Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 15.10.1981, Qupperneq 13

Dagblaðið - 15.10.1981, Qupperneq 13
Ben. Ax hefur ekki að undanförnu getað þverfótað fyrir byssuglöðum mönnum sem þykjast ætla að veiða gæsir. Hér eru félagar í Skotfélagi Reykjavfkur á móti. UB-mynd. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15.0KTÓBER 1981. Gamla kerfið Ég get sagt þér það, ef maður má minnast á margfræga sjónvarpsaug- lýsingu, að ég sá ekki neitt ósiðlegt við hana fyrr en fjöldi manns var búinn að benda mér á það. Hún höfðaði sem sagt aðeins til mín fyrir ofan mitti fram að því. Sem dæmi um það, hvað mér fannst auglýsingin saklaus og góð get ég sagt þér, að ég var komin á fremsta hlunn með að benda konunni minni á að fara eins að og sjónvarpið, ef hana vantaði aura fyrir pelsi eða samkvæmiskjól, eða ef hana vantaði smjörstykki eða súpukjöt. Við erum nefnilega enn með gamla kerfið, ég afla teknanna, en konan mín eyðir þeim. En svona erum við nú saklausir, sveitamennirnir, og til frekara sann- indamerkis get ég nefnt þér annað dæmi. Fyrir um það bil tveimur áruin var ég á námskeiði í Reykjavík og lærði þar vísu sem ég skildi ekki og fannst lítið til koma, en eftir að ég fór að glápa á sjónvarpið mér til óbóta cg þá sérstaklega biómyndir sem eru ekki við hæfi barna, lukust upp fyrir mér leyndardómar vísunnar. Á þessu námskeiði var talað um samvinnu og að hún yrði að vera rétt til að hún bæri tilætlaðan árangur og helst alveg lóðrétt. Harður er kjarni vors kennarablóös, ef kraftana stillum til samans. Sé samvinnan lóðrétt hún leiðir til góðs, en sú lárétta er meira til gamans. Blessað rafmagnsleysið Þegar þessi tími er kominn er allra veðra von hér norðanlands og núna, þegar ég lít út um rúðuna sé ég að það er komin iðulaus stórhríð. Það væri svo sem hægt að þola slikt veður ef því fylgdi ekki yfirleitt ófærð og raf- magnsleysi. Hér verðum við ekki fyrir tíu mínótna rafmagnsleysi eins og Reykvíkingar, heldur stendur það oft dögum saman. En þrátt fyrir ófærð og rafmagns- leysi er dálítið um félagslíf í sveitum og á hverri einustu skemmtun er eitt af atriðunum spurningaþáttur. í einum slíkum var ágætur maður spurður gömlu og sígildu spurningar- innar um það, hvar Adam hafi verið þegar Eva slökkti Ijósið. Ekki vissi maðurinn svar við því. Þegar búið var að segja honum svarið varð honum að orði. — Ja, mikill er and- skotinn, og ég sem vissi ekki einu sinni að þau hefðu haft rafmagn. — Að svo mæltu slæ ég botn í þetta að sinni, með þeirri ósk, að allir landsmenn komi til með að búa við rafmagnsleysisskort i vetur. Ben. Ax. ^ „í staö þess aö taka það rólega og leyfa gæsunum að koma sér vel fyrir í túninu, stökk þessi upprennandi gæsaskytta upp á skurðbarminn, miðaði í hvelli á gæsirnar og skaut bestu mjólkurkúna á bænum, sem átti land að skurðinum.” Kjallarinn Maríanna Friðjónsdóttir vinnu af hendi, sem gerir myndina eða þáttinn að því, sem áhorfandinn síðan heyrir og sér. Þeir sem leggja sitt af mörkum við gerð einnar bíómyndar eru margir, og þetta fólk fær kaupið sitt greitt frá þeim, sem sjá viðkomandi mynd. Og þá erum við farin að nálgast hugtakið „höfundar- rétt”. Höfundarréttur Höfundarréttur er á kvikmyndum, sjónvarpsmyndum, fréttafilmum, heimildarmyndum, ljósmyndum og yfirleitt flestu þvi, er sýnt er í sjón- varpi og í kvikmyndahúsum. Höfundarréttur er einnig á því efni, sem sýnt er í vídeó-kerfum út um borg og bí. En þar er þessi höfundar- réttur ekki virtur. Neytandinn innbyrðir starf listamannsins, án þess að hann fái nokkuð fyrir sinn snúð. Ef hinn frjálsi maður þreytist á glápinu og tekur sér bók i hönd, eftir islenskan eða erlendan rithöfund, þá hefur hann greitt með kaupverði bókarinnar skerf listamannsins. Ríkisútvarpið greiðir árlega tals- verðar fjárhæðir í ýmsa sjóði, meðal annars hljómlistarmanna og rithöfunda. í kaupverði þeirra bíómynda og skemmtiþátta, sem Ríkisútvarpið kaupir og sýnir, eru einnig laun höfunda. Þær myndir, sem verið er að sýna i vídeó-kerfunum, eru oft á tíðum hins vegar hreialega stolnar. Oftast er þess getið á viðkomandi mynd, að ekki megi sýna hana opinberlega, eða þá að stundum er um fjölföldun úr útsendingu sjónvarps hér eða erlendis að ræða. Með sýningu þessara mynda opinberlega í vídeó-kerfum heilla hverfa eða blokka er hreinlega verið að svipta viðkomandi menn laununum sínum. Skyldi hinn frjálsi maður, er þessa nýtur, ekki verða heldur súr ef hann fengi ekki réttmætan hluta launa sinna á hverjum útborgunardegi? fslenskir rithöfundar myndu væntanlega rísa öndverðir gegn því, ef einhver framtakssamur maður tæki sig til og fjölritaði skáldverk þeirra, án leyfis og seldi síðan á tíkall stykkiðá útimarkaðnum. Hvað kvikmyndagerðarmenn varðar, þá er hér um að ræða unga listgrein, bæði hérlendis og erlendis. Þessi listgrein nýtur þó verndar með alþjóðlegum sáttmála, eins og aðrar listgreinar. í reglum um höfundarrétt er skýrt kveðið á um að t.d. allar eftirgerðir séu bannaðar án samþykkis höfund- ar. Um verndartíma segir í téðum sáttmála, að þar gildi hin almenna regla um æviskeið höfundar og 50 ár eftir lát hans. Þó er gert ráð fyrir því að hægt sé að ljúka verndartíma fimmtíu árum eftir að kvikmynd hefur verið sýnd almenningi, með leyfi höfundar. Hér vekur athygli að krafist er samþykkis höfundar fyrir sýningu á verki hans. Óprúttinn þjófnaður Mig langar sérstaklega að nefna hér eitt dæmi sem merki um óprúttinn þjófnað á verki höfundar. Veitingahús eitt hér í bær hefur gangandi vídeó-kerfi í sölum sínum. Þar hefur undanfarið verið sýnt prógramm, sem gert var með ýmsum stórstjörnum, þar á meðal Abba, Bee Gees, Oliviu-Newton John og mörgum öðrum. í þessu prógrammi fluttu stjörnurnar ýmis verk og að afloknum flutningi undirritaði hver höfundur skjal, þar sem hann af- salaði sér höfundarrétti og höfundar- launum fyrir viðkomandi verk. Skyldi afrakstur af verkinu ganga í sjóð Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Þetta þýðir i reynd, að í hvert sinn, sem lög þessi eru flutt í útvarpi eða sjónvarpi, þá greiðir dreifingaraðilinn höfundarlaun til barna þeirra er hjálparþurfi eru um heim allan. Veitingahúsið, sem hér um ræðir, hefur greinilega stolið dagskránni í útsendingu íslenska sjónvarpsins, því myndin er með íslenskum texta. Veitingahúsið greiðir væntanlega ekki þann skerf, sem búið er að gefa börnum heims í þessari dagskrá, í hvert sinn er hún er sýnd. Það notar hinsvegar greinilega dagskrána til þess að draga að fleiri gesti, og því er hér um fjárhagslegan ávinning að ræða fyrir veitingahúsið. Þótt þetta dæmi sé eitt af þeim siðferðilega séð verstu, er varðar stuld á höfundarlaunum og höfundarrétti, þá gildir um margt það sama hvað varðar opinberar sýningar i vídeó-kerfunum. Niðurstaðan hlýtur því að vera sú, að hér sé um lögbrot að ræða bæði í eiginlegri og siðferðilegri merkingu. Vídeó-byltingin er hafin, á því er enginn vafi. Hins vegar er þá spurningin sú, hvort við getum ekki verið heiðarleg og leyst þetta vand- ræðamál okkur öllum til sóma. Aðrir hafa gert það með ágætis árangri, en að vísu er þar um að ræða þjóðir, þar sem „stóri bróðir” hefur haft hönd með í bagga, svo sem Finnland og Danmörk. Reykjavík, 11. október 1981. Maríanna Friðjónsdóttir, dagskrárgerðarmaður. £ „Höfundarréttur er einnig á því efni, sem sýnt er í vídeó-kerfum út um borg og bí. En þar er þessi höfundarréttur ekki virtur.” Vídeó-bylting, en hvað svo?...

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.