Dagblaðið - 15.10.1981, Síða 10

Dagblaðið - 15.10.1981, Síða 10
10 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1981. „Mest sakamála- og kurekamyndir en engar pornomyndir" Stefán Garöarsson, 17 ára í Unu-. fellinu, segist horfa mikiö á videóið og er hæstánægður með myndavalið. „Ef ég hef eitthvað sérstakt að gera, eins og t.d. að rúlla niður á Halló, læt ég videóið ekki trufla mig. Annars er maður gjarn á að ýta takk- anum inn og liggja fyrir framan skerminn. Yfirleitt eru þetta ágætis amerískar myndir, sakamála- og kúreka-, en engar pornómyndir. Þó grunar mig að þær séu sýndar klukkan fimm á nóttunni. En ég hef þó aldrei athugað það. Helzt vildi ég fleiri bílamyndir og þá mætti gjarnan vera mynd á laugardögum strax eftir sjónvarp og svo aftur klukkan þrjú. Sumar þessar myndir eru þó ekki við hæfi barna og ekki varað við því. Satt að segja var mér nú bara ekki sama um daginn, þegar ég horfði á eina hryllingsmynd þegar kona ein var brytjuð niður. En þetta gerist víst í RUV líka. Að mínu áliti er 60 krónur á mán- uði ekkert of mikið fyrir þessa þjón- ustu, því stofnkostnaðurinn er eng- inn og útsendingin góð. Videó á því fullkomlega rétt á sér, enda finsnt mér lítið varið í íslenzka sjónvarpið.” -LKM. „Ég hef þá grunaða um að sýna pornó- myndir klukkan fimm á nóttunni, en ég hef samt aldrci staðfest þann grun,” segir Stefán Garðarsson, 17 ára. Vídeó-dagskrá næstu viku í Feliahverfi „Vídeó ekki dýrt miðað við bíóverð” ,,Ég er nú ekkert spennt fyrir videóinu og horfi lítið á það,” sagði Soffía Jóhannesdóttir. ,,Ég tók það aðallega inn fyrir krakkana, en þeir horfa samt sem áður ekki mikið á það. 60 krónur á mánuði er ekki dýrt, miðað við það að bíómiðinn kostar 28 krónur í dag og yfirleitt eru ein til tvær myndir á kvöldi. Myndaúrvalið er upp og niður. Oft eru þeir með ágætar stórmyndir inn á milli þeirra lélegri. Hvort þær eru við hæfi bama? Þær eru sízt verri en það sem er sýnt i sjónvarpinu, en samt er þó ekki varað við því í videóinu. Það mætti þó bæta dagskrána með nokkrum fræðslumyndum og fleiri fjölskyldumyndum. Og nú þegar myrkrið og kuldinn eru skollin yfir okkur, mætti sýna barnatíma um sex- leytið á degi hverjum. Eitt gott er þó við videóið, að það er ekki í gangi alla nóttina, eins og annars staðar. Yfirleitt er það ekki lengur en til klukkan tvö á nóttunni og þá jafnvel um helgar.” -LKM. „Þaö mættu gjarnan vera fræöslu- myndir og betri barnatimar 1 videó- inu,” segir Soffia Jóhannesdóttir i Unufelli 23. Eftirfarandi er sýnishorn af dag- skrá Videósón hf. sem sýnd verður í Fellahverfinu að undanskildu Æsu- felli, Asparfelli. Yrsufelli og Þóru- felli. Dagskráin gengur síðan á milli hverfanna sem Videósón-þjónust- an. En Videósón hf. hefur útsend- ingar i öllu Fellahverfmu að undan- skildu Æsufelli og Asparfelli sem eru með eignarvideó. Einnig sýna þeir í Seljahverfi, Bökkunum, Hólahverfi og hafa smærri einingar i Kópavogi og Hafnarfirði. Innan þessara hverfa eru þó margar blokkir sem hafa eignarvideó. Videósón hf. hefur einnig auglýst „hugmyndabankann” sinn, þar sem fólk getur sent hugmyndir að dagskrá í pósthólf 9093, R-109 í Reykjavik. Dagskráin i Fellahverfi þessa viku: Fimmtudagur 15. okt.: kl. 20.00 til 21.00 Barnatími, ösku- buska kl. 21.00 The Sand Pebblers með Steve McQueen og Candice Bergen. Föstudagur 16. okt.: Eftir RUV Love Story með Ryan O’Neial og Ali McGraw. I.augardagur 17. okt.: Eftir RUV Bad Company, saka- málamynd, 95 mín. Where have all the peopie gone, 90 mín., dularfull og spennandi mynd. Sunnudagur 18. okt.: kl. 13.00 Barnatími — The Jungle Book, Walt Disney. Eftir RUV Airplane — Gaman- mynd þar sem gert er grín að stór- slysamyndunum. Mánudagur 19. okt.: kl. 17.00LoveStory, endursýnd. Eftir RUV The Seven Golden Men — Fjölskylduþriller i léttum dúr um gullrán. Þriöjudagur 20. okt.: Eftir RUV Crocodile — Japönsk ævintýramynd í stil við Jaws. Miðvikudagur 21. okt.: Engin sýning. -LKM. VIDE0H) ST0R ÞATTUR FJðLSKYLDULÍFSINS —rætt vift f ólk í Breiftholtinu um vídeóvæðinguna „Erum hætt að hlusta á útvarpið ogförum sjaldan íbíóferðir” „Of mikið ofbeldi, sem börn ættu ekki að horfa á” Samt mætti vera meira efni fyrir minni böm. Annars eru þessar myndir ekkert verri en það sem gengur og gerist í íslenzka sjónvarp- inu. Auðvitað er þetta tímaþjófur,” bættu þau við. „Alltaf glápir maður á þetta, sama hvað er sýnt. Við förum ekki eins mikið á bíó og áður og erum svo til alveg hætt að hlusta á útvarpið. Áður en videóið kom til, hlustuðum við yfirleitt á fimmtudags- leikritið og danslögin eftir dagskrár- lok sjónvarpsins á laugardögum. Nú kveikjum við varla á útvarpinu.” -LKM. „Við erum ekki alveg nógu ánægð- ar með myndavalið I videósending- unni,” sögðu þær Hrund Gunnars- dóttir og Ólöf örvarsdóttir, 12 og 13 ára yngismeyjar í Unufellinu. „Við vildum helzt fá fleiri teiknimyndir og léttari bíómyndir. þær myndir sem eru sýndar eru yfirleitt of þungar og þá sjaldan gamanmyndir. Oft erum við líka búnar að sjá þær áður i bíó. Við horfum því sjaldan á videóið og veljum bara þær myndir sem við höfum gaman af.” Videosón hf. sér um útsendingu í Unufellinu, ásamt allstóru 'svæði þar um kring. Og satt er það að eitthvað virðist vanta á barnaskemmtunina, því flestar myndirnar sem sýndar eru, fjalla um sakamál og kúreka. Á fimmtudögum er þó einn barnatími sem er síðan endursýndur á sunnu- dögum kl. 1:00. „Okkur finnst stundum vera of mikið ofbeldi í myndunum, sem börn ættu alls ekki að horfa á,” sögðu þær stöllurnar. „Við fáum þó ekki að horfa á afbakaðar hryllingsmyndir, en sýningartíminn er yfirleitt eftir dagskrárlok í sjónvarpinu og það er heldur seint fyrir okkur.” -LKM. erum einnig svo til hætt að hlusta á útvarpið,” segja þau Asgeir Halldórsson og Erla Jónsdóttir. Á myndinni eru einnig Garðar, 6 ára og Ásgeir Jóhann sem er nýfæddur inn i þennan videóheim. „Vil hafa myndirn- ar nógu spenn- andi” Eggert Magnús Ingólfsson, 10 ára, segist horfa mikið á videóið. „Ég sleppti því þó á föstudaginn, af þvi að ég missti af því. Yfirleitt horfi ég á allt sem er sýnt, en ég fer þó að sofa þegar ég verð syfjaður. Oftast eru þetta lögreglumyndir og ekki mjög oft kúrekamyndir. Barna- tíminn er ekkert sérstaklega góður og er alltaf endursýndur á sunnudögum. Helzt vil ég hafa myndirnar nógu spennandi og þá kannski Súpermann eða stríðsgeimmyndir eins og Star Wars. -LKM. Þau Ásgeir Halldórsson og Erla Jónsdóttir horfa einnig á videóút- sendinguna í Unufellinu. Sögðu þau að útsendingin væri nokkuð misjöfn að gæðum og teldu þau líklegast að RUV trufli styrkleikann. „Ég horfi yfirleitt á ailar myndir i videóinu, og jafnvel hryllingsmyndir, en stundum sofna ég,” segir Eggert Magnús Ingólfsson, 10 ára. „Stundum er alltof mikið ofbeldi i myndunum,” segja þær Ólöf Örvarsdóttir og Hrund Gunnarsdóttir um myndaúrvalið i videó, meðvitaðar ungar meyjar. „Við viljum fleiri fjölskyldu- og teiknimyndir.” DB-myndir Einar Ólason. „Við borgum 60 krónur á mánuði fyrir þessa þjónustu,” sögðu þau, og okkur finnst það ekkert of dýrt fyrir það. Við erum þó ekki fyllilega ánægð með myndavalið, því flestar myndirnar sem eru sýndar höfum við áður séð í bíó. Þá eru þetta yfirleitt sakamála- og kúrekamyndir og oft eru þær endurteknar. Börnin okkar, 11 og 13 ára, horfa þó alltaf á þær.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.