Dagblaðið - 27.06.1977, Síða 6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. JÚNÍ 197f
6
r
v
Ribbaldar ógna fríðnum —
löggæzlan hefst lítt að
— kærur hrannast upp en ekkert er dæmt
Ljósmyndir:
RagnarTh.
Þarf bókstaflega að drepa
inann til aö eitthvaö gerist í
löggæzlumálunum? Þannig
hefur veriö spurt á Seyðisfirði
núna að undanförnu. Dagblaðs-
menn skruppu austur á Seyðis-
fjörð og höfðu tal af mörgum
málsmetandi mönnum þar um
löggæzlumálin. Virðist engin
launung á því að menn telja að
afskiptaleysi og aðgerðaleysi
löggæzlunnar keyri um þver-
bak.
í gamla sýslumannshúsinu
hefur bæjarstjóri aðsetur á efri
hæð. Þangað héldum við og
hittum að máli Jónas
Hallgrímsson bæjarstjóra.
Hann er Siglfirðingur, að-
fluttur til Seyðisfjarðar frá
Reykjavík fyrir nokkrum árum.
„Til mín koma menn iðulega
með ýmis vandamál sín,“ sagði
bæjarstjórinn okkur. Eitt þess-
ara vandamála kvað hann vera
áberandi skort á löggæzlu á
staðnum
Til ýmissa ráða hefur verið
gripið, en núna rétt fyrir þjóð-
hátíðina sauð upp úr i sam-
skiptum hins almenna borgara
og fulltrúa laga og réttar. Þá
ætlaðist lögreglan til að bæjar-
sjóður greiddi tvöfalt gjald
f.vrir löggæzlu utan dyra
Herðubreiðar miðað við venju-
legan taxta. Ráðuneyti dóms-
mála kvað svo upp úr með það
að ríkissjóður skyldi borga
slíka þjónustu á sjálfan þjóð-
hátíðardag íslendinga.
Talsvert blaðaskrif hafa
orðið um það ástand sem skap-
azt hefur vegna fólks á Seyðis-
firði, fámenns hóps, sem virðist
„stikkfrí" og fær að haga sér að
vild án þess að lög nái yfir það.
Bæjarstjórinn tjáði blaða-
manni Dagblaðsins að reynt
hefði verið að ræða vandamálið
við sýslumann, Erlend
Björnsson, en án árangurs. Heil
sendinefnd tók sig síðan upp
síðastliðið haust og gekk á fund
dómsmálaráðherra, Ölafs
Jóhannessonar. Ráðherra
skrifaði niður umkvörtunarefni
ýmis, hlustaði og sýndi
skilning. Fulltrúi ráðherra kom
síðan austur og k.vnnti sér
málin. En ekkert hefur þó gerzt
til hins betra. Enn virðast ör-
fáir ölvaðir ribbaldar, oft dag-
farsprúðir menn þegar vínið er
ekki með í spilinu, fá að ögra
friðnum í þessum fallega
fiskibæ. Kærur hrannast upp
hjá sýslumanninum en ekkert
virðist aðhafzt.
Svo langt hefur þetta gengið
ERLENDUR BJÖRNSSON,— ástandið eðlilegt.
Vegir heflaðir eins
fljðtt og unnt er
_Vegir viða um land voru orðnir
mjög slæmir vegna þurrka, auk
þess sem yfirvinnubannið dró
mjög úr endurbótum vega-
gerðarinnar. Eftir að yfirvinnu-
banni lauk og tók að rigna hefur
vegagerðin hafizt handa af full-
um krafti. Hér í nágrenni höfuð-
borgarinnar eru vegir að komast í
þokkalegt ástand, samkvæmt upp-
lýsingum vegaeftirlitsins.
Hvalfjarðarvegur var heflaður
fyrir helgi en spilltist nokkuð
vegna rigningarinnar en verður
heflaður aftur. Þrengslavegur var
heflaður í gær. Búið er að hefla
Uxahr.vggi en vegurinn er nokkuð
gljúpur og því ekki heppilegur
fólksbílum. Verið er að lagfæra
Krísuvíkurveg og unnið að heflun
Nesvegar fyrir Reykjanes.
Hafnarvegur var einnig heflaður
Nýkomið
Höfum fengið norsk
til
inni- eða iítinotkunar. í
Þetta er sérstaklega
meðhöndlaðujy
rauðviður
sem þolir
vætu — og
geturþví
staðið iíti
yfirsumarið
A A A A
Húsgagnadeild
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 28601
iiBRaMnwauaaifHUiiiikii,
í tilefni fertugsafmælis Máls og
menningar hefur stjórn
félagsins ákveðið að efna til
verðlaunasamkeppni um skáld-
sögur. Ein verðlaun verða veitt
f.vrir beztu skáldsöguna að mati
dómnefndar og nema þau 500
þúsund krónum. Skilafrestur í
samkeppninni er til 15. mai 1978
og verður betur greint frá sam-
keppninni og þátttökuskilyrðun-
uin í næsta hefti Tímarits Máls og
menningar, seni verður nokkurs
konar afmælistímarit og von er á í
lok júlí.
Bókmenntafélagið Mál og
menning var stofnað 17. júní 1937
og stóðu að því Félag byltingar-
sinnaðra rithöfunda og Bókaút-
gáfan Heimskringla. Tímarit Máls
og menningar hefur komið úr
samfle.vtt frá 1939 fjórum sinnum
á ári, og jafnan þótt að þvi mikill
menningarauki. Bókaverzlun
opnaði Mál og menning ário
1961 í húsi félagsins að Laugavegi
18 og er sú bókaverzlun sennilega
stærsta bókabúð landsins.
1 þessi fjörutíu ár sem Mál og
menning á að baki hafa komið út
á veguin útgáfunnar um 500
bækur auk Timaritsins og einnar
hljómplötu. sem dótturíyrirtæki
Máls og mtenningar, btrengleikar,
gáfu út á sfðasta ári.
-BH.
rfl