað- an alveg til fyrirmyndar og það hef- ur mikil áhrif,“ sagði Dýri Kristjáns- son en hann stefnir á að koma aftur heim og verja íslandsmeistaratitil sinn í mars. Félagi Dýra í Gerplu, Viktor Kristmannsson, varð annar á þorramótinu með 43,25 stig og þriðji varð Anton Heiðar Þórólfsson úr Ár- manni með 35,85 stig. í kvennaflokki snerist dæmið við frá því í karlaflokknum og Ármanns- stúlkur hrepptu gullið en Gerplu- stúlkur urðu í öðru sæti. Það var lið Ármanns 2 sem stóð sig best en eins og fyrr segir þá sendu Ármenningar tvö lið til keppni í kvennaflokki. Þær Ármannstúikur hlutu 89.375 stig og unnu, eins og Gerplupiltar, þónokk- uð öruggan sigur. í kvennaflokki skipa fimm stúlkur hvert lið, fjórar keppa á hverju áhaldi og þrjár efstu einkunnimar gilda til stiga. Lið Ár- manns 2 skipuðu þær Ásdís Guð- mundsdóttir, Birta Benónýsdóttir, Hrefna Halldórsdóttir, Sif Pálsdóttir og Svava Björk Örlygsdóttir. Þjálfari þeirra er Ásdís Pétursdóttir. Lið Gerplu varð í öðru sæti með 83.200 stig og lið Gróttu/KR nældi sér í bronsverðlaunin með 78.800 stig. Gamlar kempur með á ný í kvennaflokki var einstak- lingskeppninni skipt niður í þrjá flokka eftir aldri, 16 ára og eldri, 14-15 ára og 13 ára og yngri. í elsta aldursflokknum vann Inga Rós Gunnarsdóttur úr Gerplu en hún hlaut 29.700 stig fyrir æfingar sinar. Ármannsstúlkan Sif Pálsdóttir, ís- landsmeistari í fjölþraut, vann ald- ursflokkinn 14-15 ára með 30.575 stig, en það voru flest stig mótsins í kvennaflokki, og stalla hennar úr Ármanni, Svava Björg Örlygsdóttir, vann flokk 13 ára og yngri með 28.875 stig. Athygli vakti að margir keppendur sem hættir voru keppni í áhaldafimleikum fyrir nokkru stigu á stokk og tóku þátt á einstökum áhöldum og var gaman að sjá til þeirra. Það hefur verið talsvert um þetta í karlakeppninni hingað til en gaman er að sjá að stúlkurnar geta þetta líka. -AIÞ Bjormnn W - vann fyrsta leikinn á Akureyri Skautafélagið Björninn úr Reykjavík og Skautafélag Akur- eyrar léku fyrsta leik sinn í úr- slitum íslandsmótsins í íshokki á Akureyri á laugardaginn. Skautafélag Akureyrar bar sigur úr býtum í undankeppn- inni sem lauk 17. febrúar síðast- liðinn og á því tvo fyrstu heima- leikina. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki er þá orðið íslands- meistari. Fyrir leikinn var almennt talið að róðurinn yrði þungur fyrir leikmenn Bjarnarins en þeir blésu á alla spádóma og báru sigur úr býtum eftir mikla baráttu, 4-3. Leikurinn var í járnum allan tímann en færri mörk hafa ekki verið skoruð í leik þetta tímabil. Eftir fyrstu lotu var staðan 1-0 fyrir norðanmenn en Bjöminn Mörk/stoðsendingar SA: Clark McCormick 2/0, Anders Lindner 1/0', Ingvar Jónsson 0/1, Rúnar Rúnarsson 0/1, Leifur Finney 0/1. Bjöminn: Sergei Zak 2/1, Dmitry Zinoviev 2/1, Glenn Hammer 0/1, Jónas Magnússon 0/1 Bjarnarmenn fögnuöu vel óvæntum sigri sínum á SA á Akureyri. DV-mynd Bender hafnaði fljótt í upphafi annarrar lotu. SA-menn komust aftur yfir mínútu eftir jöfnunarmarkið en Björninn neitaði að gefast upp og skoraði tvö mörk áður en annarri lotu lauk og því staðan 2-3 Birninum í vil þegar þriðja lota hófst. SA jafnaði á 5. minútu síðasta leikhlutans en Bjöminn komst aftur yfir rúmri mínútu síðar og náði að halda út það sem eftir var leiks og uppskar þar með fyrsta sigur í meistaraflokki á Akureyri í sögu félagsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.