Dagblaðið - 15.10.1981, Side 3

Dagblaðið - 15.10.1981, Side 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1981. 3 Myndlist: Athugasemd við grein Gunnars Kvaran um samsýningu F.Í.M. —„conceptlist” eðurei? Guðmundur Bogason skrifar: í listgagnrýni um samsýningu FÍM (DB 9.10. sl.) talar G.K. um skúlp- túrverk ungra listamanna, Harðar og Hauks og kallar þau andstæð eðli „conceptlistar” og byggð á ruglings- legum og óskýrum hug- myndafræðilegum grundvelli. Ég sem listaðdáandi og sem sá verk Hauks og Harðar á Kjarvalsstöðum, finn mig knúinn til að gera athuga- semd við þessa ósanngjörnu gagnrýni á verk listamannanna. G.K. kallar verk Harðar og Hauks „conceptverk” sem séu andstætt eðli „conceptlistar”. Hvernig er hægt að flokka listaverk undir lista- stefnu þegar verkið er talið andstætt eðli stefnunnar? Að þessu ógleymdu tel ég, með mína innsýn í lista- heiminn, að hægt sé að finna punkta í verkum Harðar og Hauks sem skylt eiga við „conceptlist”. G.K. talar um hreyfigildi forma hjá einni conceptlistakonunni á sýningunni. í verkum Harðar og Hauks finnst mér formin (þ.e. krumpur, stólpar og fl.) i verkunum hafa sama hlutverk og ritmál og land- fræðileg form hafa hjá conceptlista- konunni, formin vinna saman að því að mynda ákveðið stafróf eða sögu sem er gegnumgangandi í verkum Harðar og Hauks. Verk þeirra á sýningunni heita: „Yesterday I saw the girl playing with stones,” „She’s been lying there listening.” og ,,He’s been standing there in-between.” í verkinu „Yesterday I saw the Eru verk Hauks og Harðar „concept”-list, „metaphysical”-list eða eitthvað allt annað? DB-mynd: Einar Ólason. girl playing with stones” finnst mér koma fram söguleg formtenging milli stólpa með litum í, steins sem liggur á rist, hólrúm undir ristinni fullt af stólpum (according to the law of change) svo ekki sé minnzt á sam- skipd verunnar (The girl) við stólpana þar sem veran leggur stein yfir ristina til að aðgreina ólík mynstur í verkinu. Ég sé mér ekki fært að tala um hin verkin, það yrði of langt mál. Mér finnst koma glöggt fram í verkum Harðar og Hauks hvernig hægt er að spila saman formum, staðsetningu og hugsun til að skapa heilsteypt verk. Að mínu mati eiga verk Harðar og Hauks mun meira skylt við hug- myndafræði og formfræði „Metaphysical” listar og er hægt að flnna formfræðilega samsvörun í myndverkum „Metaphysicalistanna” de Chirico og Carra og skúlptúrverkum Harðar og Hauks. Að ógleymdri sterkri samsvörun við þá formfræði sem kemur fram i verkum „meistara Rohdini”. Hugmyndafræði „Metaphysicall- isma” erístuttu máli: „List sem stendur algerlega utan við mannlegan mælikvarða og nálgast það meira að vera draumur en veruleiki, en samt er það veruleikinn”. „Metaphysicalistar” tala um ólík áhrif tilfinninga í draumi og veruleika. Þessi stefna, eins og G.K. kannski veit, hafði afgerandi áhrif á stefnu „surrealisma” (óraunsætt innsæi) í heiminum. Bréf mitt verður ekki lengra að þessu sinni, en ég vonast til að G.K. og aðrir listgagnrýnendur virði meira verk listamanna sem eru að marka séf leið í listaheiminum. SVflVAR GESTS FÆR HÓLOGÞAKKIR — „kann að meta íslenzka listamenn” Jóhann Þórólfsson hringdi: Mig langar til þess að koma þakklæd á framfæri til Svavars Gests, sem mér finnst vera einhver sá bezti skemmtikraftur, er ég hef hlustað á. Sérstaklega hef ég haft gaman af miðvikudagsþáttunum hans. Þeir eru hver öðrum betri, að mínu mati. Svavar kann að meta íslenzka listamenn og á miklar þakkir skildar fyrir það. 'Svavar Gests fær hlýjar kveöjur frá aðdáanda, sem er sérstaklega hrifinn af miðvikudagsþáttunum hans. GOLA sportskór Stærðir 31-34 Stæröir 39-47 Verðkr. 145,10 RUCANOR Stærðir 33-47 Verðkr. 112,00 PÓSTSENDUM Símí 13508. Laugavegi 13. AIWA er á réttu línunni ★ AIWA Mini hljómtækin með silfurtœra hljóminn. ★ AIWA Mini hljómtækin er hægt að fá bœðifyrir 220 volt og 12 volt. ★ AIWA Mini hljómtækin er hljómur framtíðarinnar. Skoðið í gluggana Opið á iaugardögum Afít tfí hljómflutnings fyrir: HEiMiUO - BÍLiNN OG DiSKÓTEKiÐ Spurning dagsins Kaupirðu einhver dagblöð og þó hvaða? Guðmundur GUs Elnarsson bóndl: Já ég kaupi Timann. Hann segir mér allt. Ég sé siðdegisblöðin stundum en ekki reglulega. Valdis Jónsdóttir afgreiðslumaður: Ég kaupi Morgunblaðið og sé öll blöð önnur að meira eða minna leyti. r./ Ámundi Ámundason sölumaður: Ég kaupi bæði síðdegisblöðin, Dagblaðið og Vísi, og sé öll önnur blöð reglulega. Svava Árnadóttir, sjálfstæður atvinnu- rekandi: Ég kaupi Dagblaðið og Morgunblaðið og sé Vísi stundum. Ása Pétursdóttir húsmóðir: Dagblaðið og Moggann og sé Vísi stundum. ARMULA 38 'Seirttúlct tnegin- 105 REYKJAVIK SIMAR: 31133 83177 POSTHOLF1366 'ír U.i Anton Axelsson flugstjóri: Moggann og Visi og kaupi Dagblaðið oftast nær.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.