Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2001, Blaðsíða 4
22 MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 2001 Sport DV KA/Þór-ÍR 17-13 Valsstúlkur komu, sáu og sigruðu heimastúlkur í Víkingi í Nissan-deild kvenna á laugar- daginn, 23-21. Víkingsstúlkur byrjuðu vel í leiknum og héltu forskoti til að byrja með en þeg- ar fyrsti þriðjungur fyrri hálf- leiks var búinn þá náðu Vals- stúlkur góðum leikkafla og komust yfir og Víkingsstúlkur misstu flugið. Hafrún Kristjáns- dóttir lék virkilega vel í leikn- um, flskaði sjö vítaköst ásamt því að ná brottrekstrum á varn- armenn Vikinga. Stefán Arnarsson, þjálfari Víkings, tók þá leikhlé þegar gestirnir voru komnir með þriggja marka forskot, 5-8, breytti vörninni í 6:0 og setti Steinunni og Gerði Betu inn á. Við þetta breyttist leikur Vík- ingsstúlkna til muna og skor- uðu þær næstu 5 mörk og komust yfír en Valsstúlkur klór- uðu í bakkann undir lok hálf- leiksins og náðu að jafna. í seinni hálfleik byrjuðu heimastúlkur betur og náðu tveggja marka forskoti en þá sögðu Valsstúlkur hingað og ekki lengra og komust i 20-23 þegar mínúta var eftir. Víkings- stúlkur náðu að skora siðasta mark leiksins og er þetta fjórði ósigur liðsins í röð. „Við stóðum okkur ekki og við eigum tvo leiki eftir í deildinni og verðum að vinna þá ef við ætlum að lenda í fimmta sæti en við stefn- um að því. Við mætum Gróttu/KR næst. Það verður leikur upp á líf og dauða og við verðum að vinna þann leik,“ sagði Guðbjörg Guðmannsdóttir leikmaður Víkings. Ekki er annað hægt að segja en að dómarnir sem voru 1-0, 1-2, 6-6, 11-7, 11-9, 13-11, (13-12), 13-13, 14-13, 20-18, 22-19, 22-22, 25-23, (25-25), 27-26, (27-27), 29-27, 29-29, 33-29. FH: Mörk/víti (skot/viti): Hafdís Hinriks- dóttir 11/6 (16/6), Björk Ægisdóttir 9 (14), Judith Esztergal 4 (9), Sigrún Gils- dóttir 3 (3), Dagný Skúladóttir 3 (6), Dröfn Sæmundsdóttir 2 (6), Hildur Páls- dóttir 1 (2), Ragnhildur Guðmundsd. (4). Mörk úr hraóaupphlaupum: 4 (Dagný 2, Hafdís, Judith). Vitanýting: Skorað úr 6 af 6. Varin skot/viti (skot á sig): Jolanta Slapikiene 13/1 (34/4,38%), Kristín Mar- ía Guðjónsdóttir 9 (17/4, 53%) Brottvisanir: 4 mínútur. Stiarnan: Mörk/viti (skot/víti): Inga Lára Þóris- dóttir 9/6 (13/6), Halla María Helgadótt- ir 5/1 (12/2), Guðný Gunnsteinsdóttir 4 (4), Margrét Vilhjálmsdóttir 4 (6), Hrund Scheving Sigurðardóttir 3 (4), Svetlana Theetchetcha 3 (8), Jóna Margrét Ragn- arsdóttir 1 (4), Hrund Grétarsdóttir (1). Mörk úr hraöaupphlaupum: 4 (Halla María, Svetlana, Guðný, Hrund S.). Vitanýting: Skorað úr 7 af 8. Varin skot/víti (skot á sig): Sóley Hall- dórsdóttir 8 (30/4, 27%), Lijana Sadzon 13 (24/2, 54%). Brottvisanir: 8 mínútur. 2-2, 4-4, 6-6, (9-6), 13-7, 14-9, 15-10, 17-11, 17-13. KA/Þór: Mörk/víti (skot/viti): Inga Dís Sigurð- ardóttir 6/5 (8/5), Ásdís Sigurðardóttir 5 (8), Martha Hermannsdóttir 3 (3), Elsa Birgisdóttir 3 (8), Þóra Hjaltadóttir (1), Elísabet Einarsdóttir (1). Mörk úr hraöaupphlaupum: 0. Vitanýting: Skorað úr 5 af 5. Varin skot/viti (skot á sig): Sigur- björg Hjartardóttir 4 (10, 40%), Rósa María Sigbjömsdóttir 8/1 (15/4, 53%). Brottvisanir: 4 mínútur. ÍBi Mörk/víti (skot/viti): Anna M. Sigurð- ardóttir 5 (6), Heiða Guðmundsdóttir 4 (11/1), Inga Jóna Ingimundardóttir 3/3 (4/3), Bára Jóhannesdóttir 1 (1), tris Dögg Harðardóttir (3), Þorbjörg Ey- steinsdóttir (2), Guðrún Harðardóttir (1). Mörk úr hraöaupphlaupum: 0. Vitanýting: Skorað úr 3 af 4. Varin skot/viti (skot á sig): Aldís Bjarnadóttir 8 (24/4, 33%), Helga D. Magnúsdóttir 1(2/1, 50%). Brottvisanir: 6 mínútur. Maöur leiksins: Björk Ægisdóttir, FH Maður leiksins: Rósa María Sigurbjörnsdóttir, KA/Þór. Maður leiksins: Kristjánsdóttir, Hiti hægra megin - hjá FH sem vann Stjörnuna eftir tvær framlengingar FH vann sinn þriðja leik í röð í Nissandeild kvenna með því að leggja Stjörnuna, 33-29, eftir tvíframlengdan leik í Kaplakrika á föstudag. Hægri vængur FH-liðsins var gulls ígildi í leiknum þvi þær Björk Ægisdóttir og Haf- dís Hinriksdóttir skiluðu 20 mörkum og 11 stoðsendingum saman, þar á meðal sína hvor inn á línu á Sigrúnu Gilsdóttur í lok leiksins. Sigrún er 18 ára línumaður og skoraði hún þrjú mörk og fiskaði tvö víti á raf- mögnuðum lokamínútum. Björk byrjaði leikinn af krafti í vöm og sókn og skoraöi flmm mörk fyrir hlé og nýtti 9 af 14 skotum sínum í leiknum sem er frábær nýting hjá skyttu. Hafids nýtti öll sex víti sín af öryggi og þær tvær sem hafa verið að keppa um hægri skyttu-stöðuna í vetur spiluðu nú hlið við hlið með frábærum árangri. En fleiri komu að þessum sigri. Judith Esztergal spilaði af mikilli skynsemi og var sem klettur í vörninni þrátt fyrir að leika síðustu 17 mínútur venjulegs leiktíma og tvær framlengingar með tvær brott- vísanir á bakinu. Þá átti Krist- ín María Guðjónsdóttir góða innkomu í markið og Dagný Skúladóttir truflaði mikið Stjörnusóknina í indíána-hlut- verki sínu í 5:l-vörn FH og stal meðal annars fimm boltum af Stjörnustúlkum. FH byrjaði vel og hafði frumkvæðið allan leikinn. Þrátt fyrir að leikurinn færi í tvær framlengingar var Stjarn- an yfir síðast í leiknum í stöð- unni 4-5 þegar 11 mínútur voru búnar af leikmnn. FH var með leikinn í sínum höndum en með smáhjálp frá áhuga- lausum dómurum leiksins náði Stjarnan að tryggja sér tvær framlengingar, þökk sé reynslunni. Stjörnuliðið var þannig bor- ið uppi af þremur reynslumikl- um leikmönnum sem fóru með þær langt en þó ekki nóg. Inga Lára Þórisdóttir skoraði niu mörk, átti fimm stoðsendingar og fiskaði tvö víti. Inga nýtti öll sex vítin sín í leiknum. Fyrrum félagi Ingu í Víkingi, Halla María Helgadóttir, átti líka góðan leik, varði meðal annars sex skot í vöminni og gaf sex stoðsendingar, auk þess að skora fimm mörk. Lij- ana Sadzon varði líka vel eftir að hún kom í markið. Best i Stjömuliðinu var þó Guðný Gunnsteinsdóttir sem nýtti öll fjögur skotin sín á lín- unni, auk þess að stöðva hverja FH-sókn frá vinstri vængnum. Stjörnuvörnina skorti tilfmnanlega hennar framlög hinum megin en þar blómstmðu þær Hafis og Björk. -ÓÓJ dæmdir i seinni hálfleik hafi fallið gestunum af og til í hag. Guðmundur Erlingsson og Tómas Sigurdórsson hafa ávallt verið umdeildir dómarar og mun það ekki breytast eftir þennan leik. Seinni hálfleik er best að kalla uppstand af þeirra hálfu þar sem ekkert samræmi var í dómum og á köflum virt- ust þeir ekkert vita hvað þeir voru að gera á vellinum. T.d. var annað liðið að hefja sókn þegar Guðmundur ákvað, eins og honum er einum lagið, að dæma allt í einu vítakast upp úr þurru. Það er ótrúlegt að af 14 dómarapörum sem dæma hand- knattleik sé ekki hægt að fá aðra dómara en þessa á kvennaleiki. Það er ekkert ann- að en hrein móðgun við kvenna- handknattleik að þessir menn dæmi leiki hjá þeim. -BB Víkingurinn Eva Halldórsdóttir sleppur hér í gegn fram hjá Önnu M. Guömundsdóttur Valskonu í leik liöanna í Víkinni á laugardag. DV-mynd Pjetur Lítil stemning Leikur botnliðanna í 1. deild kvenna fór fram í KA-heimilinu á laugardaginn. ÍR kom án stiga til Akureyrar og voru stúlkurnar staðráðnar í að ná í sín fyrstu stig. Akureyrarstúlkur ætluðu að vinna sinn fyrsta heimaleik í vetur með því að leggja ÍR að velli. KA/Þór hefur oft spilað vel í leikjunum en ekki náð að klára leikina heldur tapað þeim á síðustu mínútum. Leikurinn var frekar leiðinlegur. Lítil stemn- ing var i báðum liðum sem bitnaði hreinlega á gæðum leiksins. Ásdís Sigurðardóttir stóð sig vel í vöminni en mætti þó treysta liðsstúlkum sínum meira í leik sínum. Inga Dís Sigurðar- dóttir var öryggið uppmálað á vítalínunni og klúðraði ekki einu vítakasti. Liö ÍR sá aldrei til sólar. Stúlkumar héldu jöfnu, 6-6, eða fram að 20. mínútu leiksins. Ak- ureyrarstúlkur komust þá í 9-6 og var það stað- an í hálfleik. Seinni hálfleikur einkenndist af varnarleik og einnig voru markmenn beggja liða að verja vel. Sóknarmennimir voru ekki að gera neina góða hluti en Inga Dís skoraði sex af átta mörkum KA/Þórs í seinni hálfleik, þar af vom fimm mörk úr vítum. Dómarana skorti kjark þegar þeir ráku ekki Önnu Sigurðardóttur af leikvelli fyrir gróft brot á Ásdísi Sigurðardóttur en Anna átti hins vegar góðan leik fyrir ÍR. Aldís Bjarnadóttir, í marki ÍR, átti ágætan seinni hálfleik ásamt kollega sin- um í liði KA/Þór en Rósa María kom mjög sterk inn í leikinn í seinni hálfleik. Klukkan í KA- heimilinu var biluð og var því gripið til tennis- spjalda til að sýna markaskorun og tímavörður öskraöi annað slagið inn á völlinn hversu mikið var eftir. -JJ Hafrún Val. Dómarar (1-10): Ingi Már Gunnars- son og Þorsteinn Guðnason, (5). Gœöi leiks (1-10): 3. Áhorfendur: 50. Víkingur-Valur 21-23 I- O, 2-1, 3-2, 4-5, 6-8, 7-8, 10-8, 11-9, II- 11, (12-12) 14-13, 15-14, 16-16, 16-18, 17-20, 18-22, 20-23, 21-23. Vikinsur: Mörk/viti (skot/viti): Kristín Guð- mundsdóttir 9/4 (14/5), Guðbjörg Guð- mannsdóttir 4 (5), Gerður Beta Jóhann- esdóttir 3 (5), Guðrún Hólmgeirsdóttir 2 (4), Margrét Egilsdóttir 1 (1), Steinunn Bjamason 1 (2), Helga Guðmundsdóttir 1(2). Mörk úr hraöaupphlaupum: 5 (Stein- unn, Gerður, Kristín, Guðrún, Guð- björg). Vitanýting: Skorað úr 4 af 5. Varin skot/viti (skot á sig): Helga Torfadóttir 12 (35/9, 34%, eitt víti í slá). Brottvisanir: 10 mínútur. Valur: Mörk/viti (skot/víti): Eivör Pála Blön- dal 7/5 (9/6), Kolbrún Franklín 6/4 (9/4), Ámý Björg ísberg 5 (12), Arna Grímsdóttir 2 (2), Hafrún Kristjánsdótt- ir 2 (4), Anna M. Guðmundsdóttir 1 (1). Mörk úr hraöaupphlaupum: 0. Vitanýting: Skorað úr 9 af 10. Varin skot/viti (skot á sig): Berglind Hansdóttir 11/1 (32/4, 34%). Brottvisanir: 10 mínútur. Dómarar (1-10): Guðmundur Erlingsson og Tómas Sigurdórsson (1). Gœöi leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 100. Dómarar (1-10): Anton Pálsson og Hlynur Leifsson (4). Gœöi leiks (1-10): 7. Áhorfendur: 100. FH-Stjarnan 33-29 (25-25)(27-27)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.