Dagblaðið - 15.10.1981, Blaðsíða 15

Dagblaðið - 15.10.1981, Blaðsíða 15
14 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1981. ( íþróttir Íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir HM í knattspyrnu: r SKOTARTIL SPANAR Skotar tryggðu sér sæti 1 úrslita- keppni HM á Spáni er þeir gerðu jafn- tefli við Norður-íra í Belfast í gær- kvöldi, 0—0. Síðan bárust þær frcttir að Svíar hefðu sigrað í Portúgal, 2—1, og þar með eiga Norður-írar nú góða möguleika á að fylgja grönnum sínum í úrslitin. Alan Rough, markvörður Skota, tryggði sínum mönnum stigið dýrmæta er hann varði á undraverðan hátt frá Sammy Mcllroy 10 sekúndum fyrir leikslok. Jafnteflið hékk þó á blá- þræði. Þegar á 6. mín. var Billy Hamilton felldur í vítateig Skota en —og Norður-lrar gætu hæglega fylgt þeim sovézki dómarinn lét leikinn halda áfram, 35.000 Norður-lrum til mikilla vonbrigða. Norður-írar voru betri aðil- inn í leiknum og léku oft mjög vel en tókst ekki að knýja fram sigur. Jock' Stein, einvaldur Skota, hljóp inn á völl- inn í leikslok og faðmaði leikmenn sína að sér. Skotar leika nú í úrslitum HM þriðja skiptið í röð. Lið N. írlands: Pat Jennings, Jimmy Nicholl, Chris Nicholl, John O’Neill, Mal Donaghy, Martin O’Neill, Sammy Mcllroy, Dave McCreery, Noel Brotherston, Gerry Armstrong, Billy Hamilton. Lið Skotlands: Alan Rough, Ray Stewart, Alan Hansen, Willie Miller, Frank Gray, Gordon Strachan, Graeme Souness, Asa Hartford, Kenny Dalglish, Steve Archibald, John Robertson. Um 70.000 áhorfendur í Lissabon urðu fyrir miklum vonbrigðum þegar Svíar sigruðu Portúgali 2—1. Mögu- leikar Portúgala eru nú sáralitlir eftir tvö töp gegn Svíum sem þó eiga nánast enga möguleika sjálfir. 'Vinni ísrael í Belfast og Skotar í Lissabon komast Svíamir áfram. Larsson náði forystunni fyrir Svía á 38. mín. en Pietra jafnaði á 65. mín. Á síðustu sekúndum leiksins skoraði svo Persson sigurmark Svíanna, mark sem kann að ráða endanlega úrslitum riðils- ins þegar upp er staðið. Staðan í 6. riðli: Skotland Svíþjóð Norður-Irland Portúgal ísrael 7 4 3 0 8—2 11 8 3 2 3 7—8 8 7 2 3 2 5—3 7 6213 5—6 5 6 0 3 3 2—8 3 Leikir sem eftir eru: 28. október: Ísrael-Portúgal. 18. nóvember: Portú- gal-Skotland, Norður-írland-ísrael. -VS. Marteinn Geirsson, fyrirliöi — bezti leikur hans t lands- liðinu í mörg ár. Ásgeir Sigurvinsson, frábær. Beztileikur íslands erlendis — segir Helgi Daníelsson „Þetta er þaö bezta, sem ég hef séð til íslenzks landsliðs á erlendri grund — einn albezti leikur íslands frá upphafi,” sagði Helgi Daníelsson, formaður landsliðsnefndar, þegar DB ræddi við hann í gær. „Þetta er betra en í Magdeburg 1974 (jafntefli 1—1) — betri leikur knattspyrnulega séð hjá íslenzka liðinu. Það var mikil barátta hjá leikmönnum allan tímann og aldrei gefið eftir þó leikmenn Wales léku fast. Þetta var sigur liðsheildarinnar eins og í leiknum gegn Tékkum. Mun betri leikur þó en við Tékkana á Laugardals- velli. Allir leikmenn okkar áttu góðan leik. Erfitt að nema einn öðrum fremur, Ásgeir var mjög snjall, svo og Guðmundur í markinu. Marteinn Geirsson, fyrirliði, hefur ekki í mörg ár leikið jafnvel í landsliðinu og svona má halda áfram að telja upp alla strákana. Við erum i sjöunda himni með árangurinn í leiknum og árangurinn i riðlinum.” Leikurinn var miserfiður fyrir leikmenn. Leighton James var hættulegur og ég tel að Öm Óskarsson hafi komizt vel frá því hlutverki að gæta hans. Völlurinn var blautur og erfiður. Leikurinn því erfiður í tvennum skilningi. Leikmenn Wales tækluðu mjög fast. Þeir léku stíft til sigurs, töldu sig þurfa að vinna með sex marka mun til að hafa möguleika til að komast áfram — komast í loka- keppnina á Spáni. Sóknarleikurinn var því talsvert á kostnað varnarinnar hjá Wales. Það nýttu íslenzku strákarnir sér, voru mjög hættulegir í skyndisóknum. Leikmenn Wales voru hógværir eftir leikinn og ég heyrði Mike England, landsliðseinvald Wales, segja á blaðamanna- fundi, að Ásgeir Sigurvinsson væri leikmaöur i heims- kiassa,” sagði Helgi Daníelsson. Flestir leikmenn íslenzka liðsins koma heim í dag. -hsím. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15.0KTÓBER 1981. 15 iþróttir Iþróttir gþróttir Iþróttir S) ff Enginn markvörður heims heföi varíð skot Asgeirs” - Mit was a beauty,” sagði Brian Butler, BBC—Jafntefli Wales og Islands í Swansea 2-2 og ísland eina þjóðin, sem skoraði mark á heimavelli Walesbúa í þriðja riðli „Ljósin hafa slokknað fyrir Wales í heimsmeistarakeppninni,” sagði Mike England, landsliðseinvaldur Wales, eftir að Wales og ísland gerðu jafntefli í sögulegum leik, 2—2, á Vetch Field í Swansea. Tvívegis náði Wales forustu í leiknum. Tvívegis jafnaði Island og „hefði hæglega getað skorað fjögur mörk í síðari hálfleiknum. Svo illa opn- aðist vörn Wales,” sagði Ron Jones, sem lýsti leiknum í Radio Wales. „Tvívegis í fyrri hálfleiknum fengu íslenzku leikmennirnir einnig opin tækifæri. íslenzka liðið hefur mörgum góðum leikmönnum á að skipa, sex þeirra leika með liðum á meginlandinu. Leikmenn Wales vissu það vel að þeir gátu ekki vanmetið íslenzka liðið. Það sýndi iíka i leiknum að það var verðug- ur mótherji. Ásgeir Sigurvinsson var í sérflokki á vellinum. Þaö er leikmaður, sem kann að leika knattspyrnu. Virtist alstaðar á vellinum i siðari hálfleikn- um. Frábærlega leikinn og það eru fleiri í íslenzka liðinu, hinn Ijóshæðri Arnór Guðjohnsen, Janus Guðlaugs- son, Magnús Bergs og Atli Eðvaldsson. Hinn hávaxni markvörður liðsins, Guðmundur Baldursson, var mjög öruggur allan leikinn. Varði tvívegis frábærlega (brilliantly). lokakafla ieiksins. Mjög íþróttamanniega vaxinn. Sævar Jónsson hélt Curtis að mestu niöri. Vék varla frá honum og Mar- teinnGeirsson.fyrirliði og leikreyndasti maður íslands með 59 landsleiki, var öruggur swceper,” sagði Ron Jones og þulir Radio Wales voru hreint ótrúlega jákvæðir í dómum sínum um íslenzka liðið, þó þeir ættu auðvitað erfitt með að leyna vonbrigðum sínum með úrslitin. í BBC sagði Brian Butler, sá frægi útvarpsmaður, „Sigurvinsson var að minu áliti maður leiksins. Mjög snjall og síðara mark hans i leiknum hefði enginn markvörður í heimi varið. It was a beauty,” sagöi Butler. Leikurinn var sögulegur, ekki aðeins HM unglinga: Qatar sigraði Englendinga! — ogleikurtil úrslita gegn Vestur-Þjóðverjum Qatar, litla olíuríkiö við Persafló- ann, er komið í úrslit á HM unglinga í Ástralíu. Sjálfir Englendingar voru lagðir að velli í undanúrslitaleik þjóð- anna í gær. Qatar sigraði 2—1 eftir að hafa komizt í 2—0 og mætir Vestur- Þjóðverjum, Evrópumeisturum unglinga, i úrslitaleik um helgina. Englendingar verða að láta sér nægja leik um 3. sætið við Rúmena sem gerðu allt nema skora gegn Vestur-Þjóðverj- unum. Rúmenar sóttu linnulitið allar 90 mínúturnar og aðeins fádæma klaufa- skapur framlínumanna þeirra og frá- bær markvarzla Rudiger Vollborn hélt vestur-þýzka liðinu á floti. Framlengja þurfti leikinn og þá náðu Vestur-Þjóð- verjar undirtökunum. Á 103. mín. tók Thomas Brunner, Niirnberg, horn- spyrnu. Rúmenum mistókst að hreinsa og lögðu knöttinn fyrir tærnar á Alfred Schön, Waldhof-Mannheim, sem þrumaði í netið. Rúmenar sóttu stift lokamínúturnar en ekkert gekk frekar en fyrr og vonbrigði þeirra í leikslok voru mikil. Vestur-þýzki unglingalandsliðsþjálf- arinn, Dietrich Weise, kvaðst frekar hafa viljað mæta Englendingum í úrslitaleiknum þar sem hann vissi ekk- ert um lið Qatar. Eins og skýrt hefur verið frá hér í DB, gerðu Brasilíumenn aðsúg að dómaranum eftir tap þeirra gegn Qatar i 8-liða úrslitunum. Þjálfari Brasiliu hefur nú verið úrskurðaður í tveggja ára bann af FIFA og Brasilíumenn fengu 5000 franka sekt fyrir tiltækið. hvað úrslitunum viðkom, þar sem Wales fékk ásig fyrstu mörkin í 3. riðli HM á heimavelli, heldur vegna trufl- unar á flóðljósum vallarsins. Þau fóru af snemma í leiknum en vallarstarfs- mönnum tókst að laga það. Mínútu fyrir leikhléið fóru ljósin alveg. Bilun í stjórnkerfi Ijósanna. Finnski dómarinn Ravander lét leikmenn fara til búnings- herbergja sinna, enda kalt á vellinum. Það tók starfsmenn fjörutíu mín. að koma ljósunum í lag. Það tókst — íslenzka liðið birtist á vellinum, síðan kom dómarinn og leikmenn Wales. Ein mínúta leikin. ísland átti innkast og náði sókn. Fékk hornspyrnu. Sína fyrstu i leiknum. Hreinsað frá og Carl Harris náði knettinum af Viðari Hall- dórssyni. Gaf fram á John Mahoney, sem geystist að marki Islands. Spyrnti á márkið — rétt framhjá. Síðan flautaði dómarinn. Leikhlé en strax haldið áfram. Aðeins skipt um vallar- helminga og haldið áfram, þegar mark- verðirnir Dai Davies og Guðmundur Baldursson höfðu hlaupið vallarlengd- ina í mörk sín. Síðari hálfleikurinn hpfst og ísland jafnaði á fyrstu mínút- unni. . . . en nánar um það síðar. Spenna gifurleg og ljósin fóru að blikka á ný. Allir óttuðust að fresta þyrfti leiknum smátíma en fljóðljósin híedu þó það sem eftir var leiksins. Þó aðeins með þremur fjórðu styrkieika. Wales nær forustu Það var greinilegt þegar leikurinn hófst að lið Wales hafði þau fyrirmæli að leika stíft upp á mörk. Aðeins þrír varnarmenn, Joey Jones, Kevin Rat- cliffe og Pete Nicholas. Ú'varpsmenn Radio Wales voru allt annað en hrifnir af þvi. Davies var í markinu. Robbie James, Mahoney, Carl Harris og Jerome C'harles á miðjunni, Leighton James, sem var í fyrsta skipti fyrirliði landsliðs Wales í sínum 48 landsleik, Curtis og Ian Walsh i framlínunni. Lokakafla leiksins kom Ian Rush, Lieverpool, i stað Carl Harris, sem hafði verið einn bezti maður Wales að sögn þulanna „Þrír miðherjar — þetta gengur ekki,” sagði Ron Jones og spá- dómur hans rættist. Ian Rush sást varla. íslenzka liðið var eins skipað og skýrt var frá í blaðinu í gær. Sömu leik- menn og gegn Tékkum á Laugardals- velli og sömu ellefu leikmennirnir léku allan leikinn. Wales sótti miklu meira framan af leiknum og fengu fyrsta hættulega færið á 21. mín. Robbie Jaines átti skot á markið en Guðmundur Baldursson varði mjög vel. En þremur mín. síðar náði Wales forustu. Carl Harris gaf fyrir markið, Curtis og Charles börðust um knöttinn við islenzku varnarmenn- ina. Charles átti skot, sem var „blokk- erað” en knötturinn hrökk til Robbie James, sem sendi hann í markið óverj- andi fyrir Guðmund. Tveimur mín. síðar munaði litlu að Wales skoraði aftur. Ian Walsh komst einn inn fyrir vörnina. Guðmundur hljóp á móti honum. Walsh spyrnti knettinum framhjá. Þrátt fyrir talsverðan sóknarþunga Wales voru leikmenn liðsins nokkuð frá sínu bezta. íslenzka liðið fór að koma meira inn í myndina. Á 30. mín. átti Atli Eðvaldsson hörkuskot rétt yfir mark Wales. Þar munaði ekki miklu. Pétur Ormslev var bókaður fyrir brot á Harris og á 43. min. munaði ekki miklu að fsland jafnaði. Marteinn Geirsson átti snilldarsendingu fram til Ásgeirs Sigurvinssonar sem brutiaði upp og inn í vítateig Wales. Dai Davies kom á móti honum og Ásgeir spyrnti. Knötturinn fór rétt framhjá stönginni fjær. Rétt á eftir gáfu fljóðljósin sig. Dómarinn lét leikmenn fara lil búningsherbergja sinna. Lúðrasveitin kom inn á í staðinn og lék af miklum krafti. Radio Wales fór einnig að leika lög eins og þegar beðið var eftir að lýsingin frá Swansea hæfist kl. 19.00 að okkar tíma. Þá lék Radio Wales bara spænsk lög. Talið að á eftir mundu leikmenn Wales tryggja. sér farseðlana til Spánar næsta sumar. Kannski ekki svo óeðlilegt. Ásgeir jafnar Þó allt væri næstum i myrkri á Vetch Field sáu útvarpsmennirnir fljóðljós frá St. Helens-leikvellinum, þar sem rugby-leikur var háður. Það var þvi von í að leikurinn hæfist á ný. Um tíma var þó rætt um að fresta leiknum til fímmtudags en þess þurfti ekki. Ljósin komu á ný eftir rúmlega 40 minútur. Tekið til við leikinn. Minútan, sem eftir var, leikin eins og áðurerlýst. Síðan hóist . iðari hálfleikurinn. ísland fékk innkast, sem Örn Óskars- son tók. Kasta.M knettinum til Arnórs, sem tók á sprett upp hægri kantinn. Gaf siðan inn í vitateiginn til Ásgeirs, sem sendi knöttinn í markið af stuttu færi með hælnum. Dauðaþögn sló á tuttugu þúsund áhorfcndur en síðan fóru áhorfendur að hvetja leikmenn sína á ný. Þeir fengu tvær hornspyrnur — Harris spyrnti framhjá eftir þá síðari og á 54. min. skallaði Marteinn Geirsson knöttinn í horn. Leighton James tók hornspyrnuna, gaf inn í teig- inn og Curtis stökk hærra en aðrir. Skallaði knöttinn í mark við nærstöng- ina, 2—1. Spennan gífurleg og Ijósin fóru að blikka á ný. Wales sótti meira en skyndisóknir íslands voru hættu- legar. Ásgeir jaf nar af tur Á 60. mín. fékk Ásgeir knöttinn og geystist inn á vallarhelming Wales. Lék áfram og gaf siðan á Arnór Guðjohn- sen, sem spymti á markið. Knötturinn virtist á leið í markið en á marklínunni tókst Kevin Ratcliffe að spyrna frá. Út í teiginn og þar kom Ásgeir á fullri ferð. Þrumunegling út við stöng, sem Davies átti ekki möguleika að verja. Mjög fallegt mark og jafntefli 2—2. Skömmu síðar átti Atli skot framhjá stöng marks Wales og Ron Jones sagði. „Þarna hefði ísland hæglega skorað sitt þriðja mark í hálfleiknum’,, Rush kom i stað Harris á 64. min. og sókn Wales var þung lokakaflann. Ásgeir fékk þó færi, sem honum tókst ekki að nýta. Tvívegis varði Guðmundur Baldursson frábærlega frá Rush og Curtis en íslenzku varnarmennirnir stóðu þó vel fyrir sínu. Létu leikmenn Wales koma og stóðu þétt fyrir. Greini- lega mikil örvænting hlaupin í leik Walesbúa, þeir urðu jú að vinna. Wales fékk 11 hornspyrnur — ísland tvær. Leiktíminn rann út og ,,nú er Spánn i milljón mílna fjarlægð,” sagði Jones. Þessi árangur islenzka landsliðsins er einhver sá bezti, sem náðst hefur. Fylli- lega sambærilegur við jafnteflisleikinn við Austur-Þýzkaland í Magdeburg 1974. Og i 3ja riðli HM hefur Island vissulega komið á óvart. Eina liðið, sem skorað hefur í Wales — hlaut í allt sex stig, sem er bezti árangur okkar i HM og EM. Staðan i riðlinum er nú þannig. Wales 7 4 2 1 12—4 10 Sovétrikin 5 4 1 0 14—I 9 Tékkar 6 4 11 14—3 9 Island 8 2 2 4 10—21 6 Tyrkland 8 0 0 8 1—22 0 Og ef að líkum lætur elska Tékkar okkur nú jafnmikið og þeir hötuðu okkur eftir jafnteflið á Laugardalsvelli i haust. -hsim. 1 DRAGHNOÐ LANDSINS MESTA ÚRVAL HEILDSÖLUBIRGÐIR: ■ ASTRA - SÍÐMÚLA 32. - SÍMI86544. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ NÝiUNG í NEYTENDAMÁLUM Frystipokar sem auka geymsluþol matvæla Rétt meðferð matvæla við frystingu hefur mikil áhrif ágæði þeirra og geymsluþol. Nú hefur Plastprent h.f." hafið framleiðslu á frysti- pokum úr sérstöku frost- þolnu plastefni sem ver kjöt og aðra matvöru betur en áður hefur þekkst gegn rýrnun og ofþornun í frysti. Tvær stærðir poka í hen- tugum umbúðum. Límmerkimiðar og bindi- lykkjur fylgja. Fást í næstu matvöruverslun. Plastprent hf. HÖFÐABAKKA 9 SÍMI 85600

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.