Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1974, Blaðsíða 5
LANDSBÓKASAFNIÐ 1973
BÓKAKOSTUR OG Bókakostur Landsbókasafns var í árslok 1973 samkvæmt að-
BÓKAGJAFIR fangaskrá 313.245 bindi prentaðra bóka og hafði vaxið á árinu
um 7.151 bindi.
Mikill fjöldi binda var sem fyrr gefinn safninu eða fenginn í skiptum.
Halldór Laxness rithöfundur gaf Landsbókasafni Söguna af brauðinu dýra í útgáfu
þeirri, er gerð var í St. Gallen í Sviss 1970-72, með myndum eftir danska málarann
Asger Jorn.
Frú Ingibjörg Tops0e-Jensen sendi Landsbókasafni að gjöf um hendur sr. Jóns
Auðuns ýmis fróðleg og fágæt gögn varðandi dönsku stúdentaheimsóknina sumarið
1900, ennfremur dagskrá kvöldskemmtunar Stúdentafélagsins 16. febrúar 1899.
Frú Alison Logan Gray í Edinborg gaf Landsbókasafni um hendur Sigursteins
Magnússonar aðalræðismanns bók A Trip to Iceland, er faðir hennar, James Logan
Mack, ritaði um ferð sína til íslands 1911 og prentuð var í aðeins 25 eintökum það
sama ár.
Jakob B. Bjarnason, Síðu í Refsborgarsveit í Austur-Húnavatnssýslu, er gaf Lands-
bókasafni fyrir nokkrum árum mikið safn íslenzkra blaða (sbr. Arbók Landsbóka-
safns 1970), jók enn við gjöf sína ýmsum blöðum.
Dr. Sigurður Þórarinsson gaf ýmis sérprent, greinar, ritdóma o. fl. eftir sjálfan sig.
Rússneska Unesco-nefndin beitti sér fyrir því á síðastliðnu ári, að sendar yrðu víða
um lönd bókagjafir, sýnishorn bókagerðar í Sovétríkjunum, og var tilefnið sú ákvörð-
un 16. þings Menningar- og fræðslustofnunar Sameinuðu þjóðanna, að árið 1972
skyldi vera alþjóðlegt ár bókarinnar.
Sendiherra Sovétríkjanna tilkynnti menntamálaráðherra 2. febrúar 1973 um bækur
þær, er beintt hefði verið hingað til lands, en þær voru síðar í mánuðinum samkvæmt
ákvörðun ráðherra afhentar Landsbókasafni til varðveizlu.
í bókagjöf þessari voru alls 89 bindi bóka, fjölþætt að efni og mörg mjög fögur að
allri gerð.
Fulltrúar þeir frá rannsóknarbókasöfnum í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Sví-
þjóð, er hér sátu í október umræðufund um prentskil o. fl. (sjá um fundinn síðar í
þessu yfirliti), beimsóttu einn fundardaginn Landsbókasafn og færðu því mjög falleg-
ar bókagjafir. Stóð samband danskra rannsóknarbókasafna (Sammenslutningen af
Danmarks forskningsbiblioteker) að dönsku gjöfinni, Háskólabókasöfnin í Ábo, Hels-