Helgarblaðið - 30.04.1992, Page 3
Helgar ó blaðið
Erótískt safn í Köben
Fyrsta erótíska safnið í
Danmörku verður opnað
sumarið 1993. Það verður
staðsett að Vesterbro-götu
31 í Kaupmamiahöfn, við
hliðina á Saga-kvikmynda-
húsinu.
Stofninn í safninu verður mjög
stórt einkasafn af erótískum mynd-
um, blöðum og hlutum í eigu ljós-
myndarans og rithöfundarins Ole
Ege, en alls mun hann eiga um 100
þúsund erótiska safhmuni.
Ole Ege var einn af frumkvöðl-
um klámbylgjunnar í Danmörku á
fyrri hluta sjöunda áratugarins.
Strax í lok sjötta áratugarins hóf
hann innflutning á enskum nektar-
myndunt og seldi þær í seríum
gegn póstkröfu. Hann leikstýrði
einnig nokkrum erótískum stutt-
myndum og gleðiklámmyndinni
Hóruhúsinu, sem var í fullri lengd.
Sömu aðilar og stóðu að erótísku
kaupstefnunni í Forum á síðasta ári
Ijánnagna fyrirtækið. Fyrst var
ætlunin að hafa safnið í gömlu
pakkhúsi í Christianshavn en
samningar náðust ekki. Húsnæðið
við Vesterbro-götu er 1250 fer-
metrar að stærð, aðeins nokkurra
mínútna gang frá Hovedban-
egárden.
Ætlunin er að setja upp fasta
sýningu byggða á safni Eges, en
auk þess verða mismunandi sýn-
ingar í skemmri tíma, sýningar á
erótískri myndlist, teiknimyndum,
djörfum póstkortum, erótískum
bókmenntum o.fl.
Aðstandendur safnsins vonast til
þess að ferðamenn íjölmenni á
safnið. Þegar eru starfrækt tvö er-
ótísk söfn í Amsterdam en þeir í
Kaupmannahöfn lofa að safnið þar
verði í allt öðrum gæðaflokki.
Ahersla verður lögð á þemasýn-
ingar og erótíkin sett í menningar-
sögulegt sainhengi, segja aðstand-
endur safnsins.
Frá erótísku kaupmessunni í Forum þar sem hugmyndin a& er-
ótísku safni fæddist.
Iðjufélagar fjölmennum
Félags
fundur
f ms
** \ý , '■'■/')
Iðja, félag verksmiðjufólks boðar alla
félagsmenn sína til félagsfundar I Sóknar-
salnum, Skipholti 50A, mánudaginn 4.
Dagskrá:
1. Miðlunartillaga ríkissáttasemjara kynnt.
2. Önnur mál.
Kaffiveitingar
Stjórn Iðju.
Allir Iðjufélagar eru hvattir til að mæta.
Iðjufélagar fjölmennum
1. maí kaffi
Alþýðubandalagið íReykjavík verður
með opið hús að loknum útifundi á
Lœkjartorgi þann 1. maí íRisinu að
Hverfisgötu 105, milli kl. 14:30 og
17:00
Kaffiveitingar-ávörp-upplestur-söngur
Sigríður Kristinsdóttir formaður SFR flytur ávarp
og Bjartmar Guðlaugsson kemur með gítarinn.
Allir velkomnir.
Stjórn ABR.
Atkvæðagreiðsla
um miðlunartillögu
ríkissáttasemjara
Iðja, félag verksmiðjufólks efnir til allsherjaratkvæðagreiðslu
um miðlunartillögu ríkissáttasemjara á skrifstofu félagsins,
Skólavörðustíg 16, sem hér segir:
Þriðjudaginn 5. maí kl. 9.00 - 18.00.
Miðvikudaginn 6. maí kl. 9.00 - 22.00.
Þá verður mögulegt að greiða atkvæði um miðlunartillöguna
að loknum félagsfundinum 4. maí.
Allir þeir sem eru starfandi á samningssvæði félagsins hafa
rétt á að greiða atkvæði um sáttatillöguna. Þeir sem ætla að
taka þátt í atkvæðagreiðslunni skulu framvísa þersónuskilríkj-
um.
Þeir sem nýlega hafa hafið störf á félagssvæðinu eru beðnir
um að hafa með sér síðasta launaseðil til staðfestingar á aðild
sinni, þar sem félagið kann að skorta upplýsingar um þá.
Iðjufélagar. Takið þátt í
allsherjaratkvæðagreiðslunni
Berlínar-
múrinn
og Lenín
í sænskum
garði
Ýmsir safnarar liugsuðu sér
gott til glóðarinnar þegar
kommúnisminn hrundi í aust-
antjaldslöndunum. Brot úr
Berlínamúrnum voru rifin út
og orður og cinkcnnisklæði
hermanna austursins seld á
uppsprengdu verði.
Þá höfðu margir vestrænir
menn áhuga á styttum af Lenín,
Stalín og öðrum hetjum bylting-
arinnar. en ætla mætti að nóg
framboð væri af slíkum styttum,
því íbúar Austur- Evrópu vildu
ólmir losna við þær. Þeir voru
þó fljótir að tileinka sér hinn
kapítalíska hugsunarhátt þegar
þeir urðu varir við eftirspumina.
Við stálverið í pólska bænum
Nowa Huta stóð reisuleg Lenín-
stytta, sem vó fimm tonn.
Sænskur maður hafði áhuga á að
eignast styttuna en heimamenn
létu hana ekki fyrr en ein miljón
íslenskra króna var boðin.
Styttan hefúr nú verið flutt til
Svíþjóðar og prýðir einkagarð
kaupandans, en auk þess hefur
hann orðið sér úti um brot úr
Berlinarmúmuin og hlaðið úr
þeim sinn eigin múr í garðinum.
Þessi Svíi hyggst koma upp
safni yfir endalok kommúnism-
ans og kveðst vonast til að að-
sókn að garðinum verði slík að
fjárfestingin borgi sig upp á
skömmum tíma.
SMöm
Skoda Favorit er glæsilegasti og vandað-
asti bíll sem Skoda-verksmiðjurnar hafa
framleitt til þessa. Nú eiga Þjóðverjar
hlut í verksmiðjunum enda ber bíllinn
þess greinileg merki; Skoda hefur öðlast
mun evrópskara yfirbragð og eiginleika
en áður. Þrátt fyrir það færðu nýjan
Skoda Favorit á sama verði og gamall,
notaður bíll fæst á, eða frá aðeins
498.500 krónum. Það eru góð og
skynsamleg kaup í nýjum og glæsilegum
Skoda Favorit. Ef þú ert í bílahug-
leiðingum skaltu skoða Skoda Favorit,
- áöur en þú gerir nokkuð annað.
JÖFUR
Fimmtudagurinn 30. april
NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600